Hagnaður stærstu tímaritaútgáfu landsins dróst saman milli ára

Útgáfu­fé­lagið Birt­ingur hagn­að­ist um innan við eina milljón króna á starf­semi sinni í fyrra. Félagið gefur út flest af vin­sæl­ustu tíma­ritum lands­ins.

Hagnaður stærstu tímaritaútgáfu landsins dróst saman milli ára
Þekkt Mörg af þekkt­ustu tíma­ritum lands­ins eru gefin út af Birtingu. Þar á meðal Hús og hýbíli. Mynd: Heimildin

Útgáfu­fé­lagið Birt­ingur, sem gefur meðal ann­ars út Vikuna, Gest­gjafann og Hús og híbýli, skil­aði 733 þús­und króna hagn­aði á síð­asta ári. Hagn­að­ur­inn dróst veru­lega saman frá fyrra ári, þegar hann nam 11,6 millj­ónum króna.

Rekstr­ar­tekjur félags­ins voru 158,8 millj­ónir króna og lækk­uðu um 9,7 millj­ónir milli ára, eða tæp­lega sex pró­sent. Aðrar tekjur juk­ust hins vegar úr 9 millj­ónum í 13 millj­ónir króna. Rekstr­ar­hagn­aður Birtings var 7 millj­ónir króna, en var 19 millj­ónir króna árið áður.

Birt­ingur fékk 11,4 millj­ónir króna frá rík­inu á árinu í end­ur­greiðslu vegna rit­stjórn­ar­kostn­aðar, en hafði fengið 8,2 millj­ónir árið áður. End­ur­greiðslan byggir á rit­stjórn­ar­kostn­aði árs­ins á undan. 

Fimm störfuðu hjá Birtingi

Laun og launa­tengd gjöld hækk­uðu mikið á árinu. Þau námu 64,5 millj­ónum króna, sam­an­borið við 48,5 millj­ónir árið áður. Hækkunin var því um 16 millj­ónir króna, eða 33 pró­sent.

Þrátt fyrir það var með­al­fjöldi stöðu­gilda óbreyttur …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár