Aðili

Running Tide

Viðtal

Stór göt í íslenskum lögum er kemur að kolefnis­bindingu

Úrskurður Bjarna Bendikts­sonar um að aðgerðir Running Tide væru ekki varp í hafið, öfugt við niður­stöðu Umhverfis­stofnunar, skapaði að mati Snjó­laugar Árna­dóttur, dósents við lagadeild HR, ákveðinn lagalegan óskýr­leika sem rétt væri að greiða úr. Fyrir­tækið ætlaði að fleyta flot­hylkjum sem á myndu vaxa stór­þörungar en endaði á því að fleyja 19 þúsund tonnum af kanadísku trjákurli í hafið og segjast með því hafa bundið 25 þúsund tonn af CO2.

8 mín. lestur

Fréttir

Running Tide hafi hunsað og falið óhagstæð álit

Bandarískur laga­prófessor sem sérhæfir sig í löggjöf vegna kolefnis­förgunar, og sat í svokölluðu vísinda­ráði Running Tide, segir fyrir­tækið hafa stungið áliti hans undir stól og síðan lagt ráðið niður. Fyrir­tækið hafi með óábyrgri framgöngu sinni orðið til þess að nú standi til að endur­skoða alþjóða­saming um verndun hafsins. Segir fyrir­tækið aldrei hafa fengið leyfi eins og hér á landi, án ítarlegri skoðunar og strangs eftirlits.
11:20
Fréttir

Áslaug Arna segir sérkennilegt að ekki hafi verið fylgst með starfsemi Running Tide

Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra var fyrsti ráðherrann sem veitti erindrekum Running Tide áheyrn eftir að fyrir­tækið hóf að kanna möguleika þess að gera rann­sóknir hér á landi. Eftir kynningu á áformum fyrir­tækisins miðlaði hún erindi fyrir­tækisins til samráð­herra sinna. Áslaug segist hafa fylgst lítið með framvindu rannsókna Running Tide eftir að hafa skrifað undir vilja­yfirlýsingu fyrir­tækinu til stuðnings ásamt fjórum öðrum ráðherrum.
Fréttir

Elkem brennir trjákurli Running Tide - Eignir á bruna­útsölu

Fjall af trjákurli sem Running Tide skilur eftir sig á Grundar­tanga verður brennt til að knýja málm­blendi Elkem. Kurlið auk 300 tonna af kalksteins­dufti í sekkjum og færanleg steypustöð voru auglýst til sölu um helgina eftir að Running Tide hætti skyndi­lega allri starfsemi hér á landi og í Banda­ríkjunum. Fyrir­tækið skolaði 20 þúsund tonnum af trjákurli í sjóinn í fyrra og sagðist binda kolefni. „Bull“ og „fáranleiki“ til þess gerður að græða peninga, sögðu vísinda­menn.
Fréttir

Running Tide og ráðherrarnir - Koma af fjöllum um eftirlits­leysið

Blaðamenn Heim­ild­ar­innar tóku viðtöl við þrjá ráðherra um aðkomu þeirra að því að Running Tide fékk leyfi stjórn­valda til starfsemi á Íslandi. Umhverfis­ráðherra sagði einungis hafa haft full­yrðingar forsvars­manna fyrir­tækisins fyrir því að starfsemin væri „stærsta einstaka kolefnis­föngunar­verkefni í heimi“. Utan­ríkis­ráðherra segist ekki geta svarað því hvort hún hafi skapað fordæmi sem leyfi nú að afgangs­timbri verði hent í sjóinn í stórum stíl.

Mest lesið undanfarið ár