„Kapítalismi án samkeppni er arðrán“

Í nítj­ánda þætti Pressu komu for­svars­menn Neyt­enda­sam­tak­anna, VR og Félags atvinnu­rek­anda til þess að ræða nýlegar laga­breyt­ingar á búvöru­lögum og stöðu sam­keppn­is­mála hér á landi almennt. Þá ræddu for­menn­irnir einnig nýlega skýrslu um ólög­legt verð­sam­ráð skipa­fé­lag­anna og hugs­an­legar lög­sóknir vegna sam­keppn­is­brot­anna.

Samkeppnis-tríóið, svonefnda hugnast ekki nýlegar breytingar á búvörulögum og segja nýlega skýrslu um ólöglegt verðsamráð skipafélaganna sýna fram á þann mikla samfélagslega kostnað sem einokun og samráð hefur í för með sér.

Í nítj­ánda þætti Pressu voru nýsam­þykktar breyt­ingar á búvöru­lögum og staða sam­keppn­is­mála á Íslandi teknar til umræðu. Til leiks mættu Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, og Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.

Þrátt fyrir að vera gjarnan á önd­verðu meiði gagn­vart ýmsum mála­flokkum voru við­mæl­end­urnir þrír allir sam­mála um að víða væri pottur brot­inn í sam­keppn­is­málum hér á landi og sjón­ar­mið um eðli­lega sam­keppni víða á und­an­haldi á íslenskum mörk­uðum.

Nýlega sam­þykktar breyt­ingar á búvöru­lögum væru til marks um það. Þar væri verið að færa verið að færa örfáum stórum fyr­ir­tækjum víð­tækar heim­ildir til þess að skipta mark­aðnum upp á milli sín og koma sér saman um kaup- og sölu­verð á afurðum.  

Í þætt­inum vitn­aði Breki Karlsson í ummæli sem Joe Biden Banda­ríkja­for­seta sem sagði að „kap­ít­al­ismi án …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár