Afdrifaríkustu svik sögunnar? Kom Blunt, njósnari Stalíns, upplýsingum til Hitlers?

Anthony Blunt var breskur mennta­maður sem gekk í þjón­ustu Stalíns. En hjálp­aði hann líka Hitler — með hræði­legum afleið­ingum?

Afdrifaríkustu svik sögunnar? Kom Blunt, njósnari Stalíns, upplýsingum til Hitlers?
Anthony Blunt á blaða­manna­fundi eftir að upp um hann komst. Hann hélt því fram að hann hefði ein­göngu sent Sov­ét­mönnum upp­lýs­ingar sem nauð­syn­legar hefðu verið til að sigra Þjóð­verja og það hefði hann aðeins gert af hug­sjóna­á­stæðum. En lék hann ekki bara tveim skjöldum, heldur þrem?

Þann 17. sept­em­ber 1944 hófst hern­að­ar­að­gerðin Market Garden á vest­ur­víg­stöðv­unum. Rúmum þrem mán­uðum eftir inn­rás­ina í Normandy höfðu herir Banda­ríkja­manna, Breta og ann­arra Banda­manna í vestri hrakið Þjóð­verja frá mestum hluta Frakk­lands og voru einnig búnir að ná stærstum hluta Belgíu. Næsta skref Banda­manna átti að vera að ná lyk­il­borgum í Hollandi og sér­stak­lega að tryggja her­liði sínu mjög mik­il­vægar brýr yfir Rín­ar­fljót. Ef brýrnar næð­ust væru Banda­menn þess albúnir að halda sókn sinni áfram af fullum krafti og sækja beint inn í hjarta Þýska­lands þá um haustið. Þeir bjart­sýn­ustu gerðu sér vonir um að Banda­menn gætu náð til Berlínar fyrir jólin 1944 en þá hlytu Þjóð­verjar að gef­ast upp og hinu grimmd­ar­lega stríði lyki.

Tug­þús­undir fall­hlíf­ar­her­manna stukku því úr flug­vélum yfir mik­il­vægum stöðum í Hollandi og áttu að halda brúnum í fáeina daga eða uns skrið­dreka­sveitir kæmu á vett­vang.

Skemmst er frá því að segja að Market Garden mis­heppn­að­ist illi­lega. Þjóð­verjar virt­ust vel und­ir­búnir og vörð­ust af mik­illi hörku. Mannfall var mikið í liði Banda­manna og fjöldi fall­hlíf­ar­her­manna varð að gef­ast upp þegar sókn skrið­dreka­sveit­anna var stöðvuð.

Ekki nóg með að þessi til­tekna aðgerð mis­heppn­að­ist, heldur hafði svo miklu verið kostað til hennar að þrek Banda­manna var nú þorrið um skeið. Þeir urðu að stöðva sókn sína að þýsku landa­mær­unum til að safna liði á nýjan leik. Þjóð­verjar fengu tíma til að skipu­leggja gagn­sókn í des­em­ber sem fór að vísu út um þúfur en tafði þó enn sókn hinna vest­rænu Banda­manna í átt til Berlínar.

Afleið­ing þess var sú að þegar sov­éski Rauði her­inn fór aftur af stað í jan­úar 1945, eftir að hafa kastað mæð­inni í nokkra mán­uði, þá var það hann sem náði fyrstur til Berlínar og Sov­ét­ríkin réðu svo ríkjum í ára­tugi á eftir bæði yfir Póllandi, aust­ur­hluta Þýska­lands og fleiri löndum Mið-Evrópu.

Ef Market Garden hefði hins vegar lukk­ast má ætla að stór svæði í Mið-Evrópu, þar á meðal mest­allt Þýska­land og ef til vill vest­ur­hluti Póllands, hefðu ekki ein­ungis sloppið við stríðs­á­tök vet­ur­inn 1944-45 heldur hefði næstu ára­tugir ekki endi­lega verið undir hinni þrúg­andi ráð­stjórn.

En hvers vegna tókst Þjóð­verjum að bregð­ast svo skjótt og hart við þegar Market Garden hófst. Það hefur ýmsum þótt með mestu ólík­indum, enda var aðgerðin óneit­an­lega mjög djörf og í henni ýmsir óvæntir þættir sem ekki átti að vera auð­velt að bregð­ast við.

Sögu­sagnir hafa lengi verið á kreiki um að ein­hverjir úr her­búðum Banda­manna hafi upp­lýst Þjóð­verja um áætl­un­ina og þar með kannski framið afdrifa­rík­ustu svik hern­að­ar­sög­unnar. 

Þar hefur helst verið nefndur til sög­unnar Christiaan nokkur Lindem­ans en hann var Hol­lend­ingur, með­limur í and­spyrnu­hreyf­ing­unni gegn Þjóð­verjum og með mikil tengsl við bresku leyni­þjón­ust­una.

Lindem­ans, sem var rakið ill­menni og gekk ýmist undir nafn­inu King Kong eða Morð­ing­inn, hafði ákveðnar upp­lýs­ingar um Market Garden, enda höfðu Banda­menn sam­vinnu við hol­lenska and­spyrnu­menn við und­ir­bún­ing­inn. Talið er býsna senni­legt að hann hafi komið að minnsta kosti ein­hverjum upp­lýs­ingum um Market Garden til Þjóð­verja.

Eftir að grunur vakn­aði um það áttu menn vissu­lega erfitt með að átta sig á því hvers vegna hann hafi skyndi­lega ákveðið að ganga í þjón­ustu Hitlers. Lindmans var hand­tek­inn af Bretum og dó 1946 í fang­elsi. Hann var sagður hafa framið sjálfs­morð. Seinna kom svo í ljós að hann hafði allan stríðs­tím­ann einnig verið í þjón­ustu Sov­ét­ríkj­anna og var því í raun þre­faldur í roð­inu.

Nú er komin ný bók sem fjallar um þetta mál, höf­und­ur­inn er Robert Verkaik og bókin hans heitir The Traitor of Arnhem, Svik­ar­inn í Arnhem. Og óhætt er að segja að hann varpar nýju ljósi á málið.

Hann heldur því sem sé fram að auk upp­lýs­inga sem Þjóð­verjar hafi fengið frá Lindem­ans hafi annar njósn­ari einnig sent þeim upp­lýs­ingar um Market Garden, og það að lík­indum mun návæm­ari og betri upp­lýs­ingar.

Það er að segja njósn­ari sem gekk undir nafn­inu Jos­ephine og naut svo mik­ils trausts Þjóð­verja að skýrslur frá henni lentu ævin­lega á borði Hitlers sjálfs.

Svo gerð­ist og í þetta sinn og Verkaik heldur því fram að upp­lýs­ingar frá Jos­ephine hafi verið svo nákvæmar að þær hafi orðið til þess að Þjóð­verjum tókst að hrinda Market Garden-árásinni.

Og Verkaik telur sig vita hver Jos­ephine hafi verið.

Það hafi verið eng­inn annar en Anthony Blunt starfs­maður bresku leyni­þjón­ust­unnar.

Og fjar­skyldur ætt­ingi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar.

Löngu eftir stríðið komust Bretar að því að Blunt, sem þá var orð­inn sér­fræð­ingur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í mynd­list og mál­verkum, var í raun­inni, eða hafði verið á snærum Sov­ét­manna í stríð­inu. Hann var einn fimm ungra og efni­legra mennta­manna í Cambridge á fjórða ára­tugnum sem allir létu fall­er­ast af komm­ún­ism­anum og urðu sov­éskir njósn­arar.

Nöfn þriggja þess­ar­ara manna eru heims­fræg: Kim Philby, Guy Burgess og Donald Maclean.

Eftir að upp hafði kom­ist um þá bár­ust böndin einnig að Blunt og hann ját­aði árið 1964 að hafa verið í þjón­ustu Sov­ét­ríkj­anna. Af ein­hverjum ótrú­legum ástæðum var honum engin refs­ing gerð og hann fékk að halda áfram starfi sínu við hirð­ina. Ekki varð upp­skátt um hlut hans fyrr en hálfum öðrum ára­tug síðar.

Engan grun­aði hins vegar að Blunt hafi hugs­an­lega líka verið Jos­ephine í þjón­ustu Þjóð­verja. Fyrr en nú að Verkaik full­yrðir það.

Og ástæðan fyrir því að Jos­ephine/Blunt hafi sent Hitler upp­lýs­ingar um Market Garden eru þá einmitt þær sem fjallað er um í upp­hafi þess­arar greinar. Með því að koma í veg fyrir að Banda­menn í vestri næðu að ráð­ast inn í hjarta Þýska­lands og stefna til Berlínar strax haustið 1944, þá hafi njósn­ar­inn gert Stalín að ná stórum hluta Mið-Evrópu ... og Berlín í lok apríl 1945.

En fram­lengt stríðið um hálft ár og sjálf­sagt kostað hund­ruð þús­unda manns­lífa.

Auk alls ann­ars sem her­nám Rauða hers­ins hafði í för með sér.

Þénusta Blunt við Stalín var sam­kvæmt þessu ansi dýr.

Hafa ber í huga að Verkaik er að gefa út bók sem hann langar að selja í stóru upp­lagi. Hann vill auð­vitað gjarnan gefa til kynna að þar komi margt óvænt fram.

En þeir sem hafa skrifað um bók­ina til þessa virð­ast sam­mála um að mála­til­bún­aður hans sé einkar sann­fær­andi.  

 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár