Meistaraverkið friðað

Eftir mikla óvissu mán­uðum saman hefur SAS hót­elið við Vester­brogade, eitt þekktasta kenni­leiti Kaup­manna­hafnar, verið friðað. Húsið er talið merkasta verk hins heims­fræga arki­tekts Arne Jacobsen. Eig­end­urnir ætl­uðu að gera miklar breyt­ingar á útliti húss­ins en frið­lýs­ingin kemur í veg fyrir það.

Árið 1954 til­kynntu stjórn­endur SAS að flug­fé­lagið hygð­ist reisa 22 hæða hótel á horni Vester­brogade og Hammerichsgade. Mörgum leist ekki vel á þessa hug­mynd og spurt var hvort virki­lega ætti að klessa þarna niður kassa­laga háhýsi að amer­ískri fyr­ir­mynd og það á þessum áber­andi stað, eins og það var orðað. Þegar greint var frá því að Arne Jacobsen myndi teikna húsið þótti það góðs viti, hann var á þessum tíma meðal þekkt­ustu arki­tekta Dan­merkur og reyndar orð­inn þekktur víða um lönd fyrir verk sín. Jafn­framt var greint frá því að Arne Jacobsen myndi ekki ein­ungis teikna húsið sjálft heldur líka öll hús­gögn og borð­búnað, lampa og ljós, já og ösku­bakk­ana, sem þá voru taldir nauð­syn­legur hluti hús­bún­aðar. Meðal hús­gagn­anna voru stól­arnir Eggið og Svan­ur­inn sem enn eru fram­leiddir og selj­ast grimmt, eins og sagt er. 

Hönn­uð­ur­innÞegar greint var frá því að Arne Jacobsen myndi teikna hóitelið þótti það góðs viti, hann var á þessum tíma meðal þekkt­ustu arki­tekta Danmerku og reyndar orð­inn þekktur víða um lönd fyrir verk sín.

Gler og málmur                                                                                                      

Í við­tali sagði arkiktekt­inn að hót­elið yrði með léttum útveggjum úr gleri og málmi, líkt og víða mátti sjá í vest­rænum borgum, á eft­ir­stríðs­ár­unum og reyndar miklu lengur. Hæðirnar eins og áður sagði 22, tvær neðstu hæð­irnar eins konar sökkul­bygg­ing. Fyrir utan glugg­ana yrði sökkul­bygg­ingin klædd grænum emal­eruðum stál­p­lötum. Allt gler í hús­inu yrði í mildum grænum lit, sagði arki­tekt­inn, húsið um það bil 70 metra hátt og her­bergin 260.

Et pragtfuldt hotel

Þegar hót­elið var tekið í notkun árið 1960 fékk það nafnið SAS Royal Hotel. Danskir fjöl­miðlar greindu ítar­lega frá þess­ari nýju glæsi­bygg­ingu, eins og kom­ist var að orði. Birtar voru myndir af vel búnum her­bergjum og veislu­sölum en engan grun­aði kannski að hús­gögnin og hót­el­bygg­ingin sjálf, yrðu klassík í danskri hönn­un­ar­sögu.

Í bygg­inguÁkveðið var að ráð­ast í bygg­ingu SAS-hót­els­ins árið 1954 og það var tekið í notkun árið 1960.

Margt breytt

Eins og áður var getið eru her­bergin 260. Einungis eitt þeirra, númer 606, er óbreytt frá upp­hafi. Hinum hefur öllum verið breytt, og margir hafa orðið til að gagn­rýna þær breyt­ingar. Hluti jarð­hæð­ar­innar með glæsi­legum bar er óbreytt og þar eru hús­gögn Arne Jacobsen, meðal ann­ars Eggið og Svan­ur­inn. Ytra útlit húss­ins var hins vegar óbreytt til árs­ins 2017.

Grænt ekki sama og grænt

Eins og fyrr var getið er neðsti hluti hót­els­ins, sökk­ull­inn, emal­er­aðar plötur, grænar að lit. Árið 2017 ákvað núver­andi eig­andi hót­els­ins, Weenasgruppen, að láta mála plöt­urnar. Nýi lit­ur­inn er vissu­lega grænn en ekki eins og sá upp­haf­legi, þetta gagn­rýndu margir. Umhverfis- og eft­ir­lits­yf­ir­völd borg­ar­innar gerðu engar athuga­semdir. Í við­tali sem tekið var í tengslum við breytta græna lit­inn sagði Lars Weenas for­stjóri Weenasgrupen að brátt yrði komið að miklu við­haldi á öllu ytra byrði húss­ins. Danskur arki­tekt sagði af þessu til­efni að viss­ara væri að fylgj­ast vel með fyr­ir­hug­uðum við­gerðum. Leið nú og beið.

Hefði gjörbreytt ásýnd hússins

Fyrir ári síðan, nánar til­tekið 2. sept­em­ber 2023, birt­ist á vef­síðum margra danskra fjöl­miðla bréf frá banda­ríska arki­tekt­inum Michael Sheridan. Hann er þekktur á sínu sviði og sér­stakur áhuga­maður um nor­ræna bygg­inga­list og einkum og sér­ílagi danska arki­tekt­inn Arne Jacobsen.

Ástæða þess að Michael Sheridan ákvað að stinga niður penna var sú að eig­endur hót­els­ins höfðu látið útbúa eins­konar sýn­ing­ar­vegg­bút (mockup) sem sýndi hvernig hót­elið myndi líta út eftir þær breyt­ingar og end­ur­nýjun sem eig­end­urnir höfðu í huga. Ótti þeirra sem lýst höfðu áhyggjum reynd­ist ekki ástæðu­laus, glugga­póst­arnir mun breið­ari en hinir upp­runa­legu og ekki í sama lit. Útlit húss­ins yrði gjör­breytt.

Arne Jacobsen hafði á sínum tíma lagt mikla áherslu á að póst­arnir yrðu mjög mjóir.

Í áður­nefndu bréfi frá Michael Sheridan var­aði hann við því að ef útliti húss­ins yrði breytt, eins og sýn­ing­ar­bút­ur­inn gæfi til kynna, yrði  búið að stór­skemma þetta glæsi­lega hús, eina stærstu fjöðr­ina í danskri bygg­inga­list.

Lögðu til friðun

Margir urðu til að taka undir orð Michael Sheridan og lands­sam­tökin By& Land Danmark lögðu til að hót­elið yrði friðað. Samtökin eru ráð­gef­andi fyrir stjórn­völd varð­andi friðun húsa og ann­arra mann­virkja og umhverfis.

Eigandi húss­ins, Weenasgruppen, lýsti sig and­vígan hug­myndum um friðun, erfitt væri að reka hótel ef engu mætti breyta og benti á að mörgu í SAS hót­el­inu hefði verið breytt gegnum árin þótt útlitið væri hið upp­runa­lega, tals­maður eig­and­ans nefndi ekki grænu máln­ing­una.

Málið kom nú til kasta ráð­gjaf­ar­nefndar menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins (Det Særlige Bygn­ings­syn) og 18. jan­úar síð­ast­lið­inn birti nefndin álit sitt þar sem mælt var með friðun húss­ins, að utan og innan. Eigandi hót­els­ins sagði í umsögn sinni (sem er lög­bund­inn réttur) geta fall­ist á að ytra byrði húss­ins yrði friðað en gæti ekki sam­þykkt inn­an­húss­friðun, nema að tak­mörk­uðu leyti og nefndi í því sam­bandi þann hluta jarð­hæð­ar­innar, sem hefur aldrei verið breytt.

Tilkynnt um friðun

14. ágúst síð­ast­lið­inn sendi Slots- og Kult­ur­styrel­sen, sem er deild í Menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu frá sér til­kynn­ingu. Þar kom fram að ákveðið hefði verið að friða SAS hót­elið, bæði að utan og innan. Hvort, og þá að hve miklu leyti þeim hluta hót­els­ins, t.d her­bergjum sem breytt hefur verið, verði færður í upp­runa­legt horf er ókomið í ljós.

Þess má að lokum geta að eig­endur frið­aðra bygg­inga geta sótt sér­staka styrki til við­halds og end­ur­nýj­unar til Menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins og um frið­aðar bygg­ingar gilda sér­stakar reglur varð­andi skatta og gjöld.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár