Bið á birtingu vindorkutillagna

Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur enn ekki birt til­lögu að flokkun tíu vind­orku­kosta í sam­ráðs­gátt stjórn­valda líkt og áformað var að gera fyrir miðjan mánuð. „Við erum bara að vinna okkar vinnu eins vel og hægt er. Það er ekk­ert flókn­ara,“ segir for­maður stjórn­ar­innar.

Bið á birtingu vindorkutillagna
Vind­orku­ver Mikil ásókn er í að byggja vind­orku­ver á Íslandi en ekk­ert slíkt hefur risið hér á landi. Um fjöru­tíu hug­myndir hafa verið settar fram og verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar hefur tekið tíu þeirra til með­ferðar. Mynd: Pexels

Um síð­ustu mán­aða­mót stefndi verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar að því að setja drög að til­lögum að  flokkun tíu vind­orku­kosta í sam­ráðs­gátt stjórn­valda „á næstu tveimur vikum“ líkt og það var orðað í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. Það hefði þýtt að til­lög­urnar hefðu birst fyrir miðjan nóv­em­ber­mánuð. Þegar Heim­ildin spurði á ný í síð­ustu viku hvenær von væri á birt­ingu til­lagn­anna feng­ust þau svör frá starfs­manni verk­efn­is­stjórn­ar­innar að stefnt væri að því að setja kost­ina til sam­ráðs „eftir helgi“, á mánu­dag eða þriðju­dag. Þeir dagar eru nú liðnir og ekk­ert bólar á til­lög­unum. Ljóst er að málið er póli­tískt eld­fimt nú rétt fyrir kosn­ingar. Um 40 vind­orku­kostir, flestir á vegum einka­fyr­ir­tækja í eigu erlendra aðila, eru á teikni­borð­inu um allt land og mjög skiptar skoð­anir eru á hverjum og einum þeirra og hvort reisa eigi vind­orku­ver hér á landi yfir höfuð. 

Hlutverk verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar er að flokka fram­setta virkj­ana­kosti, eftir gaum­gæfi­lega skoðun í nokkrum fag­hópum, í nýt­ingar-, bið- eða vernd­ar­flokk. Síðustu verk­efn­is­stjórn tókst ekki að ljúka vinnu sinni en skil­aði þó drögum að til­lögu um flokkun og lagði meðal ann­ars til að þrír vind­orku­kostir færu í nýt­ing­ar­flokk og tveir í bið­flokk. Einn þess­ara kosta, Búr­fellslundur, var afgreiddur í nýt­ing­ar­flokk með sam­þykkt Alþingis á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þriðja áfanga áætl­un­ar­innar snemm­sum­ars 2022. Hinir fjórir fóru áfram til frek­ari með­ferðar hjá verk­efn­is­stjórn fimmta áfang­ans, þeirri sem nú er að störfum.

FormaðurJón Geir Pét­urs­son.

„Við erum enn að vinna að okkar til­lögu­gerð,“ skrifar Jón Geir Pét­urs­son, dós­ent við Háskóla Íslands og for­maður verk­efn­is­stjórn­ar­innar, í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar á mið­viku­dag um það hvenær til­lagan verði birt. „Þeirri vinnu þarf að ljúka áður en við hefjum opið sam­ráð um drög að til­lögum.“

Spurður hvort ekki sé þá lengur í sjón­máli að til­lög­urnar verði birtar fyrir mán­aða­mót og þar með fyrir kosn­ingar svarar Jón Geir: „Veit ekki nákvæmar tíma­setn­ingar. Þær verða settar í umsögn þegar þær eru til­búnar.“ Verk­efn­is­stjórnin taki sér þann tíma sem hún þurfi. 

Í fund­ar­gerðum verk­efn­is­stjórn­ar­innar, sem birtar eru opin­ber­lega á vef ramma­á­ætl­unar, má sjá að í októ­ber hefur vinnan við til­lög­urnar verið komin vel á veg og þann 30. þess mán­aðar fór stjórnin yfir „skýrslu verk­efn­is­stjórnar með grein­ingum og drögum að til­lögu að flokkun 10 vind­orku­verk­efna“, líkt og það var orðað í fund­ar­gerð­inni.

„Við erum bara að vinna okkar vinnu eins vel og hægt er. Það er ekk­ert flókn­ara
Jón Geir Pét­urs­son,
for­maður verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar.

„Við erum bara að vinna okkar vinnu eins vel og hægt er. Það er ekk­ert flókn­ara,“ svarar Jón Geir spurður hvort eitt­hvað hafi komið upp á sem hafi orðið til þess að áform um birt­ingu nú um miðjan mán­uð­inn hafi ekki gengið eftir. Spurður hvort kom­andi kosn­ingar hefðu með ein­hverjum hætti haft áhrif á vinnu verk­efn­is­stjórn­ar­innar varð­andi vind­orku­til­lög­urnar og birt­ingu þeirra vísar hann í fyrri svör sín: „Okkar til­lögur fara í sam­ráð þegar þær eru til­búnar.“ 

Hann bendir enn fremur á að ferlið sé þannig að fyrst fari drög að til­lögu í tveggja til þriggja vikna sam­ráð, þá í yfir­ferð og í kjöl­farið hefj­ist svo annað 12 vikna sam­ráð. Þannig hafi verk­efn­is­stjórn 5. áfanga þegar unnið með tvo aðra „virkj­ana­pakka“.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta þarf að bíða þar til við fáum ábyrga ríkisstjórn
    1
  • Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Þetta þarf að bíða þar til við fáum ábyrga ríkisstjórn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár