Guðmundur Ingi vill félagshyggjustjórn með VG innanborðs

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, vill að næsta rík­is­stjórn verði mynduð frá miðju til vinstri með Vinstri græn inn­an­borðs. Í ræðu sinni á setn­ingu lands­fundar VG gagn­rýndi hann bæði Við­skipta­ráð Íslands og Morg­un­blaðið fyrir að tala skipu­lega niður mennta­kerfið.

Guðmundur Ingi vill félagshyggjustjórn með VG innanborðs

Ífor­manns­ræðu sinni við setn­ingu lands­fundar Vinstri grænna síð­degis dag sagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, að hann vildi að næsta rík­is­stjórn yrði sterk félags­hyggju­stjórn. Hann vill að stjórnin verði mynduð frá miðju til vinstri og hafi Vinstri græn inn­an­borðs. 

„Í slíkri stjórn væri hægt að taka enn stærri skref en við höfum tekið í vel­ferðar- og mennta­málum og í umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­málum. Ísland þarf á slíkri stjórn að halda og kannski aldrei meira en nú,“ sagði hann. 

Guð­mundur Ingi sagð­ist vita að stjórn­ar­sam­starf VG, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hvíldi þungt á fólki. „Og eðli­lega. Eins og þið þekkið mæta vel var stofnað til þess í upp­hafi eftir að póli­tískt gjörn­inga­veður hafði gengið yfir þjóð­ina.“

Þá spurði hann upp­hátt hvort þau þrjú stjórn­mála­öfl sem skip­uðu rík­is­stjórn­ina myndu vinna aftur saman eftir næstu kosn­ingar. „Svarið er held ég flestum aug­ljóst,“ segir hann.

Þörf fyrir náttúruverndarpólitík

Guð­mundur Ingi sagði aug­ljóst að þörf væri fyrir kraft­mikla nátt­úru­vernd­arpóli­tík, líkt og Vinstri græn stund­uðu. Ástæðuna væri hægt að finna í orð­ræðu ýmissa stjórn­mála­afla um gríð­ar­legan orku­skort. Nefndi hann þar Sam­fylk­ing­una og Viðreisn sem dæmi. 

„Því miður hefur kap­ít­alist­unum tek­ist að rugla umræð­una alveg stór­kost­lega og telja fólki trú um að sama­sem­merki sé á milli lofts­lags­mála og nýrra virkj­ana, eða grænnar orku. En þetta er rangt. Við þurfum ekki alla þessa orku,“ sagði Guð­mundur Ingi. Hann þvertók þó ekki fyrir að virkja þyrfti, en þar þyrfti að fara var­lega. 

„Hér er rými fyrir umhverf­is­vernd­ar­hreyf­ingu að stíga inn af afli og festu. Einmitt til að mæta ein­földun og tala gegn grímu­lausum hags­muna­öflum sem smætta heilan mála­flokk niður í tvö orð: Græna orku.“

Gagnrýndi Viðskiptaráð og Morgunblaðið

Guð­mundur ítrek­aði að VG höfn­uðu frek­ari einka­væð­ingu í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerf­inu og upp­skar við það mikið lófatak við­staddra. Þá ættu grunn­inn­viðir og mennta­kerfið ekki að vera í eigu einka­að­ila, heldur hins opin­bera.

„Að umræð­unni um mennta­mál und­an­farið, þar sem Við­skipta­ráð hefur beitt sér af þunga. Bendir það kannski til þess að þar eygi menn gróða­von?“ segir Guð­mundur. Hann segir að mennta­kerfið, og grunn­skóla­kerfið sér­stak­lega, væri skipu­lega talað niður, og þar hefði Morg­un­blaðið for­ystu. „Gefið í skyn að það sé ónýtt, og óstjórn ríki. Það væri þá aldrei í þeim til­gangi að hvetja til einka­væð­ingar,“ sagði Guð­mundur Ingi. 

Undir lok ræðu sinnar þakk­aði starf­andi for­mað­ur­inn fyrir stuðn­ing­inn sem hann hefði fengið, það hefði verið heiður að gegna emb­ætt­inu. „Við eigum mikið inni kæru félagar, en við eigum líka langan veg fyrir höndum að öðl­ast aukið traust og trú fólks á okkur og því sem við stöndum fyrir.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár