Stórfelldar skemmdir á Sprengisandi eftir utanvegaakstur

Miklar skemmdir voru unnar á Sprengisandi þegar öku­maður tók upp á því að aka bif­reið sinni utan vegar síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Hjól­förin ná yfir stórt svæði á slétt­unni og teygja förin sig marga kíló­metra sam­an­lagt. Þjóð­garðs­vörður seg­ist aldrei hafa sé aðrar eins skemmdir á sínum ferli.

Stórfelldar skemmdir á Sprengisandi eftir utanvegaakstur
Var­an­legur skaði Förin sem teygja sig yfir stórt svæði munu sjást um ókomna tíð að sögn Þjóð­garðsvarðar Vatna­jök­uls­þjóð­garðs Mynd: /Þjóðgarðsvörður Vatnajökulsþjóðgarðs

Miklar skemmdir voru unnar á áður ósnertri möl á Sprengisandi fyrr í vik­unni. Hjól­förin teygja sig yfir stórt svæði og sam­an­lagt teygja förin sig yfir nokkra kíló­metra. Fanney Ásgeirs­dóttir, þjóð­garðs­vörður í Vatna­jök­uls­þjóð­garði, segir sig og aðra land­verði á svæð­inu hafa brugðið illa þegar skemmd­irnar upp­götv­uð­ust. Hjól­förin munu sjást um ókomna tíð. 

„Við erum nátt­úru­lega bara svo­lítið skelkuð með þetta, þetta bara ger­ist í fyrra­dag. Það var sem sagt hópur af ferða­fólki sem kemur og lætur vita í Nýjadal af stór­felldum utan­vega­akstri á F910, norðan við Tungna­fells­jökul,“ segir Fanney í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Hún bætir við að ferða­langar eigi til að aka utan­vegar um svæðið en venju­lega sé það vegna fann­fergis á veg­inum á vorin og haustin. Þá reyni öku­menn að aka eftir kant­inum á veg­inum sem skilur eftir sig för við veg­kant­inn. Yfir­leitt sé um óvilja­verk að ræða. Einstaka sinnum komi upp til­vik …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu