Afdrifarík krýning á jóladag fyrir 1.224 árum

Leó páfi III greip til örþrifa­ráða til að bjarga líf­inu.

Afdrifarík krýning á jóladag fyrir 1.224 árum
Karla­magnús krýndur á jóla­dag. Myndina mál­aði Friedrich Kaulbach á ofan­verðri 19. öld.

Leó páfi var hræddur. Hann naut að vísu stuðn­ings Karls Franka­kóngs sem hafði haldið honum á páfa­stóli fram að þessu en kannski myndi kóngi snú­ast hugur fyrr en varði og taka að styðja ein­hvern annan preláta til æðstu met­orða innan kirkj­unnar.

Og þá var ekki að vita hve lengi Leó gæti skrimt.

Í apríl hafði verið ráð­ist á hann þar sem hann var þó í fullum emb­ætt­is­skrúða að leiða trú­ar­lega skrúð­göngu um Róm­ar­stræti. Hópur vopn­aðra manna hafði ráð­ist að honum og dregið hann í öng­stræti þar sem þeir bjugg­ust til að skera úr honum tung­una og stinga úr honum augun.

Sendi­menn Karls kon­ungs, sem voru af til­viljun í borg­inni, höfðu bjargað honum á síð­ustu stundu og hrakið vopn­uðu menn­ina á flótta. Þá var Leó í öngviti og illa sár þótt hann héldi bæði tung­unni og aug­unum.

Um haustið höfðu óvinir páfa lagt fram ákærur gegn honum um bæði mein­særi og hórerí og þótt ásök­unum þeirra væri um síðir hafnað var ljóst að óvin­irnir höfðu alls ekki sagt sitt síð­asta. Það leið að jólum og Leó gat slakað á í bili af því Karl var staddur í Róm en hvað gerð­ist svo þegar kóngur héldi brott? Gæti hann ekki kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það væri of mikið vesin að styðja Leó áfram?

Já, páfi var veru­lega hræddur. En þegar hann braut heil­ann um hvað hann gæti gert til að tryggja sér end­an­lega stuðn­ing hins vold­uga kon­ungs gegn ill­skeyttum óvinum, þá fékk hann snjalla hug­mynd.

Hugmynd sem átti eftir að draga dilk á eftir sér næstu þús­und árin.

Róma­veldi í Vestur-Evrópu hrundi eins og allir vita á fimmtu öld ET (eftir upp­haf tíma­tals okkar). Aust­ur­róm­verska ríkið (sem við köllum nú oft­ast Býsans) hélt velli á Balkanskaga, Tyrk­landi og fyrir Mið­jarð­ar­hafs­botni en í vestr­inu urðu til ýmis sund­ur­þykk kon­ungs­ríki sem germ­anskar kon­ungs­ættir stýrðu.

Í Gallíu náðu Frankar til dæmis und­ir­tök­unum og þegar leið að alda­mót­unum 800 var þar risið mjög öfl­ugt ríki Karls kon­ungs. Hann hafði náð undir sig meg­in­hluta hinnar fornu Germaníu (nú Þýska­lands) og var far­inn að teygja veldi sitt suður á Ítalíu líka.

Ítalía hafði í nokkrar aldir verið leiksoppur inn­fæddra höfð­ingja, stríð­andi inn­rás­ar­herja, Býsans­manna og kaþ­ólsku kirkj­unnar. Rómaborg var ekki svipur hjá sjón og um páfa­dóm bit­ust valda­ættir og hags­muna­hópar í borg­inni af mik­illi hörku og grimmd.

Leó Asupius var val­inn til páfa árið 795. Um hann er harla fátt vitað nema hvað hann var fæddur í Róm og var senni­lega ekki af helstu aðal­sætt­unum borg­ar­innar. Kannski var hann val­inn til páfa sem ein­hvers konar mála­miðlun milli helstu fylk­inga sem rifust um völdin en alt­ént var hann fljótur að glata vin­sældum sínum í borg­inni, ef þær voru þá ein­hverjar til að byrja með.

Leó hélt velli með því að binda trúss sitt sem vand­leg­ast við Karl Franka­kon­ung sem hafði nú æ meiri afskipti af málum á Ítalíu. Póli­tískt eða hern­að­ar­lega skiptu yfir­ráð yfir Rómaborg litlu máli þegar þarna var komið sögu, en bæði hin glæsta saga borg­ar­innar og páfa­dómur ollu því að yfir­ráð yfir borg­inni skiptu tals­verðu máli.

Því studdi Karl hinn umsetna Leó páfa en sá síð­ar­nefndi var far­inn að ótt­ast að sá stuðn­ingur kynni að fara minnk­andi.

Og því ákvað hann að hrinda í fram­kvæmd þeirri einu hug­mynd sem hann fékk til að binda stuðn­ing Karls end­an­lega við sig.

Þegar Karl kóngur var við­staddur páfa­messu í Róm á jóla­dag árið 800 þá steig Leó skyndi­lega fram með kór­ónu í hendi og kvað nú mik­il­feng­leik Karls kon­ungs orð­inn svo aug­ljósan og yfir­þyrm­andi að kon­ungs­nafn dygði honum ekki lengur og því skyldi hann nú krýndur keis­ari, arf­taki og spor­göngu­maður hinna miklu keis­ara Róma­veldis hins forna.

Sam­tíma­heim­ildir herma allar að Karli hafi hnykkt við og honum hafi líkað þetta stór­illa. Hann hafi þó ákveðið að láta sig hafa það og kropið á kné svo Leó páfi gat komið kór­ón­unni á höfuð hans og lýst hann form­lega keis­ara í hinu heilaga róm­verska ríki.

Það var í raun skilj­an­legt að Karli mis­lík­aði. Með því að þiggja krýn­ingu með þessum hætti af páfa mátti segja að Karl við­ur­kenndi að kirkjan stæði ver­ald­legu valdi hans ofar. Hún hefði vald til að veita tign sem þessa. Seinni tíma fræði­menn hafa að vísu sumir efast um undrun Karls kon­ungs og talið þetta allt saman runnið undan rifjum kon­ungs sjálfs en það er seinni­tíma skýr­ing. Enginn vafi getur leikið á um að krýn­ingin á jóla­dag fyrir 1.224 árum var fyrst og fremst til marks um líf­hræðslu páfa.

En hvernig gat þessi atburður skipt máli til fram­tíðar?

Jú — hið víð­fema ríki Karls kon­ungs, eða Karla­magn­úsar, eins og hann er kall­aður, það varð ekki lang­líft sem heild. Eftir nokkra ára­tugi klofn­aði það í meg­in­dráttum í tvennt, Franka­land (eða Frakk­land) og Þýska­land. Fyrir duttl­unga örlag­anna fylgdi keis­ara­tit­ill­inn Þýska­lands­hlut­anum og í nærri þús­und geisuðu þrá­lát stríð og inn­an­lands­ófriður um það hvaða þýski pót­in­táti fengi að skreyta sig keis­aratitl­inum sem Leó hafði sæmt Karli.

Og máttu margir og amma hans deyja vegna þess arna.

Sjálfur fékk Leó páfi að njóta í sextán ár þeirra ævi­daga sem hann afl­aði sér að lík­indum með því að bregða óvænti krúnu á höfuð höf­uðs. Hann dó 816, tveim árum á eftir Karla­magn­úsi.

Hér má heyra frá­sögn af því þegar Karla­magnús ætl­aði, eða ætl­aði ekki, að ganga í hjóna­band.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár