Það er bannað að deyja á Svalbarða – ljóð eftir Jón Kalman

Hér má lesa frum­birt­ingu á ljóði eftir Jón Kalman sem fór til Sval­barða og orti ljóð.

Það er bannað að deyja á Svalbarða – ljóð eftir Jón Kalman
Á Sval­barða. Mynd: Stella Soffía Jóhann­es­dóttir.


eitt

Það er bannað að deyja
hér á Sval­barða
sem er á 78. breidd­argráðu,
svo norð­ar­lega í heim­inum
að maður kemst varla þangað
í draumum sínum, ein­ungis í flug­vél,
skipum og í skáld­skap

bannað að deyja,
raunar einnig að fæð­ast:

það sem liggur þar á milli nefn­ist lífið

Lífið býr því á 78. breidd­argráðu

Ég sit á kaffi­húsi
við aðal­göt­una í Longye­ar­byen,
fyrir utan eru fjöll, him­inn svo blár
að hann er að breyt­ast í tón­list,
Mozart blár, sagði
stúlkan sem seldi mér gott kaffi,
hún kom hingað
frá Fil­ipps­eyjum fyrir tveimur árum,
mað­ur­inn við hlið mér er rúss­neskur flótta­maður,
á móti honum Norð­maður, Dani, Spán­verji

hér búa rúm­lega rúm­lega tvö þús­und mann­eskjur
af 40 mis­mun­andi þjóð­ernum, lífið hefur smalað
þeim hingað þar sem dauð­anum hefur
verið úthýst, ein­hver
mætti þó láta ísbirn­ina vita af því, þeir
taka ekk­ert til­lit til okkar
fyrir þeim erum við gang­andi sushi, góður
…

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár