Gefðu góðar gjafir um jólin

Jóla­há­tíðin er gengin í garð og getur það reynst ein­hverjum krefj­andi að finna hinar full­komnu jóla­gjafir. Hvort sem þú ert að versla fyrir þinn heittelskaða, bestu vin­konu þína, eða fjöl­skyldu­með­lim, þá höfum við tekið saman lista yfir sniðugar jóla­gjafir sem gætu hitt í mark!

Gefðu góðar gjafir um jólin

Fyrir unglingana

 

Vatnsbrúsi 

Stuðlar að nægri vökva­inn­töku með töff hönnun og hag­nýtum eig­in­leikum. Ekki skemmir fyrir að þetta er mun umhverf­is­vænni kostur en plast­flöskur.

Finna má bæði Stanley-brúsa og Chilly‘s brúsa í versl­unum Elko og víðar.

Bók

Hvort sem þetta er hinn full­komni flótti frá hvers­dags­leik­anum eða upp­spretta inn­blást­urs fyrir skap­andi hugs­uði, þá er bók klass­ísk jóla­gjöf. Hægt er að skoða úrvalið í Bóka­tíð­indum 2024.

Í versl­unum Eymunds­son ættu allir að gefa fundið bækur við sitt hæfi. 

Þægi­legur en jafn­framt smart klæðn­aður fyrir alls konar aðstæður.

Gall­arnir frá M fit­ness og Metta Sport eiga án efa eftir að hitta í mark.  

Skartgripir

Tímalaus jóla­gjöf sem getur bætt glæsi­leika við hvaða klæðnað sem er.

Úrval af glæsi­legum skart­gripum fyrir öll kyn má finna hjá MyLetra.  

Snjallúrin frá Apple eru hag­nýt úr sem meðal ann­ars fylgj­ast með hreyf­ingu, mæla hjart­slátt og gera fólki kleift að senda skila­boð.

AppleWatch má til dæmis finna hjá síma­fyr­ir­tækj­unum, Epli og versl­unum Elko. 

 

Fyrir hana

 

Þægindi, nota­leg­heit og hent­ugt fyrir róleg kvöld heima fyrir. Mjúkt nátt­fata­sett gerir hátta­tím­ann enn þá betri og er því per­sónu­leg og hag­nýt gjöf.

Mikið úrval er að finna á vef­síðu Kringl­unnar, en nátt­fötin hér að ofan eru frá Gina Tricot. Lindex er einna fremst í flokki þegar kemur að flottum og þægi­legum nátt­fötum.

Hin full­komna gjöf fyrir fyrir djúpa og end­ur­nær­andi slökun.

Hreyfing býður upp á gjafa­bréf sem hægt er að nýta í úrval af þjón­ustu, svo sem snyrti­með­ferðir eða nudd. Boðið er upp á sömu þjón­ustu á flestum snyrti­stofum lands­ins.

Fyrir þær konur sem eiga nóg af glingri og eru dug­legar að ferð­ast, þá er ferða­skart­gripa­skrín full­komin gjöf. 

Ferða­skart­gripa­skrínin frá Andrea eru mjög vin­sæl.

Stíl­hreinn og hag­nýtur stað­al­bún­aður fyrir vet­ur­inn, sér­stak­lega þegar kemur að því að skafa bíl­inn á köldum vetr­ar­morgnum. 

Leð­ur­hansk­arnir á mynd­inni eru frá Ungfrúin góða.

Dek­ur­gjöf sem býður upp á ljóm­andi mjúka húð. Tree Hut-skrúb­b­arnir eru mjög vin­sælir þessa dag­ana.

Þeir fást meðal ann­ars í versl­unum Hagkaups og Krón­unnar. 

Fyrir hann 

 

Nauð­syn­legt að eiga í skápnum ef stuðla á að heil­brigðri húð. CeraVe vör­urnar gefa húð­inni full­kom­inn raka. 

 Vörurnar fást meðal ann­ars í Hagkaup og Krónunni.

Þægileg og fjöl­hæf flík sem er nauð­syn­leg í fata­skáp­inn, ekki síst fyrir köldu vetr­ar­mán­uð­ina hér á landi.

Í Húrra Reykja­vík má til dæmis finna úrval af peysum, bæði í ein­földum stíl en einnig svo­lítið ein­kenn­andi í útliti. Annars er úrvalið mikið í flestum herra­fata­versl­unum.

Fyrir þá karl­menn sem hafa gaman af því að elda og borða gott kjöt, þá gæti gjafa­bréf í Sæl­kera­búð­ina verið góður kostur undir jóla­tréð.

Hægt er að kaupa gjafa­bréf frá þeim fyrir nokkrar mis­mun­andi upp­hæðir, allt frá 5.000 krónum upp í 40.000 krónur. Fleiri sæl­kera­versl­anir bjóða upp á gjafa­kort á mis­mun­andi verð­bili, til dæmis Kjöt­kompaní.

Sokkar geta verið skemmti­leg eða klass­ísk hönnun sem hentar hvaða stíl sem er.

Í Yeoman verslun er hægt að gera góð kaup af skemmti­legum sokkum á sér­stöku til­boði. 

Það er fátt betra en að eiga góðan og mjúkan nátt­slopp til að slaka á heima hjá sér.

Slopp­ur­inn hér að ofan er frá Svefn og heilsa, en þarmá finna nátt­sloppa í öllum litum og sniðum. 

Fyrir heimilisunnandann 

 

Lýsir upp skamm­degið með góðum ilm, Noma selur dásam­legu Bath & Body Works ilm­kertin. Til eru tvær stærðir af kertum og hell­ingur af mis­mun­andi ilm­teg­undum. 

Versl­unin Noma, sem er í Glæsibæ, selur þessi kerti.

Það er eins og kaffið verði betra þegar það er drukkið úr fal­legum bolla. Boll­arnir frá Ingu Elínu eru til dæmis algjört augn­konfekt, en fleiri bollar eftir íslenska keramíklista­menn eru á mark­aði.

Boll­arnir frá Ingu Elínu fást meðal ann­ars í Epal. Í Kirsu­berja­trénu er líka úrval bolla eftir íslenska lista­menn.

Það er mun skemmti­legra að þrífa sér um hendur með vel lykt­andi hand­sápu í glæsi­legum umbúðum.

Í versl­un­inni Dimm má finna ýmsar vand­aðar hand­sápur í fal­legum umbúðum. 

Skurð­ar­bretti eru fjöl­þætt og hag­nýt gjöf fyrir alla þá sem njóta sín í eld­hús­inu. Hvort sem það er í þeim til­gangi að skera niður eða bera fram mat, þá auð­veldar fal­legt skurð­ar­bretti matseld­ina og gerir hana skemmti­legri.

ILVA er með heilan hell­ing af fal­legum skurð­ar­brettum, í öllum stærðum og gerðum.  

Fallega hönnuð viskíglös gera drykkju­upp­lifun­ina marg­falt skemmti­legri. Eins er hægt að finna viskís­teina, sem eru til þess gerðir að halda drykkjum köldum án þess að þeir þynn­ist út með vatni. 

Líf & list er stað­ur­inn til að versla fal­leg viskíglös og viskís­teina.

Fyrir íþróttaiðkandann

Frábær gjöf fyrir golfiðk­endur, sem nýt­ist við æfingar og á golf­vell­inum.

Hægt er að finna pakka af golf­boltum í öllum helstu golf­búðum lands­ins, sem og íþrótta­vöru­versl­unum. 

Þægi­legir hlaupa­skór gera hlaup marg­falt betri. Hoka-hlaupa­skórnir eru með þeim vin­sæl­ustu á mark­að­inum.

Hoka-hlaupa­skó má meðal ann­ars finna í Sportís eða Hlaupár. 

Mik­il­vægur stað­al­bún­aður fyrir jóga, eða ann­ars konar lík­ams­rækt­ar­tíma.

Versl­unin Kenzen selur fal­leg og stíl­hrein jóga­hand­klæði í þremur mis­mun­andi litum, sem aðeins er hægt að versla á net­inu. 

Góð heyrn­ar­tól eru gulli betra þegar kemur að lík­ams­rækt. Enn þá betra er ef þau eru þráð­laus, þannig það fari sem minnst fyrir þeim.

Elko býður meðal ann­ars upp á úrval af þráð­lausum heyrn­ar­tólum frá hinum ýmsu merkjum, meðal ann­ars hin víð­frægu AirPods.

Frábær gjöf fyrir tennisunn­endur, byrj­endur sem og lengra komna. 

Úrval tenn­is­spaða er að finna á Rackent Now, en spað­inn á mynd­inni er frá Sportverzlun.is.





Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár