Konan útskrifuð af sjúkrahúsi og rannsókn á lokastigi

Konan sem slas­að­ist þegar íshellir hrundi á Breiða­merk­ur­jökli hefur verið útskrifuð af sjúkra­húsi. Unnusti hennar lést í slys­inu. Enginn er með rétt­ar­stöðu grun­aðs í mál­inu og er rann­sókn þess á loka­stigi að sögn lög­reglu.

Konan útskrifuð af sjúkrahúsi og rannsókn á lokastigi
Frá slys­stað á Breiða­merk­ur­jökli Mynd: Landsbjörg

Sveinn Kristján Rún­ars­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá lög­regl­unni á Suð­ur­landi, segir að rann­sókn á slys­inu á Breiða­merk­ur­jökli sé á loka­stigi. Maður frá Banda­ríkj­unum lést í slys­inu og unnusta hans slas­að­ist. Hún hefur verið útskrifuð af sjúkra­húsi sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar en greint var frá því skömmu eftir slysið að konan væri barns­haf­andi.  

23 ferða­menn voru í íshella­ferð­inni sunnu­dag­inn 25. ágúst þegar slysið varð en ferðin var á vegum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Ice Pic Journeys. 

Sveinn Kristján segir að búið sé að taka skýrslur af „hátt í tutt­ugu manns“.  Hann segir að grunn­skýrslur hafi verið teknar strax eftir slysið enda hafi flest fólkið sem ræða þurfti við verið ferða­menn sem stopp­uðu stutt á Íslandi.

Björg­un­ar­að­gerðir á Breiða­merk­ur­jökli

„Við sendum fólk úr rann­sókn­ar­deild­inni okkar austur þennan dag og mikið af skýrsl­unum voru því gerðar á staðnum,“ segir hann og bætir við að lög­regla hafi einnig „verið í góðum sam­skiptum við fyr­ir­tækið sem skipu­lagði ferð­ina, meðal ann­ars fengið öll gögn sem við köll­uðum eftir.“

Í kjöl­far slyss­ins var skip­aður starfs­hópur sem í sitja full­trúar frá fjórum ráðu­neytum. Hópurinn á að fara yfir örygg­is­mál í jökla­ferðum og skoða sér­stak­lega hvað fór úrskeiðis á Breið­ar­merk­ur­jökli þegar slysið varð. 

Þá óskaði Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra í síð­ustu viku eftir til­nefn­ingum í starfs­hóp um örygg­is­mál í ferða­þjón­ustu. Honum er falið að skoða með heild­stæðum hætti reglu­verk sem snýr meðal ann­ars að öryggi ferða­manna og eft­ir­lit með því, upp­lýs­inga­gjöf til ferða­manna, skrán­ingu slysa og óhappa, áhættu­mat á áfanga­stöðum, fjar­skipta­sam­band um landið og við­bragðs­tíma við­bragðs­að­ila.   

 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Banaslys á Breiðamerkurjökli

Engu munaði að stórslys yrði í Kötlujökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryllingsmynd“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Engu mun­aði að stór­slys yrði í Kötlu­jökli 2018: „Mér leið eins og ég væri í hryll­ings­mynd“

Jón­as Weld­ing Jónas­son, fyrr­ver­andi leið­sögu­mað­ur, forð­aði 16 við­skipta­vin­um sín­um naum­lega frá því að lenda und­ir mörg­um tonn­um af ís í ís­hella­ferð í Kötlu­jökli sumar­ið 2018. „Það hefði eng­inn lif­að þarna af ef við hefð­um ver­ið þarna leng­ur. Þetta sem hrundi voru tug­ir tonna." Hann segir sum­arið ekki rétta tím­ann til að fara inn í íshella, eins og nýlegt banaslys á Breiða­merk­ur­jökli sýnir.
„Sem ráðherra og manneskju þykir mér þetta afskaplega leitt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Sem ráð­herra og mann­eskju þykir mér þetta afskap­lega leitt“

Lilja Alfreðs­dóttir, ráð­herra ferða­mála, segir að koma hefði mátt í veg fyrir slysið á Breiða­merk­ur­jökli. „Það var búið að vara við þessu og ekki gert meira með það.“ Hún seg­ist búin að kanna líðan kon­unnar sem slas­að­ist og missti unnusta sinn í slys­inu og koma á fram­færi skila­boðum um að yfir­völd séu boðin og búin að aðstoða hana eftir fremsta megni.
„Það sem gerðist á sunnudaginn er á margan hátt óvenjulegt“
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Það sem gerð­ist á sunnu­dag­inn er á margan hátt óvenju­legt“

Banaslys eins og það sem varð á Breiða­merk­ur­jökli um síð­ustu helgi eru ekki mjög algeng, að mati upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjargar. Hann segir björg­un­ar­sveit­irnar enn vel í stakk búnar til þess að bregð­ast við óhöppum og slysum þrátt fyrir fjölgun ferða­manna og að slíkum til­vikum hafi ekki fjölgað í takt við vax­andi ferða­manna­straum.
Hræðilegur atburður sem ýtir við okkur
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

Hræði­legur atburður sem ýtir við okkur

Ferða­mála­stjóri telur tíma­bært að koma aftur böndum á þann fjölda sem fer upp á Vatna­jökul hverju sinni. Álags­stýr­ing tíðk­að­ist fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur en hún var felld úr gildi í far­aldr­inum. Banaslys varð á jökl­inum um síð­ustu helgi en örygg­is­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins sem fór ferð­ina lá ekki fyrir hjá Ferða­mála­stofu, enda er inn­lagnar slíkrar áætl­unar ekki kraf­ist við umsókn um leyfi. Það fyr­ir­komu­lag er nú til end­ur­skoð­unar.
„Við vitum að þetta er hættulegt“ – en enginn ber ábyrgðina
FréttirStjórnleysi í ferðaþjónustu

„Við vitum að þetta er hættu­legt“ – en eng­inn ber ábyrgð­ina

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veð­ur­stof­unni og drögum að áhættu­mati úr skýrslu Jarð­vís­inda­stofn­unar hefðu íshella­ferðir átt að vera bann­aðar dag­inn sem banaslys varð á Breiða­merk­ur­jökli, sökum hita­stigs. Hug­myndir um bætt öryggi ferða­manna hafa strandað, áhættu­mat hefur ekki verið fram­kvæmt og hver bendir á annan þegar kemur að end­an­legri ábyrgð. Enda er engin stök stjórn­sýslu­stofnun sem ber ábyrgð á öryggi ferða­manna hér á landi.
„Hugur okkar er hjá aðstandendum þess sem lést og öllum þeim sem lentu í slysinu“
FréttirBanaslys á Breiðamerkurjökli

„Hugur okkar er hjá aðstand­endum þess sem lést og öllum þeim sem lentu í slys­inu“

Stofn­endur Ice Pic Journeys hafa sent frá sér til­kynn­ingu þar sem þeir harma banaslysið sem varð í ferð á þeirra vegum um helg­ina á Breiða­merk­ur­jökli. „Við lítum málið alvar­legum augum og munum halda áfram að vinna náið með lög­reglu og yfir­völdum til að tryggja að málið verði rann­sakað af fyllstu kost­gæfni,“ segir þar.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár