„Við hjá Ice Pic Journeys hörmum mjög það slys sem átti sér stað í Breiðamerkurjökli síðastliðinn sunnudag í ferð á okkar vegum,“ segir í tilkynningu sem forsvarsmenn fyrirtækisins sendu frá sér nú síðdegis. Er þar vísað í alvarlegt slys sem varð í íshellaferð þar sem einn ferðamaður lést og annar slasaðist alvarlega.
Stofnendurnir Mike og Ryan Ryan Matthew Newburn hafa gefið sig út fyrir að vera frumkvöðlar þegar kemur að íshellaferðum að sumarlagi á Íslandi, nokkuð sem hefur verið talið varasamt. Þeir hafa ekki tjáð sig við fjölmiðla þar til yfirlýsingin var send út.
Vinna áfram með lögreglu og stjórnvöldum
Þar segir ennfremur:
„Hugur okkar er hjá aðstandendum þess sem lést og öllum þeim sem lentu í slysinu, fjölskyldum þeirra og ástvinum sem takast á við krefjandi aðstæður nú og á komandi tímum. Það er erfitt að ímynda sér þann sársauka sem slíkt áfall og missir veldur.
Við leggjum …
Athugasemdir