Hvaðan komu Georgíumenn?

Fram­ganga georgíska lands­liðs­ins á EM hefur vakið verð­skuld­aða athygli. Í ljós hefur komið að fáir í okkar heims­hluta þekkja mikið til Georgíu, þótt landið eigi sér ein­hverja lengst sögu sem mann­kyns­sagan kann frá að greina.

Hvaðan komu Georgíumenn?
Khvicha Kvaratsk­helia fót­bolta­maður verður ugg­laust meiri þjóð­ar­dýr­lingur Georg­íu­manna á næst­unni en Davíð kon­ungur eða Tamar drottn­ing.

Sá gríð­ar­legi fögn­uður sem braust út í Georgíu þegar lands­lið karla í fót­bolta vann Portúgal á dög­unum sýnir og sannar að hvað sem líður hnussi yfir pen­inga­væð­ingu íþrótt­ar­innar, þá skiptir samt eig­in­lega ekk­ert meira máli við að efla þjóð­arstolt og þjóð­ar­sam­stöðu en fót­bolti — og gildir einu hvar í heimi er.

Og morg­un­dag­ur­inn, sunnu­dag­ur­inn 30. júní 2024, mun ævin­lega verða skráður í sögu­bækur Georgíu, hvernig sem fer gegn Spán­verjum í 16 liða úrslitum Evr­ópu­móts­ins.

Hér verða skoðuð fáein atriði úr sögu og menn­ingu Georg­íu­manna.

Íbúa­fjöldi er um 3,7 millj­ónir, það er að segja Georg­íu­menn eru tíu sinnum fleiri en Íslend­ingar sem voru spútniklið Evr­ópu­móts­ins 2016.

Þótt Georgía sé þannig í hópi fámennra þjóða eru nokkrar álíka litlar þjóðir róm­aðar fyrir afrek í fót­bolta. Þar ber hæst Úrúgvæa (3,4 millj­ónir) og Króata (3,9). Önnur sjálf­stæð ríki með íbúa milli þriggja og fjög­urra millj­óna eru Panama (4 millj­ónir), Eritrea (3,7), Mongólía (3,5), Bosnia (3,2), Armenía og Namibía (3).

Georgía er rétt tæpir 70.000 fer­kíló­metrar að stærð sem þýðir að landið er rúm­lega tveir þriðju af Íslandi. Álíka stór lönd eru Írland, Sri Lanka og Litháen.

Georgía. Tvö héruð lands­ins eru undir stjórn Rússa sem lögðu þau undir sig með her­valdi 2008.Rússar ótt­uð­ust að Georg­íu­menn myndu brátt ganga í NATO til að létta af sér áhyggjum af ásælni Rússa sjálfra. Þeir þótt­ust þá koma til varnar þjóð­ar­brotum í Suður-Ossetíu og Abkasíu, sem Georg­íu­menn hefðu ofsótt. Nákvæm­lega sömu aðferð beittu þeir 2014 í Úkraínu þegar þeir hrifsuðu Krím­skaga og stóran hluta Donbass af heima­mönnum.

Georgíska er langút­breiddasta tungu­málið í land­inu. Mál­fræð­ingar tala raunar um kart­vel­ísku sem skipt­ist svo í fjögur eða fimm undir-mál, ef svo má segja, en þau eru svo skyld og svipuð hvert öðru að í venju­legum blaða­texta er óhætt að tala um eitt tungu­mál.

Athygli vekur að georgíska (eða kart­vel­íska) er ekki skyld neinum öðrum öðrum tungu­málum og til­heyrir því sinni eigin mála­fjöl­skyldu.

Sú er reyndar raunin um fleiri tungu­mál í Kákasus-fjöllum þar sem mik­ill fjöldi þjóða og þjóð­ar­brota býr í fjalla­döl­unum.

Georgíska er þannig ekk­ert skylt nágranna­mál­unum, hvorki rúss­nesku né armensku, tyrk­nesku né írönsku né arab­ísku.

Til sam­an­burðar er íslenska hluti af indó-evr­ópsku mála­fjöl­skyld­unni.

Byggð hefur verið í Georgíu frá því löngu fyrir öróf landa en á öðru árþús­undi FT má finna þar ummerki um skipu­lögð smá­ríki. Grikkir, sem tóku að sigla inn á Svarta­haf á önd­verðu fyrsta árþús­undi, köll­uðu strönd Georgíu Kolkis og þaðan var Medea kon­ungs­dóttir sem fræg varð — eða alræmd — í grískum goð­sögum og bók­menntum og ég segi frá síðar.

Næsta árþús­undið risu og hnigu ýmis ríki í Georgíu en fátt er um flest þeirra vitað. Nágrannar í Pontus (á norð­ur­strönd Tyrk­lands) og Armeníu (suð­austur af Georgíu) gerðu sig gild­andi en Georg­íu­menn komu lítt til sögur.

Þó er vitað að oft voru tvö ríki á meg­in­hluta þess svæðis sem nú heitir Georgía — annað við strönd­ina og versl­aði við gríska og aðra vest­ræna kaup­menn og var um tíma undir stjórn Rómverja, en hitt var inni í land­inu, kall­að­ist stundum Íbería en oftar Kartlí, og hafði meiri tengsl við stór­veldin í suðri, hvað sem þau hétu á hverjum tíma: Persía, Parþía, aftur Persía ...

Frá þessum tíma mun stafa mis­mun­andi bragur á eft­ir­nöfnum Georg­íu­manna en eins og þeir sem fylgj­ast með gangi Georgíu á Evr­ópu­mót­inu hafa tekið eftir, þá enda nöfn þeirra lang­flestra ýmist á -svílí eða -adze.

Heilög Nino. Ævi hennar er hjúpuð helgi­sögum og þjóð­sögum en ætla má að ein­hver fótur sé fyrir því að hún hafi átt mik­inn þátt í kristnun Georgíu.Það er alla vega ljóst að þegar kirkju­feður Georgíu fóru að festa á blað sögur um hvernig það vildi til að Georg­íu­menn tóku kristni svo snemma, þá hefðu þeir varla þakkað það óbreyttri konu­kind nema af því eitt­hvað þvíum­líkt hafi gerst í raun og veru.

Fyrri end­ingin þró­að­ist í Kolkis-löndum við strönd­ina og þýðir „afkom­andi“. Fyrri hlut­inn á yfir­leitt við héruð eða ættir en síður við ein­stak­linga, þó þess séu dæmi. Seinni end­ingin -dze þýðir hins vegar ósköp ein­fald­lega -son og var notað á sama hátt og íslensk föð­ur­nöfn þótt nú hafi -dze nöfnin þró­ast yfir í ætt­ar­nöfn.

Einhvern tíma um eða rétt upp úr árinu 300 ET gerð­ist sá óvænti atburður að Georg­íu­menn tóku kristni. Þar voru Íber­íu­menn fyrstir og sam­kvæmt þjóð­sögum var það kona sem stóð fyrir kristni­væð­ing­unni. Hún mun hafa heitið Nino og var kristin þjón­ustu­stúlka útlenskrar stúlku sem kóng­ur­inn í Íberíu vildi gift­ast. Hann var blindur en með því að hlýða á pré­dikun Nino fékk hann sjón­ina á ný.

Hvernig þetta gerð­ist í raun og veru er ekki vitað en vænt­an­lega hefur konan Nino komið þar veru­lega við sögu, ann­ars hefðu sög­urnar um hana ekki orðið til.

Og alt­ént er ljóst að Georg­íu­menn voru meðal þeirra allra fyrstu sem tóku kristni, ásamt nágrönnum sínum Armenum.

Í Georgíu ann­ars vegar og Armeníu hins vegar þró­uð­ust aftur á móti sjálf­stæðar kirkju­deildir og þótt ýmis­legt sé skylt með þeim skilur annað á milli — og báðar kirkj­urnar halda fast í sjálf­stæði sitt.

Eftir að Georg­íu­menn tóku kristni þró­uðu þeir sitt eigið letur til að tjá guðs­trú sína á bókum og er georgíska letrið ein­stakt í sinni röð í heim­inum.

Georgíska staf­rófið er ein­stakt í sinni röð í heim­inum.

Svo liðu ár og aldir og farið var að kalla kon­ungs­ríkið Íberíu Georgíu. Það var oft ekki með hýrri há og undir járn­hæl öfl­ugra nágranna í suðri en náði þó ævin­lega að halda í eigið tungu­mál, trú og menn­ingu. Þegar Arabar lögðu undir sig mest­öll Mið­aust­ur­lönd og útbreiddu íslam meðal ann­ars til Persíu, þá brugð­ust Georg­íu­menn við með því að efl­ast um allan helm­ing.

Þeir stóð­ust líka Tyrkjum snún­ing þegar þeir birt­ust á svæð­inu í nokkrum bylgjum um árið 1000 ET. Davíð 4. var sögu­frægur um 1100 og styrkti mjög stoðir rík­is­ins með hern­aði og upp­bygg­ingu alls­konar.

Um þetta leyti voru Georg­íu­menn orðnir víð­frægir um öll lönd fyrir hreysti í hern­aði og þol­gæði.

Um 1200 var ríki Georg­íu­manna harla staffírugt orðið, réði þá nálega öllum Kákasus­fjöllum og hafði gert mörg nágranna­ríki að leppum sínum.

Gullöld Georgíu um 1200.Kon­ungs­ríki Tamar drottn­ingar er hér rauð­g­uls en lepp­ríki ýmis bæði í norðri og suðri og langar leiðir með­fram ströndum Svarta­hafs.

Þá var „gullöld Georgíu“ sem kölluð var og athygl­is­vert er að aftur skýtur sterk kona upp koll­inum í sögu Georgíu — Tamar drottn­ing ríkti ein á kon­ungs­stóli 1184-1213 og var hún eng­inn eft­ir­bátur Davíðs langafa síns að skör­ungs­skap.

Tamar drottn­ing.Hún var af Bagration-ætt­inni sem réði Georgíu öldum saman.

Fyrri eig­in­maður hennar var Júrí Rússa­prins frá Novgorod og hugð­ist hún nota hann sem her­for­ingja gegn Tyrkjum en þegar í ljós kom að hann var skálkur hinn versti, ofbeld­is­seggur, drykkju­bolti, nauð­gari og ég veit ekki hvað, þá skildi Tamar við hann og sendi hann í útlegð.

Áratug eftir að Tamar dó hófst hnignun Georgíu og tók skemmri tíma en nokkurn hefði órað fyrir á gull­ald­ar­skeið­inu. Fyrst lagði pers­neskur fursti Kwarazmiaríkisins Georgíu undir sig og mun hafa látið aflífa 100.000 manns sem ekki vildu ját­ast undir íslam.

Eflaust er talan eitt­hvað ýkt en mikið blóð­bað hefur þó átt sér stað þarna og „písl­ar­vott­arnir 100.000“ eiga sér tryggan stað í sagna­heimi og menn­ingu Georg­íu­manna. Tíu árum síðar, þegar ríkið var örlítið farið að rétta úr kútnum, birt­ust svo Mongólar og eirðu engu.

Næstu tvær aldir urðu Georg­íu­menn yfir­leitt að sitja og standa eins og Mongólum og arf­tökum þeirra þókn­að­ist og þótt öfl­ugir kóngar virt­ust stundum á barmi þess að heyja í end­ur­reisn gull­ald­ar­rík­is­ins, þá tókst það aldrei alveg og ríkið hrundi á ný.

Jósef Djúga­svilí.Hefnd Georg­íu­manna?

Þegar Mongólar voru horfnir úr sög­unni á fimmt­ándu öld varð Georgía hins vegar leiksoppur tveggja öfl­ugra stór­velda í suðri, Ottómana­veldis Tyrkja og nýs Persa­veldis. Þá var stundum svo illa komið fyrir ríki Georg­íu­manna að þeir urðu að láta sér lynda að Persar kæmu þar fyrir múslim­skum höfð­ingjum og köll­uðu kon­unga. 

Er kom fram á 18. öld hafði Persa­veldi hins vegar hnignað og hnignun Ottómana var þá einnig að hefj­ast. Georg­íu­menn hugð­ust nota tæki­færið og end­ur­reisa veldi sitt og litu hýru auga hjálp frá Rússum sem voru þá mjög að teygja nýlendu­veldi sitt suður í lönd frá Rúss­landi sjálfu. Rússar komu glaðir til hjálpar en höfðu þó ekki, þegar til kom, minnsta áhuga á að hjálpa Georg­íu­mönnum til sjálf­stæðis heldur tóku sjálfir að leggja undir sig landið smátt og smátt.

Og sýndu þá af sér þá skefja­lausu grimmd og blóð­þorsta sem ein­kennt hefur alla þeirra nýlendu­sögu — og vit­an­lega ekki bara þeirra.

En lengi á eftir og í raun­inni allt til hruns Sov­ét­ríkj­anna voru Georg­íu­menn síðan eins og mýs undir fjala­k­etti Rússa.

Sumir segja, í kald­hæðni nátt­úr­lega, að hefnd Georg­íu­manna gegn Rússum hafi verið að senda þeim leið­tog­ann Jósef Stalín, enda eng­inn her­stjóri hvorki fyrr né síðar orðið fleiri Rússum að bana en Georg­íu­mað­ur­inn Stalín.

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár