Gata nefnd í höfuðið á langömmu nefndarmanns fyrir tilviljun

Bjarg­ar­gata mun héðan í frá heita Krist­ín­ar­gata í höf­uðið á Kristínu Ólafs­dóttur lækni. Sú er langamma Ólafar Skafta­dóttur, eins þriggja nefnd­ar­manna í götu­nafna­nefnd, sem átti þó ekki hug­mynd­ina.

Gata nefnd í höfuðið á langömmu nefndarmanns fyrir tilviljun
Fær nýtt nafn Gatan, sem liggur við hlið Grósku á háskóla­svæð­inu, verður end­ur­nefnd í höf­uðið á Kristínu Ólafs­dóttur lækni. Mynd: Víkingur

Í vik­unni var greint frá því að umhverfis- og skipu­lags­ráð Reykja­vík­ur­borgar hefði ákveðið að breyta nafni Bjarg­ar­götu í Vatns­mýri yfir í Krist­ín­ar­götu.

Örnefna­nefnd hafði sett Reykja­vík­ur­borg stól­inn fyrir dyrnar með fyrri nafn­gift göt­unnar, en hún þótti of lík nafni Bjark­ar­götu, sem er stað­sett í mið­bænum. Var götu­nafna­nefnd því gert að finna nýtt nafn.

Heita eftir menntakonum

„Við höfðum verið í miklum vand­ræðum með að finna konu sem hent­aði inn í þetta mengi,“ segir Óttar Kol­beins­son Proppé, íslensku­fræð­ingur og einn þriggja nefnd­ar­manna. „Þetta verður að vera ein­hver kona með tengsl við menntir og háskól­ann. Göturnar í kring eru nefndar eftir miklum mennta­konum.“ Til dæmis hafi það njörvað valið tals­vert niður að ekki er siður fyrir því að láta götur heita eftir lif­andi eða nýlátnu fólki. 

Starfs­maður Reykja­vík­ur­borgar stakk þá, að sögn Óttars, upp á að láta göt­una heita í höf­uðið á Kristínu Ólafs­dóttur lækni, fyrstu kon­unni sem …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár