Þegar blaðamaður leit við í líkamsræktarstöðinni Afreki í Skógarhlíð á fimmtudagsmorgun lá Einar Hansberg Árnason á bekk með svefngrímu að safna kröftum eftir að hafa lokið umferð númer 307. Hópur fólks var að klára morgunæfingu við dúndrandi tónlist sem Einari tekst á óútskýranlegan hátt að nýta sem hugleiðslu.
Hver umferð samanstendur af 2.000 metrum á þrekhjóli, 1.000 metrum á róðravél, 500 metrum á skíðavél ásamt upphífingum, sem hefur þó farið fækkandi eftir því sem umferðunum fjölgar. Markmið Einars er að ljúka 500 umferðum, alls 1.750 kílómetrum, á einni viku. Einar þarf að vera á hreyfingu í um 19 klukkustundir á sólarhring svo markmiðið náist og ef allt gengur upp mun hann ljúka 500. umferðinni síðdegis á morgun, laugardag.
Hér má fylgjast með þrekraun Einars í beinu streymi:
Þurfum að tala um sjálfsvíg af virðingu
„Það þarf að vekja athygli á þessu málefni, sjálfsvígum, og halda þeim í umræðunni. Tala upphátt og af virðingu,“ segir Einar. Hann ólst upp á Hvammstanga og hefur misst þrjá æskuvini sem sviptu sig lífi. Hann segir lítið sem ekkert hafa verið rætt um sjálfsvíg á þeim tíma. Þegar vinkona hans missti eiginmann sinn fyrir sex árum vildi Einar sýna stuðning í verki og úr varð fyrsta átakið þar sem hann vakti athygli á starfsemi Píeta þegar hann réri 500 kílómetra. Hann hefur endurtekið leikinn á tveggja ára fresti en æfingarnar verða umfangsmeiri og erfiðari eftir því sem þeim fjölgar. Einar játar að átakið nú stefni í að verða hans helsta þrekraun, líkamlega, og það stefnir í að hún verði hans helsta andlega þrekraun sömuleiðis. „Lengsta sem ég hef farið áður er 55 klukkutímar þannig þetta er þreföldun á því. Hugmyndin kemur bara úr hausnum á mér, yfirleitt „meika þær engan sens“ en eru skemmtilegar í mómentinu og svo áður en ég veit af er ég búinn að kasta þeim út og þetta er komið af stað.“
Sýnum mildi
Einar missti náinn vin sinn fyrir einu og hálfu ári sem svipti sig lífi. „Það kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þá sér maður að þetta er alls staðar og þú veist aldrei hver er í hugleiðingunum. Við eigum að sýna mildi og reyna að líða vel saman.“
Mikill gestagangur hefur verið í Afreki frá því að verkefnið hófst og hafa gestirnir farið yfir 600 umferðir við hlið Einars. Þrátt fyrir lítinn svefn og mikla vinnu ber Einar sig vel. „Það var einn sem settist hjá mér um daginn og sagðist hafa átt erfiðan dag og verið að horfa á streymið og ákveðið að koma. Hann var ekki á góðum stað en hann hefur haldið áfram að koma. Hann er glaður og kátur þegar hann er hér.“ Einar segir þetta litla dæmi sýna fram á tilgang verkefnisins. „Enginn einn getur allt en öll getum við eitthvað. Í aðstæðum er oft ágætt að hugsa: Hvað get ég gefið? Í staðinn fyrir, hvað fæ ég hér? Þetta verkefni kristallast í því.“
„Í aðstæðum er oft ágætt að hugsa: Hvað get ég gefið?
Eftir fimm sólarhringa í krefjandi æfingum er tímaskynið aðeins farið að gefa sig. „Við erum í ákveðinni rútínu, reynum að ná slökun inni á milli. Í nótt held ég að ég hafi náð klukkutíma, svo eru þetta 90 mínútur, tveir tímar kannski. Ég veit hvaða dagur er núna en þetta rennur stundum saman í eitt. „Áðan“ var kannski fyrir 70 klukkutímum síðan. Þetta er skemmtileg upplifun en stundum svolítið þung.“ Einar segir tilganginum hafa verið náð, óháð því hvort hann klári umferðirnar 500 eða ekki. „Það er rosalega góð stemning, kærleikur og falleg orka. Allir eru tilbúnir til að gera allt til að láta þetta ganga upp. Ég er alveg bjartsýnn á að ná að klára. En ef þetta fer þannig að ég nái ekki að klára 500 umferðir þá er tilganginum samt náð.“
Þeim sem vilja styrkja Píeta-samtökin er bent á styrktarsíðuna: pieta.is/styrkja-samtokin/. Einnig er hægt að leggja beint inn á samtökin: Kt. 410416-0690 - Reikn nr. 0301-26-041041 eða í gegnum AUR appið en notendanafnið er einfaldlega: @Pieta
Embætti landlæknis bendir á að mikilvægt sé að þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir segi einhverjum frá líðan sinni, hvort sem er aðstandanda eða í hjálparsíma Píeta sem er opinn allan sólarhringinn í síma 552-2218. Hjálparsími Rauða krossins er 1717 en í neyðartilvikum skal ávallt hringja í 112.
Athugasemdir