Fréttamál

Running Tide

Greinar

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnisbindingu
ViðtalRunning Tide

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefn­is­bind­ingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við nið­ur­stöðu Umhverf­is­stofn­unar, skap­aði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dós­ents við laga­deild HR, ákveð­inn laga­legan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyr­ir­tækið ætl­aði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þör­ungar en end­aði á því að fleyja 19 þús­und tonnum af kanadísku trják­urli í hafið og segj­ast með því hafa bundið 25 þús­und tonn af CO2.
Running Tide hafi hunsað og falið óhagstæð álit
FréttirRunning Tide

Running Tide hafi hunsað og falið óhag­stæð álit

Banda­rískur laga­pró­fessor sem sér­hæfir sig í lög­gjöf vegna kolefn­is­förg­unar, og sat í svoköll­uðu vís­inda­ráði Running Tide, segir fyr­ir­tækið hafa stungið áliti hans undir stól og síðan lagt ráðið niður. Fyr­ir­tækið hafi með óábyrgri fram­göngu sinni orðið til þess að nú standi til að end­ur­skoða alþjóða­sam­ing um verndun hafs­ins. Segir fyr­ir­tækið aldrei hafa fengið leyfi eins og hér á landi, án ítar­legri skoð­unar og strangs eft­ir­lits.
Áslaug Arna segir sérkennilegt að ekki hafi verið fylgst með starfsemi Running Tide
FréttirRunning Tide

Áslaug Arna segir sér­kenni­legt að ekki hafi verið fylgst með starf­semi Running Tide

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra var fyrsti ráð­herr­ann sem veitti erind­rekum Running Tide áheyrn eftir að fyr­ir­tækið hóf að kanna mögu­leika þess að gera rann­sóknir hér á landi. Eftir kynn­ingu á áformum fyr­ir­tæk­is­ins miðl­aði hún erindi fyr­ir­tæk­is­ins til sam­ráð­herra sinna. Áslaug seg­ist hafa fylgst lítið með fram­vindu rann­sókna Running Tide eftir að hafa skrifað undir vilja­yf­ir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­inu til stuðn­ings ásamt fjórum öðrum ráð­herrum.
Ráðherrar vængstýfðu Umhverfisstofnun
FréttirRunning Tide

Ráð­herrar væng­stýfðu Umhverf­is­stofnun

Ítarleg rann­sókn Heim­ild­ar­innar á starf­semi Running Tide sýndi að í aðdrag­anda leyf­is­veit­ingar hafi ráð­herrar tekið stöðu með fyr­ir­tæk­inu gegn und­ir­stofn­unum sínum sem skil­greindu áform Running Tide sem kast í hafið. Umhverf­is­stofnun hafði ekk­ert eft­ir­lit með þeim 15 leið­öngrum sem fyr­ir­tækið stóð að, þar sem um 19 þús­und tonnum af við­arkurli var skolað í sjó­inn.
Elkem brennir trjákurli Running Tide - Eignir á brunaútsölu
FréttirRunning Tide

Elkem brennir trják­urli Running Tide - Eignir á bruna­út­sölu

Fjall af trják­urli sem Running Tide skilur eftir sig á Grund­ar­tanga verður brennt til að knýja málm­blendi Elkem. Kurlið auk 300 tonna af kalk­steins­dufti í sekkjum og fær­an­leg steypu­stöð voru aug­lýst til sölu um helg­ina eftir að Running Tide hætti skyndi­lega allri starf­semi hér á landi og í Banda­ríkj­unum. Fyr­ir­tækið skol­aði 20 þús­und tonnum af trják­urli í sjó­inn í fyrra og sagð­ist binda kolefni. „Bull“ og „fár­an­leiki“ til þess gerður að græða pen­inga, sögðu vís­inda­menn.
Running Tide og ráðherrarnir - Koma af fjöllum um eftirlitsleysið
FréttirRunning Tide

Running Tide og ráð­herr­arnir - Koma af fjöllum um eft­ir­lits­leysið

Blaða­menn Heim­ild­ar­innar tóku við­töl við þrjá ráð­herra um aðkomu þeirra að því að Running Tide fékk leyfi stjórn­valda til starf­semi á Íslandi. Umhverf­is­ráð­herra sagði ein­ungis hafa haft full­yrð­ingar for­svars­manna fyr­ir­tæk­is­ins fyrir því að starf­semin væri „stærsta ein­staka kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni í heimi“. Utan­rík­is­ráð­herra seg­ist ekki geta svarað því hvort hún hafi skapað for­dæmi sem leyfi nú að afgangstimbri verði hent í sjó­inn í stórum stíl.

Mest lesið undanfarið ár