Hallast helst að endurbótum á núverandi vegi í gegnum Vík

Að mati Skipu­lags­stofn­unar er ekki víst að aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar um að færa hring­veg­inn norður fyrir Vík muni minnka umferð um þétt­býlið líkt og stefnt er að. Stofn­unin tekur í nýju áliti sínu undir þau sjón­ar­mið Vega­gerð­ar­innar að jarð­ganga­kostir séu sístir.

Hallast helst að endurbótum á núverandi vegi í gegnum Vík
Áfram um bæinn Skipu­lags­stofnun telur end­ur­bætur á nýver­andi vegi heppi­leg­astar. Ef sú leið til lag­fær­inga á hring­veg­inum verður ofan á verður m.a. teng­ingum við veg­inn í þétt­býl­inu í Vík fækkað og hús fjar­lægð. Myndin er tölvu­teiknuð og sýnir mögu­legt útlit end­ur­bætts vegar um Vík. Mynd: Vegagerðin

Skipu­lags­stofnun telur end­ur­bætur á núver­andi hring­vegi í gegnum þétt­býlið í Vík ákjós­an­leg­asta val­kost­inn sem Vega­gerðin setur fram í umhverf­is­mats­skýrslu sinni um hring­veg­inn í Mýrdal, sér­stak­lega með til­liti til áhrifa á nátt­úru­far. Stofn­unin segir að allir þeir val­kostir sem Vega­gerðin leggur mat á í skýrslu sinni  komi til með að bæta umferð­ar­ör­yggi og sam­tímis ljóst að nýr vegur, hvar sem hann mun liggja, verður meira áber­andi í lands­lag­inu en sá sem nú er ekið um og ástæða hefur þótt til að end­ur­bæta veru­lega eða færa. Verði val­kostur 5, sem felst í end­ur­bótum nýver­andi vegar fyrir val­inu, myndi hann áfram liggja í gegnum þétt­býlið í Vík en færsla hans þaðan, í þeim til­gangi að auka umferð­ar­ör­yggi, var meðal mark­miða fram­kvæmd­ar­innar. Verði þessi kostur val­inn mun hann því „við­halda þeim nei­kvæðu áhrifum á sam­fé­lag sem fylgja þjóð­vegi um þétt­býli,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­mats­skýrslu Vega­gerð­ar­innar.

Aðal­val­kostur Vega­gerð­ar­innar er að leggja hring­veg­inn norður fyrir Vík. Það myndi, að mati Skipu­lags­stofn­unar, krefj­ast meira rasks á landi ofan Víkur sam­an­borið en end­ur­bætur á núver­andi vegi, m.a. á svæðum frið­lýstra plöntu­teg­unda. Sömu­leiðis gæti sá val­kostur haft nei­kvæð áhrif á úti­vist og byggða­þróun.

Skipu­lags­stofnun telur óvissu um hversu mikið umferð í gegnum Vík muni minnka við færslu hring­veg­ar­ins norður fyrir þétt­býlið „þar sem allir sem vilja stoppa í Vík munu áfram keyra í gegnum bæinn,“ segir í áliti hennar. Telur stofn­unin mik­il­vægt að gripið verði til aðgerða til að bæta umferð­ar­ör­yggi í þétt­býl­inu, þó svo að hring­veg­ur­inn yrði fluttur norður fyrir það.

Að auki bendir Skipu­lags­stofnun á að af umsögnum sem aflað var við gerð álits­ins að dæma sé ljóst að miklir svipti­vindar geti skap­ast á veg­línum ofan Víkur. „Telur Skipu­lags­stofnun til­efni til að kanna nánar hvort mögu­legt sé að draga úr áhrifum vinds á svæð­inu, t.d. með trjá­gróðri eða vind­skermum. Jafn­framt telur Skipu­lags­stofnun mik­il­vægt að gripið verði til við­eig­andi mót­væg­is­að­gerða þar sem hljóð­stig fer yfir mörk reglu­gerðar um hávaða.“

Vega­gerðin lagði einnig mat á þrjá kosti sem fælu í sér að leggja nýjan veg með­fram strönd­inni og í gegnum Reyn­is­fjall í jarð­göngum. Þessa kosti telur Skipu­lags­stofnun sísta vegna mik­illa nei­kvæðra stað­bund­inna áhrifa á nátt­úru­far, einkum gróð­ur­far og fugla­líf við Dyr­hólaós. Einnig gæti lagn­ing veg­línu og bygg­ing grjót­varn­ar­garða við Vík­ur­fjöru haft tals­vert nei­kvæð áhrif á upp­lifun þeirra sem nýta svæðið. Þá séu þessir val­kostir jafn­framt óheppi­legir með til­liti til nátt­úru­vár.

Vega­gerðin áformar að gera veru­legar end­ur­bætur á hring­veg­inum í Mýrdal á um sextán kíló­metra kafla milli Skeið­flatar og þétt­býl­is­ins í Vík. Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps hefur verið áfram um jarð­göng í gegnum Reyn­is­fjall en sú leið hefur sætt mik­illi gagn­rýni vegna nei­kvæðra umhverf­is­á­hrifa.

Í fyrra ákvað Vega­gerðin, sem legið hefur yfir mál­inu í mörg ár, að gera færslu veg­ar­ins norður fyrir byggð­ina í Vík að aðal­val­kosti sínum. Áfram voru þó margir aðrir kostir skoð­aðir. Skipu­lags­stofnun seg­irí áliti sínu að mat Vega­gerð­ar­innar byggi á fjölda sér­fræði­skýrslna um málið segir umhverf­is­mats­skýrsl­una vand­aða og til þess fallna að varpa ljósi á umhverf­is­á­hrif fram­kvæmd­ar­innar.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár