„Það eru allir með í eyrunum, allir horfandi niður“

Fannar Freyr Har­alds­son hefur notað takka­síma í tvö ár og hefur ekki langað að skipta aftur yfir í snjall­sím­ann. „Mér leið eins og þetta væri að hefta mína getu til að fram­kvæma hluti – eins og ég gæti ekki gert neitt nema ég væri með eitt­hvað sem væri að draga athygli mína í burtu,“ segir hann.

„Það eru allir með í eyrunum, allir horfandi niður“
Minni tengsl Fannar Freyr telur að fólk sé í auknum mæli að fá nóg af snjall­símum. Mynd: Golli

Fannar Freyr Har­alds­son er 24 ára mynd­list­ar­nemi og hefur gengið um með takka­síma í tvö ár. Hann segir fólk nota snjall­síma til að flýja eigin hugs­anir og finnst tækin hafa sundr­andi áhrif á sam­fé­lagið. „Þú ferð út og þú sérð bara að það eru allir með í eyr­unum, allir horf­andi niður.“

Snjall­símar fara, að sögn Fannars, mjög í taug­arnar á honum og hann hafði íhugað að hætta notkun þeirra lengi. 

„Ég var alltaf með eitt­hvað í eyr­unum og mér fannst ég byrj­aður að vera dálítið geð­veikur á því að vera með þetta í vas­anum. Þannig ég ákvað að prófa að breyta. Mig hefur ekki langað að fara aftur í snjall­sím­ann,“ segir hann.

Upplifði létti

Það var sam­tal við sál­fræð­ing sem fékk hann til að ríða á vaðið og skipta yfir í takka­síma. „Þetta trufl­aði mig, minnir mig, í eina eða tvær vikur að vera ekki með eitt­hvað í eyr­unum meðan …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Hjartanlega sammála þessari ágætu grein.
    Einn af fáum sem úttalar sig um þetta áhald.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Snjallsímar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár