Fjöldi myndlykla stóð í stað milli ára

Fjöldi áskrif­enda með mynd­lykla stór nán­ast í stað í fyrra og var 79.316 í lok þess árs. Það eru 651 færri en ári áður.

Fjöldi myndlykla stóð í stað milli ára
Leiðir til að horfa Þeim hefur fjölgað umtals­vert á síð­ustu árum sem velja öpp eða uta­n­áliggj­andi tæki til að horfa á sjón­varp. Mynd: Bára Huld Beck

Á und­an­förnum árum hefur þeim heim­ilum sem kaupa sjón­varps­þjón­ustu yfir svo­kallað IP-net, þar sem sjón­varps­út­send­ingu og annarri þjón­ustu er miðlað í gegnum mynd­lykla sem leigðir eru af fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, fækkað mikið. Frá byrjun árs 2018 og fram til loka árs 2022 fækk­aði þeim til að mynda um 21.186, eða um 21 pró­sent. Á sama tíma fjölg­aði lands­mönnum um ell­efu pró­sent. 

Í fyrra varð breyt­ing á þess­ari þróun. Samkvæmt nýlega birtri töl­fræði­skýrslu Fjar­skipta­stofu um íslenska fjar­skipta­mark­að­inn á árinu 2023 stóð fjöldi áskrif­enda með sjón­varp yfir IP-net nán­ast í stað og var 79.316 í lok þess árs. Það eru 651 færri en ári áður. 

Tvö fyr­ir­tæki bjóða upp á mynd­lykla til að horfa á sjón­­varp yfir IP-­­net, Sím­inn og Vodafone, sem er hluti af Sýn­ar­sam­stæð­unni. Áskrif­endum Símans fækk­aði í fyrra og mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þessum mark­aði lækk­aði um rúm tvö pró­sentu­stig, niður í 58,1 pró­sent. Áskrif­endum Vodafone fjölg­aði að sama skapi um 1.422 milli ára. 

Ástæða þess að mynd­lyklunum hefur fækkað er sú að sífellt fleiri taka sjón­varps­þjón­ust­una sína í gegnum öpp, sem ann­að­hvort eru inn­byggð í nettengd sjón­vörp eða hægt er að nálg­ast í gegnum uta­n­áliggj­andi tæki, eins og til dæmis Apple TV eða sam­bæri­leg Android-­box. Með þeirri leið er hægt að nálg­ast ýmsar erlendar streym­isveitur sem starfa á Íslandi á borð við Netflix, Amazon Prime, Viaplay  og Disney+. Sím­inn, Sýn/Vodafone og Nova bjóða einnig upp á sjón­varps­þjón­ustu­öpp sem hægt er að hlaða niður án end­ur­gjalds, bæði fyrir Apple og Android tæki, en þó ekki öll. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár