Spyr hvort stjórnvöld hafi verið plötuð til að gefa Running Tide gæðavottun

Þing­maður Pírata fer fram á að gerð verði grein fyrir aðkomu stjórn­valda að starf­semi Running Tide á Íslandi. „Stóra spurn­ingin hlýtur því að vera hvort stjórn­völd hafi verið plötuð?“ spyr Björn Leví Gunn­ars­son.

Spyr hvort stjórnvöld hafi verið plötuð til að gefa Running Tide gæðavottun
Stjórn­völd og græn­þvottur Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur óskað eftir því að gerð verði grein fyrir aðkomu stjórn­valda að starf­semi Running Tide á Íslandi og hvort það skipti máli fyrir fjár­heim­ildir rík­is­ins, en fyr­ir­tækið gerði ráð fyrir að eiga vöru­birgðir til kolefn­is­förg­unar upp á 1,3 millj­arða króna í síð­asta árs­reikn­ingi sínum. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, hefur óskað eftir því við fjár­laga­nefnd Alþingis að gerð verði grein fyrir aðkomu stjórn­valda að starf­semi Running Tide á Íslandi. Hann vill sömu­leiðis vita hvort starf­semi Running Tide skipti máli fyrir fjár­heim­ildir rík­is­ins, en fyr­ir­tækið gerði ráð fyrir að eiga vöru­birgðir til kolefn­is­förg­unar upp á 1,3 millj­arða króna í síð­asta árs­reikn­ingi sínum. 

„Ef það kemur svo í ljós að þetta er allt ein­hvers konar græn­þvottur og að stjórn­völd hafi verið plötuð til þess að gefa fyr­ir­tæk­inu gæða­vottun með und­ir­ritun sinni, þá er það aug­ljós­lega ámæl­is­vert – upp á ansi háa upp­hæð. Stóra spurn­ingin hlýtur því að vera hvort stjórn­völd hafi verið plötuð?“ spyr Björn Leví í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Hann stað­festir í sam­tali við Heim­ild­ina að hann hafi lagt fram beiðni til fjár­laga­nefndar um að málið verði tekið til skoð­unar. Að minnsta kosti einn fundur er á dag­skrá nefnd­ar­innar fyrir þing­lok, en ekki liggur fyrir hvenær hann verður. 

Hrúgur af hrá­efniKanadískt við­arkurl í stórum haugum eru á athafna­svæði Running Tide á Grund­ar­tanga.

Eins og Heim­ildin greindi frá í ítar­legri rann­sókn í síð­asta tölu­blaði, hafði Running Tide áætl­anir uppi um að sökkva allt að 50 þús­und tonnum af kalk­steins­blönd­uðu trják­urli, eftir að hafa fengið til þess leyfi íslenskra stjórn­valda. Fyr­ir­tækið hafði þegar fleytt tæp­lega 20 þús­und tonnum í hafið undan Íslandi, í fyrra­sumar. Running Tide hefur nú hætt starf­semi í Banda­ríkj­unum og sömu sögu er að segja af dótt­ur­fé­lagi þess á Akranesi. 

Án þess að afla nokk­urra óháðra álita skrif­uðu fjórir ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands undir vilja- og stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við þessi áform fyr­ir­tæk­is­ins árið 2021. Þrátt fyrir efa­semdir stofn­ana sem fara með mál­efni umhverfis og hafs á Íslandi, var svo ákveðið að veita fyr­ir­tæk­inu leyfi til að stunda starf­semi í íslenskum sjó. Það fékk fyr­ir­tækið að gera án eft­ir­lits, þar sem Bjarni Bene­dikts­son, settur ráð­herra umhverf­is­mála, komst að þeirri nið­ur­stöðu að ekki væri um að ræða svo­kallað „varp í hafið“ þegar tugum þús­undum tonna af kanadísku trják­urli væri hent í sjó­inn. Þar af leið­andi taldi Umhverf­is­stofnun hendur eft­ir­lits síns hafa verið bundnar, þar sem „varp í hafið“ væri for­senda þess að stofn­unin hefði með starf­sem­inni eft­ir­lit.

Þrátt fyrir við­vör­un­ar­orð og efa­semdir komu íslenskir ráð­herrar fram bæði með for­svars­mönnum Running Tide og töl­uðu fyrir því á opin­berum vett­vangi. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis- orku og auð­linda­mála­ráð­herra sagði til að mynda að Running Tide væri „stærsta ein­staka kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi“ í við­tali í Kast­ljósi. Hann við­ur­kenndi í við­tali við Heim­ild­ina að hafa byggt þá full­yrð­ingu ein­göngu á orðum for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins.

„Þetta virð­ist vera lenskan hjá núver­andi rík­is­stjórn – að treysta bara því sem þeim er sagt í blindni,“ skrifar Björn Leví í grein sinni í Morg­un­blaðið í dag. „Eftirlit með lax­eldi er víst með besta móti. Allt var í himna­lagi þegar Íslands­banki var seldur – best heppn­aða útboð Íslands­sög­unnar hvorki meira né minna. Það er í fína lagi að brjóta stjórn­sýslu­lög eða skipa góða vini í emb­ætti – og þess háttar. Það þarf bara ein­hver að segja þeim að allt sem þau geri sé rétt og gott og þá þurfi ekki að hafa áhyggjur af neinu.“

Kjósa
70
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Æ hvað maður er "running tired" á þessum ráðherrum sem hér eru nefndir til sögunnar. Þar er allt á sömu bókina lært virðist vera. Engin von um skaðaminnkun á meðan þeir verma embættin. Það er hreinn samfélagsskaði af athafnaseminni hjá þessu liði.
    3
  • ÆS
    Ævar Sigdórsson skrifaði
    Sorglegt en satt, því miður. Ráðherrar eru algjörlega sofandi í svona málum og þora svo ekki að gangast við kjánaskap og einfeldni sinni :-(
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Running Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnisbindingu
ViðtalRunning Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefn­is­bind­ingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við nið­ur­stöðu Umhverf­is­stofn­unar, skap­aði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dós­ents við laga­deild HR, ákveð­inn laga­legan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyr­ir­tækið ætl­aði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þör­ungar en end­aði á því að fleyja 19 þús­und tonnum af kanadísku trják­urli í hafið og segj­ast með því hafa bundið 25 þús­und tonn af CO2.
Running Tide hafi hunsað og falið óhagstæð álit
FréttirRunning Tide

Running Tide hafi hunsað og falið óhag­stæð álit

Banda­rískur laga­pró­fessor sem sér­hæfir sig í lög­gjöf vegna kolefn­is­förg­unar, og sat í svoköll­uðu vís­inda­ráði Running Tide, segir fyr­ir­tækið hafa stungið áliti hans undir stól og síðan lagt ráðið niður. Fyr­ir­tækið hafi með óábyrgri fram­göngu sinni orðið til þess að nú standi til að end­ur­skoða alþjóða­sam­ing um verndun hafs­ins. Segir fyr­ir­tækið aldrei hafa fengið leyfi eins og hér á landi, án ítar­legri skoð­unar og strangs eft­ir­lits.
Áslaug Arna segir sérkennilegt að ekki hafi verið fylgst með starfsemi Running Tide
FréttirRunning Tide

Áslaug Arna segir sér­kenni­legt að ekki hafi verið fylgst með starf­semi Running Tide

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra var fyrsti ráð­herr­ann sem veitti erind­rekum Running Tide áheyrn eftir að fyr­ir­tækið hóf að kanna mögu­leika þess að gera rann­sóknir hér á landi. Eftir kynn­ingu á áformum fyr­ir­tæk­is­ins miðl­aði hún erindi fyr­ir­tæk­is­ins til sam­ráð­herra sinna. Áslaug seg­ist hafa fylgst lítið með fram­vindu rann­sókna Running Tide eftir að hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­inu til stuðn­ings ásamt fjórum öðrum ráð­herrum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár