Telja frumvarpið gert fyrir fjármálafyrirtæki sem fá auknar þóknanir verði það að lögum

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) og Samtök atvinnu­lífs­ins eru sam­mála um að frum­varp sem á að heim­ila aðkomu eigna­stýr­inga fjár­mála­fyr­ir­tækja að því að fjár­festa við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað fólks sé í besta falli ekki tíma­bær. ASÍ segir að engin almenn krafa sé uppi í sam­fé­lag­inu um þetta. Verið sé að byggja á hug­myndum fyr­ir­tækja sem sjá fyrir sér að græða á umsýslu verði frum­varpið að lögum.

Telja frumvarpið gert fyrir fjármálafyrirtæki sem fá auknar þóknanir verði það að lögum
Frum­varpið var lagt fram af Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, sem þá var fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í lok mars. Þá var Katrín Jak­obs­dóttir enn for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn­inni sem afgreiddi það til fram­lagn­ingar. Það fellur svo í hlut Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sem nú heldur á pró­kúru rík­is­sjóðs, að fylgja frum­varp­inu í gegnum þing­lega með­ferð. Mynd: Golli

„Vakin skal athygli á að þess verður ekki vart að í sam­fé­lag­inu sé uppi almenn krafa um frelsi í fjár­fest­ing­ar­stefnum og aðkomu að eigna­stýr­ingu með við­bót­ar­líf­eyr­is­sparnað. Hug­myndir í þá átt koma einkum þaðan sem þókn­ana- og umsýslu­kostn­aður rynni fremur en eig­endum við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar.“ Þetta segir í umsögn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) um frum­varp um skyldu­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­semi líf­eyr­is­sjóða sem ætlað er að auka val­frelsi ein­stak­linga í við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði á þá leið að ein­stak­lingar geti sjálfir ákveðið fjár­fest­ing­ar­stefnu sparn­að­ar­ins og breyt­ingar á henni í sam­ráði við vörslu­að­ila. 

Samkvæmt frum­varp­inu á að ná því mark­miði með því að „auka heim­ildir vörslu­að­ila við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar til að bjóða við­skipta­vinum sínum að hafa per­sónu­legt val um fjár­fest­ing­ar­stefnu við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aðar á þann veg að eig­andi slíks líf­eyr­is­sparn­að­ar­ins geti sjálfur ákveðið fjár­fest­ingar og ávöxtun sparn­að­ar­ins.“ Hið aukna val­frelsi felur í sér að sjóð­fé­lagi getur, verði frum­varpið að lögum, ákveðið að ráð­stafa við­bót­ar­líf­eyr­is­sparn­aði sínum til sjóða í stýr­ingu banka og …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár