Costco velti 27 milljörðum og greiddi milljarða til eiganda

Costco á Íslandi greiddi 4,5 millj­arða króna til móð­ur­fé­lags­ins í Bret­landi á síð­asta ári. Stærstur hluti greiðsl­unnar var lækkun á hlutafé en 1,8 millj­arða arður fylgdi. Starfs­fólki Costco á Íslandi fjölg­aði í fyrra og rekst­ur­inn virð­ist ganga vel.

Costco velti 27 milljörðum og greiddi milljarða til eiganda
Hagnaður Kaup­fé­lagið Costco hagn­að­ist um rúman hálfan millj­arð í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Costco í Kauptúni velti 26,7 millj­örðum króna á síð­asta rekstr­ar­ári, sem lauk 31. ágúst 2025. Veltan jókst um tæpa tvo millj­arða króna frá fyrra ári, eða 7,9 pró­sent. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Costco Wholesale Iceland ehf., sem er félagið á bak við starf­sem­ina í Garðabæ.

Rekstr­ar­hagn­aður félags­ins jókst veru­lega milli ára og nam 94 millj­ónum króna, sam­an­borið við 36 millj­ónir króna árið áður. Rekstr­ar­hagn­að­ur­inn er þó áfram mjög lít­ill sem hlut­fall af veltu, eða 0,35 pró­sent.

Hagnaður árs­ins eftir skatta nam 557 millj­ónum króna og dróst saman um 50 millj­ónir frá árinu áður. Skýrist það ekki síst af lægri fjár­muna­tekjum, sem námu 422 millj­ónum króna á árinu en voru 514 millj­ónir króna árið áður.

Milljarða arðgreiðsla og útgreiðsla

Þrátt fyrir að hagn­aður árs­ins hafi numið rúmum hálfum millj­arði króna fóru mun hærri fjár­hæðir út úr félag­inu á árinu. Samkvæmt sjóð­streym­is­yf­ir­liti greiddi félagið 1,8 millj­arða króna …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár