Ótrúleg hegðun Asíufíla: Grafa dána unga með mikilli viðhöfn

Fyrsti fílsunginn sem fannst.
Fyrsti fíls­ung­inn sem fannst. Hann var lagður nákvæm­lega til í gröf sína með fæt­urna upp í loft, en þannig snúa fílar aldrei í lif­anda lífi — ef þeir mögu­lega kom­ast hjá því.

Fílar á Indlandi grafa dauða unga sína. Þessi ótrú­lega stað­reynd hefur komið fram í dags­ljósið eftir að ind­verskir vís­inda­menn birtu fyrir örfáum dægrum nið­ur­stöður rann­sóknar sem þeir gerðu á fimm hræjum fíls­unga. Vís­inda­menn­irnir fylgd­ust með fíla­hjörðum draga lík sumra ung­anna um langan veg — lengsta ferðin tók tvo sól­ar­hringa — þangað til fíl­arnir fundu nógu mjúkan jarð­veg sem þeir grófu síðan ung­ana í.

Greftr­un­ar­stað­irnir voru í öllum til­fellum teakrar, yfir­leitt með skurðum til áveitu sem gerðu að verkum að auð­velt var fyrir dýrin að krafsa og grafa í jörð­ina. Ekki er hægt að úti­loka að ein­hverjir ung­anna hafi dáið á staðnum þar sem skrokk­arnir fund­ust en það er þó talið mjög ólík­legt.

Senni­lega hafa allir ung­arnir verið fluttir á stað­inn eftir að þeir dóu.

Í þeim til­fellum þar sem vís­inda­menn­irnir urðu sjálfir vitni að fíl­unum flytja lík ung­anna á greft­un­ar­stað sást að það var öll hjörð við­kom­andi fíla sem tók þátt í þessu, ekki ein­ungis móðir eða faðir hins dána fíls­unga.

Ungarnir voru grafnir liggj­andi á bak­inu með fæt­urna upp, sem sé í mjög „óeðli­legri“ stell­ingu af fílum að vera. Fæturnir stóðu raunar upp úr jörð­inni svo lík fíls­ung­anna voru ekki alveg hulin.

Greftr­uðu fíls­ung­arnir fimm fund­ust allir á til­tölu­lega litlu svæðinálægt landa­mærum Bhútan, eða þar sem rauða stjarnan er.

Vís­inda­menn hafa áður orðið vitni að því að fílar róti laufum og smá­greinum yfir dauða unga en svona við­hafn­ar­miklar greftr­anir hafa ekki sést áður.

Hjá nokk­urri dýra­teg­und — nema mann­inum.

Ljóst mun vera að þótt greftr­un­ar­stað­irnir hafi verið skurðir grafnir af mönnum, þá voru þeir í öllum til­fellum á mjög fáförnum slóðum og því greini­legt að fíl­arnir ætl­uð­ust til þess að þeir yrðu látnir í friði.

Fíls­ung­arnir fimm voru á aldr­inum 3-12 mán­aða og dóu af ýmsum nátt­úru­legum ástæðum, sem kallað er, flestir af nær­ing­ar­skorti en hvort það var bein­línis vegna skorts eða sjúk­dóma hefur ekki verið rann­sakað til fulls ennþá.

Auk fíla hafa menn hingað til  séð gíraffa, pekkarís­vín, simpansa, bav­í­ana og makakíapa og örfáar dýra­teg­undir aðrar sýna látnu ung­viði ein­hvers staðar virð­ingu eða áhuga en aldrei neitt í lík­ingu við það sem ind­versku vís­inda­menn­irnir hafa nú upp­götvað í fari ind­versku fíl­anna. 

Bæði hér og hér líka má lesa um rann­sókn Ind­verj­anna en hana leiddu Parveen Kaswan og Akashdeep Roy.

Vís­inda­menn­irnir reyna ekki einu sinni að setja fram kenn­ingar um hvað vaki fyrir dýr­unum með þess­ari umhyggju­semi við lík ung­anna sinna.

Það má hver sem les hug­leiða fyrir sig.

Mynd­irnar hér að neðan fylgdu rann­sókn vís­inda­menn eins og hún var kynnt í vefrit­inu Journal of Threa­tened Taxa.

Fílar draga einn dauða ung­ann á greftr­un­ar­stað.
Annar ungi graf­inn.
Fólk yfir gröf þriðja fíls­ung­ans.
Fjórði fíls­ung­inn, graf­inn með fæt­urna upp í loft eins og hinir.
Fimmti og síð­asti ung­inn. Hér má vel sá að í þessu til­felli var hann settur í skurð sem fyrir var.

Kjósa
49
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • BH
    Bjarni Halldórsson skrifaði
    Væri gaman ef Illugi læsi inn greinarnar sína eins og Sif gerir með sínar greinar.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár