Ljós í myrkrinu sem málið er

„Við fundum að það var alveg full þörf fyrir þetta og fólk þakk­látt fyrir að geta veitt sorg­inni far­veg,“ segir sr. Guðni Már Harð­ar­son, prestur í Linda­kirkju, um minn­ing­ar­stund sem haldin var í kirkj­unni fyrir Bryndísi Klöru Birg­is­dóttur sem lést eftir hnífstungu­árás á Menn­ing­arnótt.

Ljós í myrkrinu sem málið er
Minning Frá minn­ing­ar­at­höfn­inni í Linda­kirkju í dag. Mynd: Golli

Stöðugt birt­ust ný and­lit í Lind­ar­kirkju í dag þar sem minn­ing­ar­stund fyrir Bryndísi Klöru Birg­is­dóttur, sem lést eftir hnífa­árás á menn­ing­arnótt, var haldin. Þar tendraði fólk kerti í minn­ingu ungu stúlkunnar, sumir fóru með bæn eða sátu um stund og hlust­uðu á eft­ir­læt­is­tón­list­ina hennar. Á vegg í kirkj­unni var myndum af Bryndísi varpað. Bestu vin­konur hennar komu að val­inu á mynd­unum og tón­list­inni. 

„Það voru margir sem komu við. Fólk staldr­aði við frá því að vera eina til tvær mín­útur upp í ein­hverja klukku­tíma,“ segir Guðni Már Harð­ar­son, prestur í Linda­kirkju. „Við fundum að það var alveg full þörf fyrir þetta og fólk þakk­látt fyrir að geta veitt sorg­inni far­veg.“

Bæði nánir ætt­ingjar og vinir Bryn­dísar Klöru mættu á stund­ina en einnig fólk sem þekkti hana ekki per­sónu­lega en hafði sjálft orðið fyrir barns­missi. 

„Þetta er svo erfitt á margan hátt, það voru alls konar ástæður fyrir því að fólk kom en fyrst og fremst sam­hug­ur­inn,“ segir Guðni. 

Hver króna sjóðsins muni nýtast vel

Hann tekur undir með for­eldrum Bryn­dísar sem hafa kallað eftir því að vopna­burður heyri sög­unni til og að kær­leik­ur­inn verði að eina vopn­inu í sam­fé­lag­inu. Linda­kirkja hefur biðlað til ung­menna og ann­arra að skila hnífum til lög­regl­unnar. 

„Það er alltaf hægt að gera það. Það er hinn rétti far­vegur,“ segir Guðni. „Ef þetta getur orðið til þess að önnur fjöl­skylda þurfi ekki að fara í gegnum það sem þau ganga í gegnum núna og ef við horfum á kær­leik­ann sem eina vopnið þá er það eitt­hvert ljós í þessu myrkri sem þetta mál allt saman er.“

Minn­ing­ar­sjóð­ur Bryn­dísar Klöru, sem mun styðja við fræðslu, rann­sókn­ir og vit­und­ar­vakn­ingu, hef­ur ver­ið stofn­að­ur.

„Það á að vanda mjög til verka með það hvernig verður úthlutað. Það eru svo margir sem spyrja: Get ég eitt­hvað gert? Þá er gott að geta bent á þennan minn­inga­sjóð,“ segir Guðni. „Hver króna mun nýt­ast vel og vera vel valin.“

Framlög má leggja inn á reikn­ing 0515-14-171717, kennitala 430924-0600.

Forsetinn kallar eftir þjóðarátaki

Halla Tóm­as­dóttir sagði í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar fyrir helgi að brýnt væri að ráð­ist yrði að rót vand­ans. Hún kall­aði eftir þjóð­ar­átaki „þar sem við svörum ákalli föður Bryn­dísar Klöru og sam­ein­umst öll um að gera kær­leik­ann að eina vopn­inu í okkar sam­fé­lagi.“

Halla biðl­aði jafn­framt til fólks að leggja minn­ing­ar­sjóði Bryn­dísar Klöru lið.

„Ég tel fátt mik­il­væg­ara en að unga fólkið okkar fái sjálft að móta hug­myndir um hvernig við gerum betur og er að beita mér – með þeim og fyrir þau. Ég hvet ykkur að lokum til að hlusta á þau, læra af þeim og hvetja þau og styðja með mennsku og kær­leik. Ég von­ast til að sjóð­ur­inn geti stutt við þau í þeirri við­leitni og trúi því að okkar sam­fé­lag muni koma saman á sorg­ar­stundu, draga línu í sand­inn og stefna í betri átt. Við getum og verðum að vera breyt­ingin sem við viljum og þurfum að sjá í okkar sam­fé­lagi.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár