Ferleg er hlíðin

Súð­vík­ingar búa við ein­hvern hættu­leg­asta veg lands­ins sem lok­ast í allt að mánuð á ári. Snjóflóð og grjót­hrun eru marg­falt algeng­ari þar en ann­ars staðar. Upplifa sífelld svik og stuðn­ings­leysi nágranna sinna. Mugison og fjöl­skylda gáfust upp og fluttu.

„Í dag fögnum við. Það fórst eng­inn af okkur sem ferð­ast um þessa fögru hlíð í dag og eng­inn ást­vina okkar heldur.“

Þetta skrif­aði Anne Berit, íbúi í Súðavík, inn á Facebook-síðu sem íbúar þorps­ins halda úti, gagn­gert til að deila upp­lýs­ingum um færð og ástand þjóð­veg­ar­ins milli Súða­víkur og Ísa­fjarðar. Þjóðveg sem stærstan hluta árs­ins er eina teng­ing þétt­býlasta hluta Vest­fjarða við rest­ina af land­inu. Veginn sem um fara allir vöru­flutn­ingar til og frá svæð­inu.

Á Facebook-síð­unni hefur birst fjöldi mynda og mynd­banda veg­far­enda. Í mynd­bandi teknu á jóla­dag má sjá nokk­urra mín­útna öku­ferð um veg­inn. 

Með færslu Anne Berit á Facebook-síð­una einum og hálfum mán­uði síðar fylgdi mynd af snjó­flóði sem féll þann 6. febr­úar, fór yfir og lokað veg­inum undir Súða­vík­ur­hlíð. Viku áður hafði annað stórt flóð fallið og litlu mátt muna að bílar lentu í eða á því.

…
Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár