Formaður VG styður Svandísi til formanns

Starf­andi for­maður VG, Guð­mundur Ingi, gefur kost á sér til emb­ættis vara­for­manns og lýsir yfir stuðn­ingi við Svandísi Svav­ars­dóttur sem næsti for­maður. Jódís Skúla­dóttir til­kynnti einnig í dag um fram­boð sitt til vara­for­manns. Ferill þeirra innan hreyf­ing­ar­innar er tölu­vert ólíkur.

Formaður VG styður Svandísi til formanns
Guð­mundur Ingi ætlar ekki að gefa kost á sér til for­manns en vill aftur verða vara­for­maður VG Mynd: Golli

 


Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, starf­andi for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, ætlar ekki að bjóða sig fram til for­manns. Hann lýsir yfir stuðn­ingi við Svandísi Svav­ars­dóttur inn­við­a­ráð­herra sem næsta for­mann flokks­ins og gefur kost á sér sem vara­for­maður. 

Lands­fundur VG verður hald­inn í Reykja­vík helg­ina 4.-6. októ­ber og þá verður nýr for­maður kjör­inn. 

Guð­mundur Ingi tók við sem for­maður þegar Katrín Jak­obs­dóttir, þáver­andi for­maður, sagði af sér og gaf kost á sér til emb­ættis for­seta Íslands. Þangað til hafði Guð­mundur Ingi verið vara­for­maður. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hefur hann þreifað fyrir sér vegna mögu­legt for­manns­fram­boðs en hann hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í það emb­ætti. 

Svandís Svav­ars­dóttir hefur verið orðuð við for­manns­emb­ættið eftir brott­hvarf Katrínar en hún hefur ekki opin­ber­lega stað­fest að hún ætli að bjóða sig fram. Sá orðrómur fær þó byr undir báða vængi nú þegar starf­andi for­maður lýsir yfir stuðn­ingi við hana. 

Í færslu sem Guð­mundur Ingi birti á Facebooksíðu sinni nú síð­degis segir hann það hafa verið heiður að leiða hreyf­ing­una síðan í vor. „Ég hef hins vegar tekið þá ákvörðun að bjóða mig ekki fram til for­manns að þessu sinni. Ég hef sinnt þessu hlut­verki af auð­mýkt en tel þessa ákvörðun rétta. Engum treysti ég betur til að leiða hreyf­ing­una okkar að loknum lands­fundi en Svandísi Svav­ars­dóttur og ég hef greint henni frá þeirri afstöðu minni,“ segir Guð­mundur Ingi. 

Hann seg­ist stoltur af mörgu sem VG hafi áorkað undir sinni for­ystu „sér­stak­lega fjöl­mörgum mik­il­vægum þing­málum sem við kláruðum í vor, eins og breyt­ingum á örorku­líf­eyr­is­kerf­inu, mann­rétt­inda­stofnun og fjöl­mörgum kjara­samn­ings­tengdum málum sem munu auka jöfnuð og rétt­læti í sam­fé­lag­inu,“ segir hann.

Í færsl­unni tekur hann fram að hann sé með þessu alls ekki að hætta í stjórn­málum: „Ég mun áfram bjóða fram krafta mína sem vara­for­maður hreyf­ing­ar­innar og odd­viti VG í Kraganum. Ég brenn fyrir umhverf­is­málum, mann­rétt­indum og félags­legum áherslum og vil áfram vinna þeim bar­áttu­málum braut­ar­gengi í íslensku sam­fé­lagi.“

Jódís Skúla­dóttir þing­maður til­kynnti einnig í dag að hún gæfi kost á sér til emb­ættis vara­for­manns VG. Hún skrifar á Facebook að hún telji að stefna VG standi fyrir sínu og það sé kjör­inna full­trúa að fram­fylgja henni. 

 „Ég geng inn á lands­fund til að hlusta á félaga mína alls staðar af land­inu, eiga þar opin­skátt og heið­ar­legt sam­tal um stöð­una sem við erum nú í og taka sam­eig­in­legar ákvarð­anir um næstu skref. Ég býð fram mína krafta til að starfa í þágu stefnu VG og tel að íslenskt sam­fé­lag þurfi á öfl­ugri vinstri hreyf­ingu að halda sem talar máli nátt­úru, friðar og kven­frelsis í hví­vetna. Og lætur verkin tala.

Ég von­ast eftir stuðn­ingi í emb­ætti vara­for­manns og hljóti ég braut­ar­gengi mun ég leggja ríka áherslu á innra starf VG. Við ætlum okkur að fara í ræt­urnar og þær liggja hjá félögum okkar um allt land og þeim við­fangs­efnum sem við blasa, jafnt í nær­sam­fé­lag­inu sem á alþjóða­vett­vangi,“ segir Jódís. 

Ferill þeirra Guð­mundar Inga og Jódísar innan flokks­ins er tölu­vert ólíkur. Guð­mundur Ingi kom inn sem fagráð­herra umhverf­is­mála árið 2017 í fyrri rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur og hefur að und­an­förnu sem starf­andi for­maður komið beint að ýmsum umdeildum málum í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi hreyf­ing­ar­innar með Sjálf­stæð­is­flokki og Framsókn, á meðan Jódís var kjörin þing­maður árið 2021 og hefur gagn­rýnt for­yst­una opin­ber­lega.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár