Streymi frá útför Bryndísar Klöru

Bryndís Klara Birg­is­dóttir, 17 ára stúlka sem lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala í lok ágúst eftir hnífstungu­árás á Menn­ing­arnótt, verður jarð­sungin frá Hall­gríms­kirkju klukkan þrjú síð­degis í dag. Heim­ildin birtir streymi frá útför­inni með leyfi fjöl­skyldu Bryn­dísar Klöru.

Jarðarför Hér er aðgengilegt myndskeið frá jarðarför Bryndísar sem fram fór síðdegis í dag.

Bryndís Klara Birg­is­dóttir var 17 ára og sex mán­aða gömul þegar hún lést á gjör­gæslu­deild Land­spít­ala 30. ágúst síð­ast­lið­inn. Hún lét eftir sig for­eld­rana Iðunni Eiríks­dóttur og Birgi Karl Ósk­ars­son, sem og Vigdísi, átta ára gamla systur sína.

Bryndís var jarð­sungin við athöfn í Hall­gríms­kirkju í dag. Séra Örn Bárður Jónsson og séra Guðni Már Harð­ar­son jarð­sungu Bryndísi en org­anisti var Gunnar Gunn­ars­son. 

Sigríður Thorlacius söng og Karla­kór­inn Fóst­bræður, undir stjórn Árna Harð­ar­sonar, sömu­leiðis. 

Hér að ofan má nálg­ast streymi frá athöfn­inni. 

Mikill fjöldi minnist Bryndísar Klöru

Íslend­ingar voru slegnir eftir and­lát Bryn­dísar sem bar að eftir hnífstungu­árás sem hún varð fyrir á Menn­ing­arnótt. Þrír eru með rétt­ar­stöðu grun­aðs vegna árás­ar­innar, þar á meðal 16 ára drengur sem tal­inn er tengj­ast henni með beinum hætti. 

Bryn­dísar hefur verið minnst víða um land, meðal ann­ars með því þegar mennta­skóla­nem­endur og fleiri hafa klætt sig í bleikt í minn­ingu hennar. Þá mættu ein­hver hund­ruð á minn­ing­ar­at­höfn um Bryndísi um síð­ustu helgi. 

Minningarsjóður og ákall eftir öruggara samfélagi

Sér­stakur sjóður hefur verið stofn­aður í minn­ingu Bryn­dísar. 

„Sjóð­ur­inn mun styðja við verk­efni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla sam­fé­lag þar sem sam­kennd og sam­vinna eru í for­grunni. Sjóð­ur­inn mun ein­beita sér að fræðslu, rann­sóknum og vit­und­ar­vakn­ingu til að koma í veg fyrir að slíkar hörm­ungar end­ur­taki sig,“ sagði í til­kynn­ingu um sjóð­inn.

Þá hafa for­eldrar og aðstand­endur Bryn­dísar kallað eftir því að fólk velji „líf en ekki hníf“.

„Við biðlum til allra sem bera hnífa að skila þeim til lög­regl­unn­ar. For­eldr­ar Bryn­dís­ar óska þess að dauði henn­ar verði til þess að vopna­b­urður heyri sög­unni til og kær­leik­ur­inn verði eina vopnið. Stönd­um sam­an fyr­ir ör­ugg­ara og betra sam­fé­lagi.“  

ÁstBryndís Klara ásamt for­eldrum sínum. Myndin er á meðal þeirra sem birt­ust af Bryndísi umvaf­inni ást­vinum sínum í sálma­skránni í dag.

Minn­ing­ar­sjóður Bryn­dísar Klöru

Kennitala: 430924-0600

Banka­reikn­ingur: 515-14-171717

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár