„Það er allt rangt við þessa ráðstöfun fjármuna“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks gagn­rýnir fríar skóla­mál­tíðir og vill stór­felldan nið­ur­skurð í opin­bera kerf­inu til að mæta kostn­aði rík­is­ins vegna kjara­samn­inga. Hann vill meðal ann­ars hætta við bygg­ingu þjóð­ar­hallar og end­ur­skoða end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar.

„Það er allt rangt við þessa ráðstöfun fjármuna“
Fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður Óli Björn Kárason var þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks þangað til í sept­em­ber í fyrra. Hann hefur ekki greint frá því opin­ber­lega af hverju hann ákvað að hætta í því leið­toga­hlut­verki og ger­ast almennur þing­maður. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Ekki er hins vegar hjá því kom­ist að vara sér­stak­lega við hug­myndum um fríar skóla­mál­tíðir sem áætlað er að kosti rík­is­sjóð um 21,5 millj­arða út samn­ings­tím­ann. Það er allt rangt við þessa ráð­stöfun fjár­muna. Verið er að styrkja stóran hóp for­eldra sem þarf ekki á stuðn­ingi að halda og færa má rök fyrir því að mat­ar­sóun auk­ist.“ Þetta skrifar Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem var for­maður þing­flokks hans framan af kjör­tíma­bili og þangað til í sept­em­ber í fyrra, í grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag.

Tilefnið er að rík­is­stjórnin, sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn situr í ásamt Vinstri grænum og Fram­sókn­ar­flokki, hefur ákveðið að leggja til aðgerð­ar­pakka til að liðka fyrir kjara­samn­inga­gerð til langs tíma sem hún metur á 80 millj­arða króna á samn­ings­tím­anum, sem fjögur ár. Óli Björn seg­ist í grein­inni vera sann­færður um að kostn­að­ur­inn eigi eftir að verða meiri þar sem vand­séð sé að það verði undið ofan af útgjöldum sem stofnað hefur verið til þegar samn­ings­tím­anum ljúki. 

Ef það haf verið ætlun rík­is­stjórn­ar­innar að verja á þriðja tug millj­arða króna til að styðja við barna­fjöl­skyldur hefði, að mati Óla Björns, verið skyn­sam­legra að hækka barna­bætur enn frekar en ráð­gert er. „Fríar skóla­mál­tíðir eru dæmi um vonda ráð­stöfun sam­eig­in­legra fjár­muna. Von mín um að rík­is­stjórnin gæti sam­ein­ast um að lækka skatta, og þá sér­stak­lega lækka neðsta þrep tekju­skatts­ins, gekk ekki eftir. Það er miður enda kemur fátt þeim sem lægri launin hafa betur en lækkun tekju­skatts fyrir utan lækkun útsvars.“

Margt réttlætanlegt

Á meðal ann­arra aðgerða sem ríkið ætlar að grípa til, og hafa það mark­mið að fjölga krónum í vasa þeirra sem þær ná til svo atvinnu­lífið þurfi ekki að greiða fyrir auknar ráð­stöf­un­ar­tekjur í gegnum umfangs­meiri launa­hækk­anir, er hækkun barna­bóta, útgreiðsla sér­staks vaxta­styrks í ár og hækkun á fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslum. Auk þess verður stutt við upp­bygg­ingu um þús­und íbúða á samn­ings­tím­anum með stofn­fram­lögum til almennra íbúða og hlut­deild­ar­lánum. 

Óli Björn segir að góð rök séu fyrir því að hækka barna­bætur og greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi, þrátt fyrir að hann hafi lengi talað fyrir því að barna­bóta­kerfið verði lagt niður og þess í stað tek­inn upp per­sónu­af­sláttur barna. „Hækkun vaxta- og hús­næð­is­bóta orkar tví­mælis en virð­ist mik­il­vægur þáttur í að kjara­samn­ingar hafi tek­ist. Sá kostn­aður er minni háttar miðað við ávinn­ing­inn af lang­tíma­samn­ingum og meiri stöð­ug­leika.“

Það er því mat þing­manns­ins að uppi­staðan í kostn­að­ar­sömum aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar sé rétt­læt­an­leg til að ná því að lang­tíma­samn­ingar um hóf­legar launa­hækk­anir. Það er, aðrar aðgerðir en sú að miðla rúm­lega sjö millj­örðum króna á ári til for­eldra grunn­skóla­barna, án til­liti til tekna þeirra, með því að gera skóla­mál­tíðir fríar. Í Reykja­vík, stærsta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, eru 87 pró­sent barna í mat í skóla sínum. For­eldrar þeirra allra munu fá kjara­bót upp á 12.836 krónur á hvert barn og um 1.900 börn í grunn­skólum Reykja­víkur munu eiga kost á því að fá skóla­mál­tíð sem ekki voru skráð í mat. 

Ekki að fara að hækka skatta á millitekjuhópa

Mikið hefur verið rætt um hvernig aðgerð­irnar verði fjár­magn­aðar. Fyrr í vik­unni köll­uðu til að mynda for­menn Sam­fylk­ing­ar­innar og Við­reisnar eftir upp­lýs­ingum um hvernig rík­is­stjórnin eftir upp­lýs­ingum um það. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra stóðu fyrir svörum.

Katrín Jak­obs­dóttir þvertók fyrir að fjár­magna ætti aðgerðir með hækkun tekju­skatts á ein­stak­linga eða lög­að­ila í land­inu. Enn fremur vís­aði hún til orða Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur sem sagði að auka þyrfti aðhald. „Hér hefur verið unnið heil­mikið í því verk­efni að ein­falda rík­is­rekst­ur­inn og ég er ekki í nokkrum vafa um að það er áfram hægt að gera það án þess að það bitni á nokkurn hátt að þjón­ustu við almenn­ing sem alltaf vera okkar for­gangs­mál.“ Þórdís Kolbrún bætti við að nið­ur­skurður þyrfti ekki að vera sárs­auka­fullur því gríð­ar­lega mikil tæki­færi væru til að fara betur með almannafé. „Ég er ekki að fara að hækka skatta á milli­tekju­hópa.“

„Særir alla skynsemi“

Óli Björn leggur línur um hvar hægt sé að skera niður í grein sinni í dag. „Við verðum að sætta okkur við að rík­is­sjóður hefur ekki bol­magn til að ráð­ast í mörg verk­efni sem mörgum kann að finn­ast nauð­syn­leg. Stofnun rík­is­óp­eru er eitt, þjóð­ar­höll er annað, stofnun rík­is­stofn­unar um mann­rétt­indi er þriðja. Listinn er því miður lengri.“ 

Örfáir dagar eru síðan að Þórdís Kolbrún, sem er vara­for­maður flokks Óla Björns, sagði að bygg­ing þjóð­ar­hallar fyrir 15 millj­arða króna væri „for­gangs­verk­efni rík­is­stjórn­ar­innar“.

Þá segir hann að end­ur­greiðslur til erlendra kvik­mynda­fyr­ir­tækja, sem voru hækk­aðar í 35 pró­sent eftir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn gerði það að eitt af sínum helstu kosn­inga­lof­orðum fyrir síð­ustu kosn­ingar, séu komnar úr bönd­unum. „Fjögurra millj­arða end­ur­greiðsla til banda­rísks spennu­þáttar særir alla skyn­semi. Hækkun á hlut­falli end­ur­greiðslu, sem gerð var í mik­illi sam­stöðu á þingi árið 2022, verður að fella úr gildi.“ Þar vísar Óli Björn í þær end­ur­greiðslur sem HBO, fram­leið­andi fjórðu þáttar­aðar af True Detective, fengu úr rík­is­sjóði fyrir að fram­leiða þætt­ina á Íslandi. 

Hann vill einnig end­ur­skoða hinn svo­kall­aða höf­uð­borg­ar­sátt­mál­ann frá grunni, en helsta verk­efni hans er gerð borg­ar­línu, fækka stofn­unum, sam­eina sýslu­manns­emb­ætti og dóm­stóla, fækkun hæsta­rétt­ar­dóm­ara í fimm og tryggja fram­gang þriggja frum­varpa Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, um upp­stokkun og sam­ein­ingar stofn­ana sem heyra undir ráðu­neyti hans. „Fækkun stofn­ana rík­is­ins, útvistun verk­efna og sala rík­is­fyr­ir­tækja stuðlar að auknu hag­ræði í rík­is­rekstr­inum.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Konráð Gíslason skrifaði
    Nei nei er ekki enn einn spena sjallinn að tjá sig um eyðslu!
    Hvað fær sjálfstæðisflokkurinn aftur í styrk frá íslenska ríkinu?
    Meiri hræsnarinn!
    0
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Stóra spurningin ætti að vera hvað ríkisstjórnir Sjálfstæðsflokksins síðari ár, nú frá 2013, gerðu við það afar mikla fé sem tekið var út úr vaxtabótakerfinu og barnabótakerfinu, frá því sem var (2013) og frá því sem var í marga áratugi á síðustu öld. Einnig það sem Sjáfstæðisflokkur og Framsókn tóku úr félagslega íbúðakerfi (Verkamannabústaðakerfinu) og loforði þeirra flokka þá (um 2000) sem enginn talar um núna, að í stað félagslega íbúðakerfisins kæmi öflugt húsnæðisi og vaxtabótakerfi - til framtíðar. Það fé allt og miklu meira var tekið frá almenningi, og þeim sem helst þurftu það og fært öðrum skv þessari lógík og hefur sparað t.d. útgerðinni sem fékk lækkað veiðigjald (2013) frá sama tíma og bætur lækkuðu til okkar, ótalda milljarða, og með lækkun bankaskatts, var bönkunum færðir aðrir tugir milljarða og mikið fleiri rekstraraðilum.

    Svo er ómkerilegt hvernig Óli Björn margarfaldar saman upphæð margra ára (4ra) til að geta talað um nógu háa uphæð. Við öllu jafna tölum um útgjöld ríkisins og hins opinberar á ársgrundvelli.
    9
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það er kominn augljós kosningaskjálfti í suma.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár