Eftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur skilvirkt og alltaf gripið til viðeigandi aðgerða

Vegna umræð­unnar í sam­fé­lag­inu í kjöl­far lok­ana veit­inga­staða Davíðs Við­ars­sonar birti Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur til­kynn­ingu um þeirra verk­lag.

Eftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur skilvirkt og alltaf gripið til viðeigandi aðgerða
Í til­kynn­ing­unni kemur fram að eft­ir­lit þeirra sé skil­virkt og sé alltaf gripið til við­eig­andi aðgerða og mat­væli gerð upp­tæk þegar ástæða þykir til. Mynd: Shutterstock

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur til­kynnti í dag hvernig verk­lag mat­væla­eft­ir­lits­ins er háttað hjá þeim. 

Heim­ildin greindi frá því á föstu­dag­inn í síð­ustu viku að heil­brigð­is­eft­ir­litið hafi látið henda núðl­um, hrís­grjón­um og rækj­um á veit­inga­stað Wok On í Krón­unni á Fiski­slóð í des­em­ber. Stað­ur­inn fékk fall­ein­kunn hjá eft­ir­lit­inu í byrj­un des­em­ber, eða 1 í ein­kunn, og var starf­sem­in stöðv­uð að hluta.

„Ef Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur verður vart við óheil­næm mat­væli ... er ávallt brugð­ist skjótt við og tryggt að mat­væla­ör­yggi sé ekki ógnað og öryggi neyt­enda sé tryggt, í sam­ræmi við lög og reglur. Alvarleg mál eru kærð til lög­reglu ef ástæða er til, eins og gert var í því til­viki.“

Eftirlit skilvirkt

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að eft­ir­lit þeirra sé skil­virkt og sé alltaf gripið til við­eig­andi aðgerða og mat­væli gerð upp­tæk þegar ástæða þykir til. 

Heil­brigð­is­eft­ir­litið vinnur eftir núm­era skala, frá núll til fimm. Ef fyr­ir­tæki færi núll í ein­kunn er starf­semin stöðvuð. „Ef nið­ur­staða reglu­bund­ins eft­ir­lits er einn þýðir það að heil­brigð­is­full­trúi hefur tak­markað starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins eða stöðvað hana að hluta eða rekstr­ar­að­ili hefur axlað þá ábyrgð sem á honum hvílir sam­kvæmt lögum og gert þetta sjálfur.“ Þetta kemur fram á vef Reykja­víkur. Ef fyr­ir­tæki fá slæma nið­ur­stöðu, eins og einn eða tvo, „er ljóst að þau starfa ekki áfram nema að loknum úrbótum sem sam­þykktar eru af heil­brigð­is­full­trúa í eft­ir­liti.“

Inn á vef Reykja­vík­ur­borgar má finna nið­ur­stöður Heil­brigð­is­eft­ir­lits­ins. Þar er hægt að leita að til dæmis veit­inga­stöðum sem fólk hefur hug á að snæða á um helg­ina og skoða ein­kunn stað­ar­ins fyrir heim­sókn­ina. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Þorleifsdóttir skrifaði
    Það líður alltof langur tími milli heimsókna heilbrigðiseftirlitsins og alltof margir staðir fá 2 stig.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár