Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum

App­el­sínugul við­vörun er í gildi á Vest­fjörðum. Þar er nú tals­verð snjó­koma og skaf­renn­ingur. Skyggni er mjög lélegt og flestir vegir eru lok­aðir eða ófærir.

Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum
Ófært Talsverð snjó­koma og skaf­renn­ingur er á Vest­fjörðum. Mynd: Golli

Óvissu­stig er á Vest­fjörðum vegna snjó­flóða­hættu og eru flestir vegir ófærir. App­el­sínugul við­vörun er í gildi til klukkan sex í dag. Á vef Veð­ur­stofu Íslands kemur fram að á Vest­fjörðum sé „norð­austan stormur, 18-25 metrar á sek­úndu og tals­verð snjó­koma og skaf­renn­ingur með mjög lélegu skyggni.“ Eftir sex í kvöld er gul við­vörun þar sem „búast má við slæmu skyggni og versn­andi færð.“ 

Heim­ildin fjall­aði fyrr á árinu um umferð­ina um Súða­vík­ur­hlíð­ina. Vegurinn er lok­aður vegna snjó­flóða­hættu í dag, eins og oft er raunin. Á ell­efu ára tíma­bili, frá 2012 til og með 2022 var þjóð­veg­inum milli Súða­víkur og Ísa­fjarðar lokað í 151 dag, eða að með­al­tali tvær vikur á ári. 

Lokaðir vegir

Þó að lokað sé fyrir umferð um Súða­vík­ur­hlíð hefur það ekki í för með sér að Súð­vík­ingar fari ekki um veg­inn til að sækja sér þjón­ustu til Ísa­fjarðar s.s. verslun, heil­brigð­is­þjón­ustu og fleira.

Tíðar lok­anir hafa þó mikil áhrif á þá sem þurfa að keyra á milli pláss­anna vegna vinnu. En þær raska líka öllum flutng­ingum til og frá Ísa­fjarð­arbæ og Bol­ung­ar­vík. Mikið magn af fiski er fluttur þar um, ekki síst lax.

Kostn­að­ur­inn við að halda veg­inum opnum, fram­kvæmdir til að reyna að verja veg­inn, mal­bika og laga nam hálfum millj­arði króna á þessu tíma­bili. Einungis lít­ill hluti veg­ar­ins hefur þó verið var­inn og þær varnir sem komnar eru koma tæp­ast í veg fyrir að stærri flóð nái vegi eða fari út í sjó.

Svokölluð snjó­flóða­gil á tæp­lega tveggja og hálfs kíló­metra kafla í Súða­vík­ur­hlíð eru 22 tals­ins. Eitt á hverja hund­rað metra. Það eru gil sem safna í sig miklu magni af snjó sem hlaupið getur fram í snjó­flóði. En slíkt ger­ist oft. Flóða hafa fallið úr flestum þess­ara gilja jafn­vel á sama sól­ar­hringnum.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár