Seðlabankinn segir bönkum að stilla arðgreiðslum og endurkaupum í hóf

Arðsemi íslenskra banka er meiri en evr­ópskra og vöxtur hennar var fyrst og síð­ast til­kom­inn vegna auk­ins hagn­aðar af því að rukka heim­ili og fyr­ir­tæki um vexti. Viðbúið er að mik­ill vaxta­munur muni aukast á þessu ári, en lík­legt er að útlána­töp muni aukast á næst­unni þegar fólk hættir að borga af lánum sem það ræður ekki lengur við.

Seðlabankinn segir bönkum að stilla arðgreiðslum og endurkaupum í hóf
Banka­stjór­arnir. Samtals högn­uð­ust bank­arnir þrír um 23,7 pró­sent hærri upp­hæð í fyrra en þeir gerðu árið 2022. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Lands­bank­inn, Arion banki og Íslands­banki högn­uð­ust sam­tals um 83,5 millj­arða króna á árinu 2023. Þar er næst­mesti hagn­aður sem þeir hafa sýnt innan árs síðan að bank­arnir þrír fengu nýjar kenni­tölur við banka­hrunið haustið 2008. Á sama tíma og verð­bólga og háir vextir bitu heim­ili og fyr­ir­tæki lands­ins fast – sem birt­ist meðal ann­ars í því að ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila hafa lækkað fimm árs­fjórð­unga í röð og vaxta­gjöld þeirra juk­ust um 53 pró­sent milli ára – þá jókst hagn­aður kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja um 23,7 pró­sent, eða um 16 millj­arða króna milli ára. 

Þessi staða er greind í nýju fjár­mála­stöð­ug­leika­riti Seðla­banka Íslands, sem birt var í dag. Þar segir að arð­semi bank­anna þriggja hafi verið góð á síð­asta ári. „Grunn­rekstur þeirra hefur styrkst mikið síð­asta ára­tug, hag­ræð­ing, kostn­að­arað­hald og stærri efna­hags­reikn­ingur hefur leitt til arð­bær­ari rekst­urs. Hærra vaxta­stig síð­ustu miss­eri og stærri efna­hags­reikn­ingur bank­anna hefur leitt til auk­ins vaxta­munar og …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár