Jón segist hafa verið forvitinn um hvort það væri hasar

Jón Gunn­ars­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks segir að hann taki undir það að sím­tal Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar félags­mála­ráð­herra til rík­is­lög­reglu­stjóra hafi verið óeðli­legt. Hann sjálfur hafi hins vegar ein­ungis verið að leita upp­lýs­inga hjá rík­is­lög­reglu­stjóra og kanna hvort það væri ein­hver hasar í gangi.

Jón segist hafa verið forvitinn um hvort það væri hasar
Jón Gunn­ars­son Ráð­herr­ann fyrr­ver­andi seg­ist hafa ákveðið að hringja í rík­is­lög­reglu­stjóra til að fá upp­lýs­ingar um hvort ein­hverjir erf­ið­leikar eða hasar hafi verið í tengslum við þá fyr­ir­hug­aða brott­vísun Yazans Tamimi. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að sím­tal hans til rík­is­lög­reglu­stjóra að morgni dags 16. sept­em­ber, þegar brott­vísun Yazans Tamimi og fjöl­skyldu hans stóð yfir, hafi verið vegna þess að hann „vildi fá upp­lýs­ingar“ um hvort málið gengi ekki bara ágæt­lega og hvort „ein­hverjir erf­ið­leikar“ eða „mik­ill hasar“ væri uppi í tengslum við málið. 

Þetta kemur allt fram í sam­tali hans við mbl.is, en þar segir Jón, sem er fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, að hann hafi ekki verið að „reyna að hafa áhrif á þetta mál með neinum hætti“.

„Ég er fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra og hef síma­núm­er rík­is­lög­reglu­stjóra. Ég var því ein­fald­lega að reyna að fá upp­lýs­ing­ar um það hvort mik­ill has­ar væri í kring­um þetta,“ sagði Jón í sam­tali við mbl.is, en jafn­framt að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi tjáð honum að málið væri í far­vegi og hún gæti ekk­ert upp­lýst hann um það. 

Heim­ildin sagði frá því í morgun að bæði Jón og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hefðu hringt í Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra vegna þessa máls. Áður hafði ein­ungis komið fram að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála­ráð­herra hefði gert það, auk svo auð­vitað dóms­mála­ráð­herr­ans Guðrúnar Haf­steins­dóttur, sett sig í beint sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra þennan morgun.

Jón hefur ekki svarað skrif­legri fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar vegna máls­ins. Það gerði Áslaug Arna heldur ekki, en hún tjáði sig um málið í stuttri færslu á Facebook í dag.

Telur einhvernveginn eðlilegra að óbreyttur þingmaður en ráðherra hafi samband

Jón Gunn­ars­son segir hins­vegar við mbl.is, þegar blaða­maður mið­ils­ins rifjar upp að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi sagt sím­tal Guð­mundar Inga til rík­is­lög­reglu­stjóra óeðli­legt, að hann telji það fremur við­eig­andi fyrir óbreytta þing­menn en ráð­herra í rík­is­stjórn að setja sig í sam­band við rík­is­lög­reglu­stjóra vegna mála af þessu tagi: 

„Að mínu viti þá er svo­lítið annað þegar ráð­herr­ar í rík­is­stjórn eru að fara inn í við­kvæma stöðu eins og þessa. Emb­ætt­is­menn hafa fyrst og fremst upp­lýs­inga­skyld­ur gagn­vart sín­um ráð­herra og taka við fyr­ir­mæl­um, eða taka ákv­arð­anir í sam­ræmi við þá ef svo ber und­ir. Ég tek því al­gjör­lega und­ir þá gagn­rýni sem þar kom fram. Ég var hins veg­ar sem al­menn­ur þing­maður að hringja til að spyrja um stöðu mála. Fá upp­lýs­ing­ar um það hvort þarna væru ein­hver vanda­mál eins og ég hafði sjálf­ur upp­lifað í ráðu­neyt­inu í þess­um við­kvæmu mál­um,“ hefur mbl.is eftir Jóni.

„Óheppilegt hvernig mál röðuðust þennan morgun“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra tjáði sig um þessi sím­töl til rík­is­lög­reglu­stjóra þennan örlaga­ríka morgun í sam­tali við RÚV fyrr í dag og sagði þá að það væri „óeðli­legt að á þessum tíma dags sé verið að hringja í rík­is­lög­reglu­stjóra, höfum það á hreinu, ég hef sagt það áður.“

„Það skiptir máli hvað kemur fram í slíkum sam­tölum og að allir skilji að það er dóms­mála­ráð­herra sem fer með þann mála­flokk sem rík­is­lög­reglu­stjóri er að sinna og hann á ekki að þurfa að finna fyrir þrýst­ingi frá neinum öðrum en þeim ráð­herra sem hefur eft­ir­lits­skyldur með kerf­inu. Það er þetta sem mér finnst aðal­at­riði máls en mér finnst óheppi­legt hvernig mál röð­uð­ust þennan morgun,“ sagði Bjarni. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    " Ég var hins veg­ar sem al­menn­ur þingmaður að hringja til að spyrja um stöðu mála."
    Þingmaður hefur ekki meiri rétt á upplýsingum frá lögreglustjóra en Pétur og Páll. Hann getur spurt dómsmálaráðherra um stöðu mála, ekkert umfram það. Almenningur getur ekki hringt á stöðina og spurt hvað hafi verið um að vera í nótt. Það sama gildir um þingmenn.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár