Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnisbindingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við nið­ur­stöðu Umhverf­is­stofn­unar, skap­aði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dós­ents við laga­deild HR, ákveð­inn laga­legan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyr­ir­tækið ætl­aði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þör­ungar en end­aði á því að fleyja 19 þús­und tonnum af kanadísku trják­urli í hafið og segj­ast með því hafa bundið 25 þús­und tonn af CO2.

Snjólaug Árnadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur undanfarin misseri staðið framarlega í stafni fræðasamfélagsins þegar kemur að því að hvetja til umræðu um lagaumgjörð loftslagsmála.
Snjólaug Árna­dóttir, dós­ent við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík, hefur und­an­farin miss­eri staðið fram­ar­lega í stafni fræða­sam­fé­lags­ins þegar kemur að því að hvetja til umræðu um lagaum­gjörð lofts­lags­mála. Mynd: Golli

Lofts­lags­váin hefur afhjúpað göt í íslenskri lög­gjöf sem nær sum­part illa eða alls ekki utan um verk­efni sem vilji er til að koma á fót og er ætlað að koma í veg fyrir eða draga úr áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Sér­stak­lega hefur skap­ast laga­leg óvissa í kringum verk­efni sem miða að notkun nýrra aðferða til kolefn­is­bind­ingar, meðal ann­ars í haf­inu.

„Það er engin lög­gjöf á Íslandi sem tekur sér­stak­lega til kolefn­is­förg­unar og í raun er lítið sem ekk­ert í íslenskum lögum sem nær utan um þetta,“ segir Snjólaug Árna­dóttir, dós­ent við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík. „Það eru stór göt í lög­gjöf­inni eins og er. Í þau þarf að stoppa og brúa bilið milli lög­gjaf­ar­innar og þess­arar nýju atvinnu­greinar til að tryggja gagn­sæi og skil­virkni og eyða laga­legri óvissu.“ 

Snjólaug segir þetta vissu­lega ekki í fyrsta …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • trausti þórðarson skrifaði
    Sagðir þú varp í hafið?
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    "Bjarni Bendiktsson, þá fjármálaráðherra en nú forsætisráðherra, steig inn í málið og komst að því að ákvörðun Umhverfisstofnunar væri röng."

    Enn eitt hneykslið tengt þessum gjörspillta, siðblinda dela !!
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár