Oddný gefur ekki kost á sér

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrrum ráð­herra, mun ekki sækj­ast eftir því að kom­ast á þing í kosn­ing­unum í nóv­em­ber. Aðrir þing­menn hafa lýst því yfir í dag að þeir muni ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri.

Oddný gefur ekki kost á sér

Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér í kom­andi alþing­is­kosn­ingum. Þessu greindi hún frá á Facebook rétt í þessu. 

Oddný hefur setið á þingi fyrir Suð­ur­kjör­dæmi frá árinu 2009. Hún var fjár­mála­ráð­herra árin 2011-2012, þá var hún einnig iðn­að­ar­ráð­herra á tíma­bili árið 2012. „Ég hef verið að melta þessa ákvörðun með mér og fjöl­skyldu minni lengi og þetta er nið­ur­staðan. Þetta verður mitt síð­asta kjör­tíma­bil,“ segir hún.

Oddný er annar tveggja fyrr­ver­andi ráð­herra í þing­liði Sam­fylk­ing­ar­innar, því auk hennar sat Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir sem ráð­herra í hrun­stjórn­inni. Þórunn var odd­viti flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum og vill vera það aftur nú. Þar hefur Guð­mundur Árni Stef­áns­son, odd­viti Sam­fylk­ingar í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar, hins vegar skorað hana á hólm. Hann hefur líka ráð­herra­reynslu, eftir að hafa setið í eitt ár sem vel­ferð­ar­ráð­herra í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár