Segja leigusala nýta sér neyð flóttafólks til að okra á Bifröst

Íbúar á Bifröst segja fyr­ir­tæki sem leigir út gamla stúd­enta­garða nýta sér neyð þeirra sem þar búa til að standa í óhóf­legum verð­hækk­unum. Meiri­hluti íbú­anna eru flótta­menn, flestir frá Úkraínu. „Við höfum engan annan mögu­leika. Við getum ekki bara farið.“ Leigusal­inn segir við Heim­ild­ina að leigu­verðið þyki afar hag­stætt.

Segja leigusala nýta sér neyð flóttafólks til að okra á Bifröst
Á Bifröst býr mikið af flótta­fólki. „Stundum finnur maður á Bifröst að maður hafi verið settur í sveit og gleymdur. Vanda­málið úr sög­unni því við erum ein­hvers staðar. Við erum eins og geymd og gleymd,“ segir íbúi á Bifröst. Mynd: Anna Sharaeva

Christina Atten­sperger flúði leigu­mark­að­inn í borg­inni árið 2019 og flutti inn í gamla stúd­enta­garða á Bifröst. Íbúð­irnar hafði fyr­ir­tækið Mið­garður keypt af Háskól­anum á Bifröst og sett í útleigu. Hún var lengi eini fasti íbú­inn í blokk­inni. 

„Ég var bara guðs­fegin. Það var bara 115 þús­und kall leigan með hita og raf­magni fyrir 55 fer­metra,“ útskýrir hún.

Haustið 2021 fór fleira fólk að koma í húsið. Og síð­ustu tvö árin hefur mikið af flótta­fólki frá Úkraínu bæst við. Þetta er alla jafna barna­fólk eða eldri hjón.

Þá fór leigan að hækka.

„Þetta var alltaf gert með mjög útsmognum hætti,“ segir Christina „Bæði í gegnum vísi­tölu og svo hækk­uðu þau tvisvar í fyrra auka­lega.“ Fyrir páska var svo öllum íbúum til­kynnt, eftir lestur á notk­un­ar­mæla, að kostn­að­ur­inn við hit­ann væri miklu meiri en upp­haf­lega hafði verið áætlað.

Tíðar hækkanir sem valda miklu álagi

Verðið …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GHA
    Guðmundur H Arngrímsson skrifaði
    Bragi Sigmar Sveinsson okrar svífyrðilega á þeim sem hafa í engin önnur hús að venda og verða að búa í einagrun að Bifröst. Íbúðirnar sem hann er að leigja hafa á undanförnum misserum verið seldar fyrir á milli 15 og 20 milljónir. Ársleigan sem flóttamenn greiða sem hlutfall af kaupverði er þrefalt hærri en hún gerist á okurmarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu og hátt í fimmfalt hærri en að meðaltali í höfuðborgum Evrópu.
    12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár