Bjarni um símtal Guðmundar: „Í allan stað mjög óeðlilegt“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir það í allan stað mjög óeðli­legt að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hafi hringt í rík­is­lög­reglu­stjóra í tengslum við brott­vísun ell­efu ára hæl­is­leit­anda frá Palest­ínu.

Bjarni um símtal Guðmundar: „Í allan stað mjög óeðlilegt“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir það „í hæsta máta mjög óeðli­legt“ að Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, hafi hringt í rík­is­lög­reglu­stjóra í tengslum við brott­flutn­ing Yazan Tamimi, ell­efu ára hæl­is­leit­andi frá Palest­ínu, frá Íslandi. 

Hringdi beintGuð­mundur Ingi hringdi beint í rík­is­lög­reglu­stjóra til að fá brott­vísun Yasans frestað.

„Hvað varðar regl­urnar sem við höfum sett um þessi efni er alveg ljóst að félags­mála­ráð­herra hefur ekk­ert boð­vald yfir rík­is­lög­reglu­stjóra en hann hefur hins vegar með mál­efni fatl­aðra að gera og það eru skjól­stæð­ingar hjá ráð­herra sem hann vill ganga úr skugga um að njóti þess réttar sem lög og reglur kveða á um,“ sagði Bjarni um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag. 

Tveir þing­menn spurðu Bjarna út í málið á þing­inu en Speg­ill­inn á RÚV greindi í gær­kvöldi frá sam­skiptum ráð­herra við rík­is­lög­reglu­stjóra í tengslum við brott­flutn­ing­inn.

Yasan hafði, að kvöldi sunnu­dags­ins 15. sept­em­ber, verið sóttur inn á Land­spít­al­ann þar sem vísa átti honum og fjöl­skyldu hans úr landi. Þegar ráð­herrar Vinstri grænna fréttu af aðgerð­unum hringdi Guð­mundur Ingi beint í rík­is­lög­reglu­stjóra, sem síðan reyndi ítrekað að hafa sam­band við yfir­mann sinn, Guðrúnu Haf­steins­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

Á þing­inu í morgun sagð­ist Bjarni skilja það sem svo að Guð­mundur Ingi hafi viljað gæta að öllum þeim rétt­indum sem fólk í við­kvæmri stöðu getur, við þær aðstæður sem þarna eru uppi, en Yasan er með vöðva­rýrun­ar­sjúk­dóm­inn Duchenne og not­ast við hjóla­stól. 

Yasan haldiðEftir að hafa verið sóttur á Land­spít­al­ann voru Yasan og fjöl­skylda hans látin dúsa á Kefla­vík­ur­flug­velli á meðan ráð­herrar ræddu um hvort fresta ætti brott­vísun hans.

„Mér finnst það hins vegar, ég verð að segja það, í allan stað mjög óeðli­legt að ráð­herr­ann hringi beint í und­ir­mann ann­ars ráð­herra. Hérna þarf maður þá að horfa til þess að dóms­mála­ráð­herra var vænt­an­lega enn þá steinsof­andi á þessum tíma­punkti, enda mjög árla morg­uns þegar þetta ger­ist,“ sagði Bjarni og vís­aði ann­ars á Guðmund Inga sjálfan. 

Stöðvun brott­flutn­ings­ins varð til þess að rík­inu tókst ekki að vísa Yasan og fjöl­skyldu hans úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Reglu­gerðin heim­ilar stjórn­völdum að vísa fólki til þess Evr­ópu­ríkis sem var fyrsti við­komu­staður þess innan álf­unnar.

Það þýddi að íslensk stjórn­völd þurftu að taka umsókn þeirra til efn­is­legrar með­ferðar. Eftir slíka með­ferð fengu þau öll alþjóð­lega vernd á Íslandi og dval­ar­leyfi til tveggja ára. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Var þetta ástæða Bjarna að slíta stjórnarsamstarfinu?
    Mér þykir mjög eðlilegt að ráðherra sem er æðsti yfirmaður félagsmála ræði við æðsta yfirmann lögreglunnar þegar um er að ræða mál sem þetta. Sé það mikilvægt fyrir forsætisráðherra að hrekja fatlaðan einstakling úr landi sem er auk þess barn, þá er mjög áleitin spurning um hugarfar forsætisráðherra. Er hann gjörsamlega hjartalaus og kaldrifjaður gagnvart þeim sem stendur höllum fæti í samfélaginu? Er hann kannski jafnvel siðlaus í þokkabót?
    Það virtist skipta Bjarna Benediktsson mjög mikið að selja ríkiseignir á undirverði. Nú hefur verið reynt að koma í veg fyrir það eða alla vega hægja á slíkri gjafasölu.
    En gagnvart þeim einstaklingi sem stendur á krossgötum í lífinu þykir þessum ráðamanni sjálfsagt að beita hörku og koma í meiri vandræði en hann er þegar í.
    Og þegar annar ráðamaður vill koma viðkomandi til aðstoðar, þá er tekin ákvörðun um að slíta stjórnarsamstarfinu! Mér finnst Guðmundur Ingi hafi gert rétt jafnvel þó að æðsti yfirmaður lögreglunnar hafi verið vakinn um miðja nótt. Það var verið að fremja mannréttindabrot í skjóli nætur.
    Hvar er miskunnsami samverjinn í okkar samfélagi?
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Jæja, aumingja dómsmálaráðherrann var steinsofandi. En lögreglunni sem undir hana heyrir fannst í lagi, að sækja barn um hánóttu úr spítala.
    Þetta mál finnst mér allt hið skammarlegasta fyrir lögregluna, útlendingastofnun og dómsmálaráðherrann.
    Guðmundur Ingi fylgdi samvisku sinni og fyrir það ber ég virðingi.
    2
  • Hadla Helgadottir skrifaði
    Jæja? Allt sem á undan hafði gengið í þessu máli var í hæsta máta óeðlilegt... bara ofbeldi!
    1
  • Birgit Braun skrifaði
    "Yasan hafði, að kvöldi sunnudagsins 15. september, verið sóttur inn á Landspítalann þar sem vísa átti honum og fjölskyldu hans úr landi." Sjúklingur sem sagt sóttur um miðja nótt?? inn á LSH til að vísa honum og fjölskyldunni beint á flugvöll? Ég ber skilning og virðingu fyrir því að Guðmundur skyldi þora að trufla morgunsvefn ríkislögreglustjórans og lýsa áhyggjum sínum á þessum framkvæmdum!
    5
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Hérna þarf maður þá að horfa til þess að dómsmálaráðherra var væntanlega enn þá steinsofandi á þessum tímapunkti, enda mjög árla morguns þegar þetta gerist,“
    "Ráðherra á aldrei frí" sagði Margret Thatcher. Hér hafa ráðherrar sína hentisemi. Mæta bara eins og venjulegt skrifstofufólk enda landinu ílla stjórnað.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár