Glímir við íslensku nasistana á X

Múslima­hatur og öfga­full við­horf hafa færst í auk­ana á sam­fé­lags­miðl­inum sem áður hét Twitter. Fríða Þor­kels­dóttir seg­ist ekki geta mælt með því að rök­ræða við íslenska not­endur sem dreifa slíkum skoð­unum.

Glímir við íslensku nasistana á X
Fríða Þor­kels­dóttir X not­andi segir mik­il­vægt að sjá skoð­anir ann­arra svo fólk fest­ist ekki í berg­máls­helli. Mynd: Golli

Síðan auð­jöf­ur­inn Elon Musk keypti sam­fé­lags­mið­il­inn Twitter og breytti nafni hans í X hefur hann sætt ásök­unum fyrir að gefa öfga­fullri og hat­urs­fullri orð­ræðu sess. Einn not­andi síð­unnar hefur reynt að rök­ræða við þá Íslend­inga sem birta skoð­anir í þeim anda en hefur ekki haft erindi sem erf­iði.

Fríða Þor­kels­dóttir hefur verið virk á síð­unni í um ára­tug. „Það hefur breyst mjög mikið á þeim tíma,“ segir hún. „Þetta var vin­sælt fyrir nokkrum árum en svo hættu margir Íslend­ingar eftir að þetta varð X. Mér finnst ég bæði fá mikið af upp­lýs­ingum og fréttum þarna og svo er þetta líka bara skemmti­legt út af „memes“ og fólki að vera fyndið. Stundum fer fólk að ríf­ast og það er ákveðið skemmt­ana­gildi í því.“

Fræði­menn hafa varað við því að not­endur sem dreifa gyð­inga- eða múslima­hatri á X fái aukna athygli þar sem algóriþmi for­rits­ins verð­launi efni sem sjokkerar og stuðlar að …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vaknaðu við sólarupprás.
    Borðaðu morgunmat.
    Farðu í gönguferð.
    Hlustaðu á fuglana.
    Klappaðu hundi.
    Leiktu við barn.
    Sýndu auðmýkt og aldrei, aldrei sleppa því að berja nasista.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár