Ráðherrar vængstýfðu Umhverfisstofnun

Ítarleg rann­sókn Heim­ild­ar­innar á starf­semi Running Tide sýndi að í aðdrag­anda leyf­is­veit­ingar hafi ráð­herrar tekið stöðu með fyr­ir­tæk­inu gegn und­ir­stofn­unum sínum sem skil­greindu áform Running Tide sem kast í hafið. Umhverf­is­stofnun hafði ekk­ert eft­ir­lit með þeim 15 leið­öngrum sem fyr­ir­tækið stóð að, þar sem um 19 þús­und tonnum af við­arkurli var skolað í sjó­inn.

Running Tide fékk að starfa án eftirlits
Running Tide fékk að starfa án eft­ir­lits Eftir að Bjarni Bene­dikts­son úrskurð­aði starf­semi Running Tides sem lög­mæta vís­inda­rann­sókn glat­aði Umhverf­is­stofnun laga­heim­ild til þess að hafa eft­ir­lit með starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Golli

Fyr­ir­tækið Running Tide sökkti um 20.000 tonnum af kalk­steina­blönd­uðu við­arkurli á haf­svæði yst á land­helgi Íslands í fyrra. Áður en að fyr­ir­tækið lagði upp laupana hafði það áform um að sökkva allt 50.000 tonnum til við­bótar á ári.

Eins og komið hefur fram í ítar­legri umfjöllun Heim­ild­ar­innar um starf­semi Running Tide lutu þessar aðgerðir litlu sem engu eft­ir­liti. Rann­sóknin sýndi fram á að ákvarð­anir sem ráð­herrar í rík­is­stjórn­inni tóku á sínum tíma urðu þess vald­andi að fyr­ir­tækið ffékk að leika lausum hala.    

Tóku stöðu með Running Tides

Á skömmum tíma tókst fyr­ir­tæk­inu, með aðstoð teym­is­ins Transition Labs, að verða sér út um leyfi og stuðn­ing frá alls fjórum ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni. Reyndist stuðn­ingur ráð­herra vera fyr­ir­tæk­inu ómet­an­legur.

Kjósa
81
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞTÞ
    Þóroddur Tryggvi Þórhallsson skrifaði
    Ekki fyrsta og áreiðanlega ekki síðasta skemdarverkið sem Bjarni Benediktsson og Co. vinnur á Íslandi
    3
  • HR
    Hilmar Ragnarsson skrifaði
    Öllu óskiljanlegt að misvitrir ráðamenn geti komist upp með allt án eftirmála. Koma í veg fyrir eftirlit, eins og ráðherrarnir Kristján Þór Júlíusson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir gerðu með niðurfellingu ýmissa eftirlitsstofnana eins og eftirlitsstofnun byggingariðnaðarins, höfðu ekki hugmynd um hvað þau voru að gera.
    6
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Orkumagn 1 kg af viðarkurli samsvarar uþb 5 kWh sem samsvarar 0.5 l af steinolíu. Með því að brenna 20.000 t (20 milljón kg) af viðarkurli hefði verið hægt að spara 10 milljón lítra steinolíu einhvers annars staðar.
    Svo mikið um þessa glötuðu hugmynd.
    6
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Glæpamenn! xD mafían eru melludólgar sem selja aðgang að landinu eins og mellu.
    5
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Að jafna saman hitaveituvæðingunni sem var fyrst og fremst aðgerð til að spara beinharðann gjaldeyri á sínum tíma við plottið hjá Running Tide sem augljóslega er gerð til að selja kolefnis einingar á vafasömum forsendum segir meira um spillingu og vildarvini ráðherrans.
    21
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár