Vill að kærleikurinn sé eina vopnið í samfélaginu

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, segir að þjóð­ar­á­tak þurfi til að svara ákalli Birgis Karls Ósk­ars­sonar, föður Bryn­dísar Klöru. Öll þurfum við að sam­ein­ast um að gera kær­leik­ann að eina vopn­inu í okkar sam­fé­lagi, segir for­seti Íslands.

Vill að kærleikurinn sé eina vopnið í samfélaginu
Talar fyrir þjóð­ar­átaki Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, telur brýnt að ráð­ist verði að rótum vand­ans og talar fyrir þjóð­ar­átaki Mynd: Golli

Halla Tóm­as­dóttir, for­seti Íslands, seg­ist í skrif­legu svari til Heim­ild­ar­innar vilja koma þeim skila­boðum á fram­færi að ákall um málm­leit­ar­tæki og sýni­lega vopn­aða lög­gæslu séu „við­brögð við birt­ing­ar­mynd dýpri vanda“.

„Forseti telur brýnt að ráð­ist verði að rótum vand­ans og talar fyrir þjóð­ar­átaki þar sem við svörum ákalli föður Bryn­dísar Klöru og sam­ein­umst öll um að gera kær­leik­ann að eina vopn­inu í okkar sam­fé­lagi,“ segir í svar­inu.

Una Sig­hvats­dóttir, sér­fræð­ingur hjá emb­ætti for­seta Íslands, segir að and­leg líðan ungs fólks sé nýjum for­seta afar hug­leikin. Hún hafi enda lagt mikla áherslu á það í kosn­inga­bar­átt­unni og muni gera áfram í emb­ætti for­seta. 

Halla segist hrygg

Sunnu­dag­inn 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn flutti Halla Tóm­as­dóttir ávarp á opn­un­ar­við­burði átaks­ins Gulur sept­em­ber, en það er sam­vinnu­verk­efni stofn­ana og félaga­sam­taka sem vinna saman að geð­rækt og sjálfs­vígs­for­vörnum. 

„Okkar brýn­ustu verk­efni“ Halla hélt opn­unará­varp geð­rækt­ar­átaks­ins Gulur sept­em­ber.

Í ávarp­inu sagði Halla meðal ann­ars:

„Ég stend hér með ykkur í dag og ég finn til; ég er hrygg í hjarta vegna þeirra atburða sem hafa orðið í okkar sam­fé­lagi síð­ustu daga og vikur. Hjarta mitt er hjá öllum þeim sem nú eiga um sárt að binda – fjöl­skyldum, vinum og sam­fé­lögum sem eru harmi slegin og buguð af sorg. Það er við­tekin venja að lesa lífs­gæði úr hag­tölum. Þær eru sann­ar­lega mik­il­vægar, en aðeins brot af miklu stærri mynd. Ef van­líðan, til­gangs­leysi, ein­mana­leiki, fíkn og ofbeldi fara vax­andi er við stóran vanda að etja. Þessi mál eru raunar að mínu mati okkar brýn­ustu verk­efni – sem við verðum að leysa saman.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár