Bjarni: „Mér fannst þetta vera mjög óskýr ályktun“

Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra finnst ályktun Vinstri grænna um að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið sé að taka enda „mjög óskýr.“ Hann segir erf­iða og flókna stöðu blasa við.

Bjarni: „Mér fannst þetta vera mjög óskýr ályktun“

„Mér fannst þetta vera mjög óskýr ályktun. Ef menn eru þeirrar skoð­unar að erindi stjórn­ar­innar sé lokið þá finnst mér menn hafa skyldu til að ganga til kosn­inga. Ef menn vilja kjósa að vori – vegna þess að það sé svo gott fyrir takt­inn í lýð­ræð­is­gang­verk­inu okkar – þá eiga menn bara að vera skýrir um það, en mér finnst menn vera óskýrir með hvort tveggja.“

Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Heim­ild­ina að loknum fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun. Vísaði hann til álykt­unar sem sam­þykkt var á lands­fundi Vinstri grænna um helg­ina. Í henni var ályktað að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið væri að nálg­ast leið­ar­lok og að ganga þurfi til kosn­inga í vor.  

Spurður hvort hann sé með þessum ummælum að hvetja til þess að VG rjúfi stjórn­ar­sam­starfið svarar Bjarni því neit­andi. „Ég er bara alla daga að láta reyna á það hvort við getum náð árangri með þing­málin sem eru á þing­mála­skránni og eru grunn­ur­inn að þessu fram­haldi að stjórn­ar­sam­starf­inu.“ 

Nefnir Bjarni mál svo sem að ná niður verð­bólgu, taka á hæl­is­leit­enda­kerf­inu og aðgerðir í orku­málum.

Hvernig ertu stemmdur fyrir afgangnum af kjör­tíma­bil­inu?

„Þetta er erfitt,“ svarar Bjarni. „Þetta er mjög flókin staða. Þetta er mikil brekka fyrir alla stjórn­ar­flokk­ana sem við horfum upp á í dag. Það verður að horfast í augu við það og bregð­ast við. Við þurfum bæði að gera það sem rík­is­stjórn og við þurfum að gera það, í mínu til­viki, sem flokkur – vegna þess að það stytt­ist í kosn­ingar.“ 

 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár