Náði stöðugleika eftir eigin ólgu

Eftir rétt tæp sextán ár í for­ystu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hefur Bjarni Bene­dikts­son sagt sig frá stjórn­málum. Sagan mun dæma hann vel, segja stuðn­ings­menn, en óljóst er nákvæm­lega hvað hann skilur eftir sig. Á síð­ustu fimm­tíu árum hefur eng­inn myndað fleiri rík­is­stjórnir og eng­inn átt aðild að jafn­mörgum sem springa.

Náði stöðugleika eftir eigin ólgu
Farinn Bjarni ætlar ekki að taka sæti á þingi þegar það kemur saman, þó aðeins séu nokkrar vikur síðan hann atti bar­áttu fyrir því að fá kjör. Hann er far­inn í frí. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son segir skilið við póli­tík eftir að hafa leitt Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum sex kosn­ingar. Fáir stjórn­mála­menn hafa átt aðild að jafn­mörgum rík­is­stjórnum og enn færri að jafn­mörgum sem sprungu. Af fjórum rík­is­stjórnum sem hann átti aðild að, lifði aðeins ein heilt kjör­tíma­bil. 

Bjarni hefur verið einn valda­mesti maður lands­ins um ára­bil og undir hans stjórn hefur hlut­verk fjár­mála­ráð­herra stækkað. Jafnvel þó að hann sé óvin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins, sam­kvæmt mæl­ingum, full­yrða sam­flokks­menn Bjarna að sagan muni dæma verk hans vel. En hver er arf­leifð Bjarna Bene­dikts­sonar? 

Stærstu verk­efni Bjarna hafa fyrst og fremst hverfst um að ná tökum á utan­að­kom­andi aðstæðum. Samn­ingar við kröfu­hafa föllnu bank­anna og afnám gjald­eyr­is­hafta sem sett voru á við hrun sömu banka, skulda­leið­rétt­ing sam­kvæmt lof­orðum sam­starfs­flokks hans, og við­brögð við Covid-19 far­aldr­inum. 

Fjármálaráðherra en ekki forsætis

Bjarni komst fyrst til valda árið 2013 þegar hann varð fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár