Kenni­leiti SAS hót­elið var allt sér­teiknað þegar það var byggt á sínum tíma. Mynd: AFP

Á að eyðileggja SAS hótelið?

SAS hót­elið við Vester­brogade í Kaup­manna­höfn er meðal þekkt­ustu verka arki­tekts­ins Arne Jacobsen og eitt helsta kenni­leiti borg­ar­innar. Nú eru fyr­ir­hug­aðar miklar end­ur­bætur á hót­el­inu en hug­myndir eig­anda þess mæl­ast illa fyrir. Myndu eyði­leggja meist­ara­verkið segja sumir.

Þegar danskir fjöl­miðlar fluttu af því fréttir árið 1954 að SAS flug­fé­lagið hygð­ist reisa „háhýsi“ eins og það var orðað, á horni Vester­brogade og Hammerichsgade í Kaup­manna­höfn, leist mörgum ekki á blik­una. Átti virki­lega að byggja nútíma­lega kassa­laga him­in­háa bygg­ingu að amer­ískri fyr­ir­mynd, eins og fjöl­miðlar komust að orði, á þessum áber­andi stað í borg­inni? Bót í máli þótti þó að það var ekki ein­hver „Jón úti í bæ“ sem hafði verið feng­inn til verks­ins heldur myndi arki­tekt­inn Arne Jacobsen (1902–1971) teikna húsið. Hann var löngu kom­inn í hóp þekkt­ustu arki­tekta í Danmörku og frægð hans reyndar borist langt út fyrir danska land­steina.

Hönn­uð­ur­innArne Jacobsen vildi að glerið í bygg­ing­unni yrði í mjög mildum grænum lit.

Eftir seinni heims­styrj­öld­ina settu háhýsi með léttum útveggjum, úr gleri og málmi, svip sinn á margar vest­rænar borgir. „Og SAS hót­elið verður í þessum stíl,“ sagði arki­tekt­inn í við­tali. Hann sagði að glerið yrði í mjög mildum grænum lit. SAS hót­elið var ekki fyrsta bygg­ingin sem Arne Jacobsen teikn­aði þar sem gler og málmur léku stórt hlut­verk. Um sama leyti og til­kynnt var um hið fyr­ir­hug­aða hótel var verið að ljúka við bygg­ingu ráð­húss í sveit­ar­fé­lag­inu Rødovre skammt frá Kaup­manna­höfn. Þetta þriggja hæða ráð­hús, sem nú er friðað, teikn­aði Arne Jacobsen og stíll­inn er sá sami og á SAS hót­el­inu.

22 hæðir og allt sérteiknað

Á frétta­manna­fundi þar sem greint var frá hinni fyr­ir­hug­uðu bygg­ingu kom fram að Arne Jacobsen myndi ekki ein­ungis teikna húsið sjálft, hann myndi sömu­leiðis teikna öll hús­gögn og borð­búnað, lampa og ljós. Meðal hús­gagn­anna voru stól­arnir Eggið og Svan­ur­inn sem enn þá eru fram­leiddir og selj­ast eins og heitar lummur (eða jafn­vel betur!) og sömu sögu er að segja um lampa, ljós og hnífa­pör sem hönnuð voru fyrir hót­elið.

Á frétta­manna­fund­inum áður­nefnda kom fram að húsið yrði 22 hæðir, rúm­lega 70 metra hátt og her­bergin 260. Tvær neðstu hæð­irnar yrðu eins konar sökkul­bygg­ing, jarð­hæðin inn­dregin. Sökkul­bygg­ingin yrði, fyrir utan glugga, klædd grænum emal­eruðum stál­p­lötum.

Arkitektinn ánægður með útkomuna

Eftir að öll til­skilin leyfi voru fengin hófust bygg­inga­fram­kvæmd­irnar og hót­elið var tekið í notkun árið 1960 með pomp og prakt. Dönsku blöðin fjöll­uðu ítar­lega um þetta nýja „pragt­fulde hotel“ og sýndu myndir af veislu­sölum og her­bergjum sem öll voru búin hús­gögnum sem arki­tekt­inn hafði hannað. Sjálfur var Arne Jacobsen ánægður með útkom­una, hann vissi auð­vitað ekki þá að sumt sem hann hann­aði fyrir hót­elið, og húsið sjálft, yrði „klassík“ í danskri hönn­un­ar­sögu.

Einungis eitt her­bergi, númer 606, er óbreytt frá upp­hafi. Hinum hefur öllum verið breytt og gestir eiga þess ekki lengur kost að tylla sér í Eggið eða Svaninn til að láta þreyt­una líða úr sér. Ýmsir hafa, á liðnum árum, gagn­rýnt þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á her­bergj­unum en jarð­hæðin, með glæsi­legum bar, er óbreytt frá upp­hafi og hús­gögn Arne Jacobsen eru þar, meðal ann­ars Eggið áður­nefnda, og Svan­ur­inn. 

Nafnabreytingar

Þegar hót­elið var tekið í notkun árið 1960 fékk það nafnið SAS Royal Hotel. Árið 1994 var nafn­inu breytt í Radisson SAS Royal Hotel, þá hafði SAS keypt hluta­bréf í Radisson hót­el­keðj­unni. Árið 2009 seldi SAS hluta­bréfin og þá breytt­ist nafnið í Radisson Blu Royal Hotel.

Í bygg­inguÁkveðið var að ráð­ast í bygg­ingu hót­els­ins árið 1954 og það var tekið í notkun árið 1960.

Núver­andi eig­andi er norska Weenasgruppen og við þau eig­enda­skipti fékk hót­elið enn eitt nafnið, Radisson Royal Collection Hotel. Það nafn er ekki sér­lega þjált og þess vegna er hót­elið í dag­legu tali iðu­lega kallað SAS hót­elið. Og stafirnir þrír. SAS, efst á þeirri hlið hót­els­ins sem snýr að Vester­brogade, hafa lifað allar breyt­ingar af og eru, eins og í upp­hafi, upp­lýstir eftir að dimma tekur. 

Græna málningin 

Eins og áður var nefnt er neðsti hluti hót­els­ins, sökk­ull­inn, klæddur grænum emal­eruðum plötum. Árið 2017 lét núver­andi eig­andi, Weenasgruppen, mála plöt­urnar. Þær voru áfram grænar, en græni lit­ur­inn var ekki nákvæm­lega sá sami og á emaler­ing­unni. Margir urðu til að gagn­rýna þessa breyt­ingu. „Það er engu lík­ara en eig­and­inn hafi farið til máln­ing­ar­kaup­manns­ins á horn­inu og keypt máln­ingu á til­boði“ sagði kunnur arki­tekt og margir kollegar hans töl­uðu í svip­uðum dúr. 

Umhverfis- og eft­ir­lits­yf­ir­völd borg­ar­innar gerðu engar athuga­semdir við grænu máln­ing­una. Hún er reyndar farin að láta á sjá, hefur sums staðar flagnað og ann­ars staðar hefur vatn kom­ist undir máln­ing­una og myndað poka. 

Lars Weenas, for­stjóri Weenasgruppen, sagði í við­tali á þessum tíma að nauð­syn­legt yrði að ráð­ast í miklar við­gerðir á ytra byrði turns­ins áður en langt um liði. „Innan fárra ára, húsið er að verða 60 ára, glugg­a­ra­mm­arnir farnir að ryðga og víða er leki. Ekki óeðli­legt að við­gerða og end­ur­nýj­unar sé þörf“ sagði for­stjór­inn. „Vissara að fylgj­ast vel með því að húsið verði ekki eyði­lagt með þessum við­gerðum“ sagði arki­tekt í grein í dag­blað­inu Berl­ingske.

Fyrirhugaðar endurbætur harðlega gagnrýndar

Fyrir nokkrum dögum tóku þeir sem leið áttu fram­hjá SAS hót­el­inu við Vester­brogade eftir því að iðn­að­ar­menn voru að koma fyrir eins konar sýn­ing­ar­vegg­bút (mockup) á hót­el­inu. Vegg­bút­ur­inn sýnir hvernig veggir hót­elt­urns­ins munu líta út eftir end­ur­nýjun. Ótti þeirra sem lýst höfðu áhyggjum reynd­ist ekki ástæðu­laus, breyt­ingin er umtals­verð. Málm­ramm­arnir (póst­arnir) eru mun breið­ari en þeir núver­andi og ekki í sama lit. Arne Jacobsen lagði mikla áherslu á að ramm­arnir yrðu mjög mjóir. Hót­el­eig­and­inn fékk fyr­ir­tækið Dan-Alu til að hanna og útbúa sýn­ing­ar­vegg­bút­inn.

Í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske sagði verk­fræð­ingur Dan Alu að vissu­lega yrðu póst­arnir breið­ari en sagði jafn­framt að lit­ur­inn á póst­unum á sýn­ing­ar­vegg­bútnum væri ekki sá end­an­legi. Hann útskýrði jafn­framt að breyttar og auknar kröfur um ein­angrun og fleiri þætti gerðu að verkum að útlitið yrði ekki nákvæm­lega óbreytt. 

Borgin getur togað í handbremsuna

Danskir fjöl­miðlar, einkum dag­blöðin Berl­ingske og Politi­ken, hafa und­an­farna daga fjallað heil­mikið um hinar fyr­ir­hug­uðu end­ur­bætur og við­gerðir á hót­el­inu. Komið hefur fram að eig­endur hót­els­ins hafa verið í sam­bandi við tækni- og umhverf­is­nefnd borg­ar­innar varð­andi málið. Borgin getur ef svo ber undir komið í veg fyrir, eða stöðvað, fram­kvæmdir, „við getum togað í hand­brems­una,“ sagði Marcus Vestager, sem situr í tækni- og umhverf­is­nefnd­inni. Og bætti við að hann teldi mjög litlar líkur á að borgin heim­ili þessar breyt­ingar á hót­el­inu eins og þær hafa nú verið kynntar. 

Arkitekt sem dag­blaðið Berl­ingske ræddi við sagði að grannt yrði fylgst með fram­hald­inu, „við getum ekki setið hjá og látið eyði­leggja eina af skraut­fjöðr­unum í danskri bygg­ing­ar­list“.

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár