Leyniupptakan á Edition-hótelinu: „Við höfum enn tíma eftir kosningarnar“

Sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar lýsti því í lok októ­ber að ef ekki næð­ist að gefa út hval­veiði­leyfi fyrir kosn­ingar væri vel hægt að gera það á meðan aðrir flokkar reyndu að mynda rík­is­stjórn. Það gerð­ist í gær þegar Bjarni Bene­dikts­son gaf út leyfi til hval­veiða sem lifir þá rík­is­stjórn sem tekur næst við völdum.

Sama um allt annað Heimildin birtir í fyrsta sinn brot úr upptökunum af Gunnari Bergmann. Hér heyrist hann meðal annars segja: „Af því að ég veit að hann er að fara að hætta, þannig að okkur er eiginlega sama um allt annað núna.“

„Við höfum enn tíma eftir kosn­ing­arnar til að gera þetta,“ útskýrði Gunnar Bergmann Jónsson, sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar, sér­staks full­trúa í mat­væla­ráðu­neyt­inu, í sam­tali við óþekktan aðila sem hann taldi vera sviss­neskan fast­eigna­fjár­festi.

Samtalið átti sér stað í lok októ­ber síð­ast­lið­inn en í því lýsti hann því með nokk­urri nákvæmni hvernig Jón Gunn­ars­son hafði samið við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks og starf­andi for­sæt­is­ráð­herra, um að þiggja sæti á lista flokks­ins fyrir Alþing­is­kosn­ingar í skiptum fyrir að kom­ast í aðstöðu til veita veiði­leyfi til Hvals hf. Það leyfi var veitt í gær, af Bjarna, sem er starf­andi mat­væla­ráð­herra.

„Af því að ég veit að hann er að fara að hætta þannig að okkur er eig­in­lega sama um allt annað núna“
Gunnar Bergmann
um Jón Gunn­ars­son, sem lét af þing­mennsku um nýliðna helgi.

Heim­ildin birtir í fyrsta sinn brot úr mynd­bands­upp­töku sem óþekktur aðili tók af sam­tali sínu við Gunnar Bergmann …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þađ er margt einkennilegt viđ þetta mál alltsaman, bara þađ ađ leyft er ađ gera ađ dýrunum utanbyra međan fuglar himins međ allar sínar flensur skíta á opiđ kjötiđ þegar veriđ er ađ koma því í hentugar stærđareiningar til geymslu og sölu. Þađ er sennilega í lagi vegna þess ađ viđ borđum þađ ekki.
    0
  • Gunnar Diego skrifaði
    Þessi maður væri víðast hvar kominn á bakvið rimla nema að sjálfsögðu á Íslandi þar sem við leyfum svona pakki að ganga fram!
    1
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Þetta er svakaleg lýsing á rótgrónu virðingarleysi við þjóðina og ást á peningum. Hryggileg hegðun.
    2
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Verður þetta "skúbb" ekki flokkað sem misheppnað, í ljósi þess að leyfið er veitt ?
    -5
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Það er fjandanum erfiðara að losna við illkynja krabbamein sem langa lengi hefur grasserað í þjóðarlíkamanum. Já, ég er að líkja sjálfstæðisflokknum við skætt og illvígt krabbamein.
    4
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Ég á ekki til orð, xD mafía er rétta orðið yfir þennan "flokk"
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár