„Af hverju fæ ég ekki að tala, Þýskaland?“

Þýska þingið sam­þykkti ályktun um að nota skyldi umdeilda skil­grein­ingu IHRA-sam­tak­anna þegar úrskurðað væri um hvað teld­ist til gyð­inga­hat­urs. Nú er svo komið að lista­menn og aka­demíkerar virð­ast þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en þeir sýna Palest­ínu stuðn­ing. Hvað er að ger­ast í Þýska­landi? spyr Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir.

„Af hverju fæ ég ekki að tala, Þýskaland?“
Þjóð­ar­morð For­stöðu­maður Neue Nationalgalerie, Klaus Biesenbach, svarar ásök­unum Goldin eftir ræðu hennar í Neue Nationalgalerie. Fyrir utan safnið standa aktí­vistar með borða sem á stendur „Staats­ra­i­son: Þjóð­ar­morð“, (Staats­ra­i­son er hug­tak sem Angela Merkel not­aði til að segja Ísrael hluta af til­vistar­rétt­læt­ingu Þýska­lands) . Starfs­fólk Neue Nationalgalerie hefur tekið sér stöðu til að fela með lík­ömum sínum orðið Genozid, eða þjóð­ar­morð.

Nan Goldin, lista­kona sem síð­ustu ára­tugi hefur verið heims­þekkt fyrir að fanga það allra mann­leg­asta með ljós­myndum sínum, opn­aði yfir­lits­sýn­ingu í Neue Nationalgalerie-safn­inu í Berlín í októ­ber.  Við opnun sýn­ing­ar­innar hélt Goldin harð­orða ræðu, þar sem hún gagn­rýndi rit­skoðun á röddum lista­fólks í Þýska­landi:

„Af hverju er ég að tala við ykkur, Þýska­land?
Því tungur hafa verið bundnar,
kyrktar af rík­is­stjórn­inni, lög­regl­unni og menn­ingarlegum ofsóknum. [Berlín] er borg sem við [lista­menn] litum eitt sinn á sem athvarf. En síðan 7. októ­ber hefur meira en 180 lista­mönnum, rit­höf­undum og kenn­urum verið slaufað, sumum þeirra fyrir eitt­hvað jafn hvers­dags­legt og læk á Instagram. Mörg þeirra eru palest­ínsk, 20% þeirra eru gyðingar. Af hverju er ég að tala hér? Ég ákvað að nota þessa sýn­ingu sem vett­vang fyrir sið­ferðisreiði mína yfir þjóð­ar­morð­inu í Gaza og Líbanon. Ég lít á sýn­ing­una mína hér sem prófstein: Ef listakona í minni stöðu fær að tjá póli­tískar skoð­anir sínar án þess að það sé þaggað niður, vona ég að það ryðji braut­ina fyrir aðra lista­menn til að tjá sig án rit­skoð­unar. Ég vona að það verði útkoman. Af hverju fæ ég ekki að tala, Þýska­land?“

Þetta á ekki eftir að enda vel

Hvað er að gerast í Þýskalandi?

En hvaðan koma ásak­anir ljós­mynd­ar­ans heims­þekkta og hvað er eig­in­lega að ger­ast í Þýska­landi? Þau sem eru í menn­ingar- og lista­geir­anum þekkja hvernig lista­stofn­anir kepp­ast við að sanna sam­fé­lags­legt gildi sitt með því að sýn­ingar þeirra taki fyrir nýlendu­stefnu, ras­isma, kynja­hlut­verk og svo fram­vegis. Það þykir því mörgum lista­mönnum skjóta skökku við að lista­stofn­anir rit­skoði lista­fólk sem styður frels­is­bar­áttu Palest­ínu berum orðum, eða með lækum á Instagram, eins og Goldin orð­aði það. En síðan þýska þingið sam­þykkti ályktun um að nota skyldi skil­grein­ingu IHRA-sam­tak­anna (e. Alþjóð­legu sam­tökin um minn­ingu helfar­ar­innar) þegar úrskurðað væri um hvað teld­ist til gyð­inga­hat­urs var öll gagn­rýni á Ísra­els­ríki sett undir þann hatt. Til að gefa dæmi um hversu víð skil­grein­ing sam­tak­anna IHRA á gyð­inga­hatri er má nefna að sam­tökin telja skýrslu stærstu mann­úð­ar­sam­taka heims, Amnesty International, um að Ísrael sé aðskiln­að­ar­ríki[1] til gyð­inga­hat­urs.

Áhrif á fjölmarga listamenn og akademíkera

Meðal þess fyrsta sem ályktun þýska þings­ins gaf af sér var brott­rekstur Þjóð­verja af kongólskum upp­runa úr starfi sem umsjón­ar­maður barna­sjón­varps­þáttar, fyrir þátt­töku hans í umhverf­is­vænni hátíð til styrktar börnum á Vest­ur­bakk­anum í Palest­ínu. Síðan þá hefur álykt­unin haft áhrif á fjöl­marga lista­menn og aka­demíkera: Lista­konan og goð­sögnin Laurie Anderson missti pró­fess­ors­stöðu sína við Folkwang-lista­há­skól­ann í Essen fyrir að skrifa undir opið bréf lista­fólks gegn aðskiln­að­ar­stefnu Ísraels, palest­ínska skáldið Adania Shibli var svipt verð­launa­af­hend­ingu vegna bókar sinnar á Bóka­há­tíð­inni í Frank­furt, að því er virð­ist vegna þjóð­ernis hennar. Lista­mið­stöðin Oyoun neydd­ist til að loka dyrum sínum eftir að þau misstu allar styrk­veit­ingar í kjöl­far þess að þau héldu við­burð undir nafn­inu „Raddir gyð­inga fyrir rétt­látum friði í Mið-Aust­ur­löndum“. Þetta eru allt dæmi frá síð­ast­liðnu ári, en þýska þingið stað­festi nú í nóv­em­ber ályktun sína um að ríkið myndi ekki styrkja sam­tök eða verk­efni sem kalla eftir snið­göngu á Ísrael eða styðja snið­göngu­hreyf­ing­una, eða ógna til­veru­rétti Ísra­els­ríkis. 

Svo virð­ist því sem aflýs­ingar á lista­sýn­ingum, tón­leikum og leik­sýn­ingum, boðum til lista­manna, veit­ingar á bóka­verð­launum, verði enn undir smá­sjá víðrar skil­grein­ingar á hvað geti flokk­ast sem hatur.   

Meint „innflutt“ gyðingahatur

Nan Goldin benti einnig á í ræðu sinni það sem margir aðrir gagn­rýnendur stefnu þýskra stjórn­valda hafa gagn­rýnt varð­andi álykt­anir þings­ins, sem er að skil­grein­ing Þýska­lands á gyð­inga­hatri skekki bar­átt­una gegn raun­veru­legu gyð­inga­hatri, færi fók­us­inn frá hat­urs­glæpum nýnas­ista yfir á mót­mæli gegn því sem þau kalla „inn­flutt“ gyð­inga­hatur. Þýska­land telur sumsé gyð­inga­hat­rið inn­flutt en ómögu­lega geta verið lengur að finna í þeirra eigin borg­urum, jafn­vel þó rann­sóknir sýni að 80% hat­urs­glæpa gegn gyð­ingum séu framdir af öfga-hægri hópum sem aðhyll­ast hvíta yfir­burða­hyggju. 

Meðal gagn­rýnenda rit­skoð­unar Þjóð­verja er Candace Breitz, suður-afrísk lista­kona af gyð­inga­ættum, sem varð fyrir því að hætt var við mynd­list­ar­sýn­ingu hennar vegna þess að hún hefði ekki sam­þykkt að leggja árás Hamas 7. októ­ber 2023 að jöfnu við hel­för­ina. Breitz benti í við­tali í kjöl­farið á fárán­leika þess að Þýska­land segi nú gyð­ingum hvað séu rétt og röng við­brögð við slátrun á þeim sjálfum. Á mót­mælum gyð­inga fyrir Palest­ínu þann 10. nóv­em­ber 2023 sagði lista­konan jafn­framt: „Á sama tíma halda nýnas­istar og þjóð­ern­is­sinnar áfram að ganga um götur Þýska­lands með vernd lög­reglu, og stuðn­ingur við [hægri] flokk­inn AfD heldur áfram að vaxa [...] Hvernig er það mögu­legt, vinir, að röddum okkar sem menn­ing­ar­fólks, lista­manna, rit­höf­unda, tón­list­ar­manna, ljóð­skálda, leik­hús­fólks, fræði­manna, hug­vits­manna – hvernig er það mögu­legt að rödd okkar sé talin hættu­legri fyrir þetta sam­fé­lag en rödd hvítra þjóð­ern­is­sinna og hægri öfga­hreyf­inga?“

Hægrið er að taka bar­átt­una um tján­ing­ar­frelsið upp á sína arma á meðan lista­menn, sem eru yfir­leitt á vinstri vængnum, virð­ast ekki vilja taka ekki upp hansk­ann fyrir lista­fólk.

Listamenn þurfa að hugsa sig tvisvar um

Þýsk vin­kona und­ir­rit­aðrar sótti um styrk fyrir skóla­gjöldum fyrir meist­ara­námi í sviðs­listum. Henni þótti nokkuð öruggt að fá styrk­inn, ekki síst þar sem hún er lista­kona með nokkuð „pott­þétta“ fer­il­skrá í list­heim­inum: hún hefur unnið óslitið frá því hún kláraði grunn­nám, vinnur sam­fé­lags­leg verk­efni með inn­flytj­endum, ung­lingum og öðrum hópum sem ekki hafa rödd í sam­fé­lag­inu, ofan á það að vinna sleitu­laust í ólíkum opin­berum menn­ing­ar­stofn­unum og vinna einnig að gras­rót­ar­starfi. En styrk­inn fékk hún ekki. Það er auð­vitað alltaf sjokk að fá ekki styrk, og fyrir því geta verið ólíkar ástæður – þýska náms­styrkja­stofn­unin gaf vin­konu minni ekki upp ástæðu, en vin­kona mín velti fyrir sér hvort hún hafi gert mis­tök: Einn með­mæl­andi hennar er nefni­lega lista­kona sem hefur haft hátt um yfir­stand­andi árásir Ísraels á Palest­ínu og Líbanon. „Ég bara hugs­aði þetta, það er ekki endi­lega það – en gæti það verið að mér hafi verið hafnað vegna þess?“ Það er auð­velt að afskrifa áhyggjur vin­konu minnar sem hreina para­noju, en raunin er að flestir lista­menn í Þýska­landi þurfa nú að hugsa sig tvisvar um áður en þeir tengja sig eða list sína á nokkurn hátt við mál­stað Palest­ínu.

 „Hinn nýi McCarthy-ismi“

Á meðan vopna­send­ingar Þýska­lands til Ísraels hafa tífald­ast á einu ári, hefur stefna lands­ins í menn­ing­ar­málum þró­ast út í að vera einn armur utan­rík­is­stefnu lands­ins. Vegferð Þýska­lands hefur verið kölluð „hinn nýi McCarthy-ismi“.

Í listaum­hverfi Þýska­lands, þar sem allar lista­stofn­anir eru að ein­hverju leyti rík­is­styrktar, skiptir miklu máli að stjórn­völd standi vörð um tján­ing­ar­frelsi lista­manna. Lista­fólk í þýska­landi er því margt hrætt við að skrifa undir opin bréf eða deila efni um Palest­ínu á sam­fé­lags­miðlum, því það gæti þýtt að þeir missi lífs­við­ur­værið.

 Fjöl­margar kenn­ingar hafa komið fram um af hverju Þjóð­verjar, þessi þjóð sem virt­ist hafa geng­ist við ger­enda­stimpl­inum með auð­mýkt eftir seinni heims­styrj­öld, þjóðin sem tók minn­ingu helfar­ar­innar og dýfði sér í hana í sekt­ar­kennd sem virt­ist næstum ein­kenn­ast af stolti, kepp­ist nú við að þagga niður í lista­mönnum sem segja það sem þeim finnst óþægi­legt. Er Þjóð­verjum kannski svo mikið í mun að vera réttir að þeir fara hring­inn og verða það sem þeir ótt­ast mest sjálfir?

 Titill yfir­lits­sýn­ingar Nan Goldin í Neue Nationalgalerie eru varn­að­ar­orð sem hefðu vel átt heima í kraft­mik­illi ræðu hennar: „This will not end well“, eða „Þetta mun ekki enda vel“. Við látum liggja á milli hluta hvort orð hennar reyn­ist hafa spá­dómsmátt.



[1] https://www.theguardian.com/news/2023/apr/24/un-ihra-antisemitism-definition-israel-criticism

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Ísrael hefur aldrei verið lýðræðisríki. Í kringum stofnun Ísraelsríkis 1948 hófu síonistar þjóðhreinsanir sínar með því að hrekja af heimlum sínum 750.000 Palestínuaraba. Þeir 15.000 sem ekki hlýddu voru einfaldlega drepnir.

    Þessir atburðir eru tabú í Ísrael og hvergi nefndir í skólum landsins. Það sýnir okkur ágætlega hversu brengluð staðan er.

    Ríki sem stundar þjóðhreinsanir getur með engu móti talist lýðræðisríki. Þjóðhreinsanirnar standa enn svo ekki sé talað um þjóðarmorðið sem síonistar stunda um þessar mundir á Gaza. Ég mæli með lestri eftirfarandi bókar

    Ilan Pappe, The Ethnic Cleansing of Palestine (2007).

    Ilan Pappe er gyðingur sem ólst upp í Ísrael, gengdi þar herþjónustu og lauk svo doktorsprófi í stjórnmálafræði í Oxford. Hann var dósent við háskólann í Haifa frá 1984 til 2006. Hann var rekinn úr því embætti vegna skrifa sinna og hrakinn úr landi og er nú prófessor á Englandi.

    Þá má finna fjölmörg viðtöl við þennan ágæta mann á YouTube með því t.d. að leita að

    "On 1948 | Ilan Pappe | Part I | 2018"

    "On 1948 | Ilan Pappe | Part II | 2018"

    "Ilan Pappé: The Myth of Israel"

    "Ilan Pappe - how he became an Israeli dissident and on why Zionism will fail soon"
    1
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Já, þetta eru sannarlega góð og vel rökstudd orð, en samt bara gnauð upp í vindinn. Það er mörg ógæfan í veröldinni sem þyrfti að hitta englana sína til að finna sjálfa sig. Gagnrýni á Ísrael á sér enga stöðu meðal siðmenntaðra manna. Það er bara þannig og þess vegna geta þeir ekki sem vilja halda fram ábyrgum stjórnmálum í Evrópu og USA tekið þátt í að níðast á eina lögmæta gyðinga heimilinu á plánetunni. Ísrael hýsir milljónir flóttamanna frá arabísku þjóðinni og tekur þá einnig flóttamenn frá Afríku. Sækir flóttamenn þangað sem enginn annar vill og innleiðir svo. Múslima og blökkumenn. Þeir sæta stöðugt árás heimsins fyrir það sama og öll önnur lönd gera í varnarskyni,að verja íbúa landsins með valdi og gefast aldrei upp fyrir hryðjuverkamönnunum. Þeir þáðu land frá UN 1948 og skilgreina land sitt sem heimili gyðinga. Löglega og friðsamlega eftir hryllilegan búsetu tíma í Evrópu og var nánast útrýmt af Evrópu búum. Helvíti er Disney land undir mjúku teppi miðað víð Auschwitz. Það vitna skýrslur nasista um. Mannkyn þekkir ekki baráttuna sem gyðingur þurfti að heyja til að sleppa lifandi undan evrópsku þjóðunum á tuttugustu öld. Það er ógæfan sem nú birtist því sem ræðst gegn gyðingum nú út um allan heim.
    -10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár