Nasistafána flaggað í Árbænum

Lögregla vitj­aði í gær íbúa í fjöl­býl­is­húsi í Árbænum vegna ábend­inga um nas­ista­fána sem hékk í glugga við­kom­andi. Aðilinn var beð­inn um að fjar­lægja fán­ann ella eiga von á því vera kærður fyrir brot á lögum gegn hat­urs­orð­ræðu.

Nasistafána flaggað í Árbænum
Lögreglu barst til­kynn­ing um fán­ann. Hún heim­sótti ein­stak­ling­inn í gær og bað hann um að fjar­lægja hann. Mynd: Aðsent

Heim­ild­inni barst fyrir skemmstu ábend­ing um íbúa í fjöl­býl­is­húsi í Árbæ sem hefur að und­an­förnu haft nas­ista­fána úti í glugga, gestum og gang­andi til sýnis.

Á mynd sem Heim­ild­inni barst, sem var tekin nýlega, má sjá fán­ann hanga í stofu­glugga íbúðar. Málið var til­kynnt til lög­reglu sem vitj­aði manns­ins í gær og bað hann um fjar­lægja fán­ann. 

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar náði tali af einum nágranna manns­ins sem stað­festi að fán­inn hefði verið í glugg­anum um nokk­urt skeið þangað til lög­regla kom og bað hús­ráð­anda um að fjar­lægja hann.   

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Val­garður Val­garðs­son, aðal­varð­stjóri á lög­reglu­stöð fjögur, að lög­reglan hafi heim­sótt mann­inn  og beðið hann um fjar­lægja fán­ann ella eiga í hættu á að vera kærður fyrir brot á grein í hegn­ing­ar­lögum sem lúta að hat­urs­orð­ræðu. 

Í 233. grein almennra hegn­inga­laga kemur fram að „hver sem opin­ber­lega hæð­ist að, róg­ber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða ann­ars konar tján­ingu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóð­ern­is­upp­runa eða þjóð­legs upp­runa, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða, fötl­unar, kynein­kenna, kyn­hneigðar eða kyn­vit­undar, eða breiðir slíkt út, skuli sæta sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum.“

Þá telur Val­garður að mál­inu sé lokið. „Ég held hann hafi bara brugð­ist ágæt­lega við þessi aðili, í þessu til­felli.“ Hann væntir þess ekki að málið muni ná lengra. Segir Val­garður að mál sem þessi rati sjaldan inn á borð lög­reglu en þau komi þó af og til upp.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KJÁ
    Karl Jóhann Ásmundsson skrifaði
    Öfug swastika! Hvað táknar það?
    0
  • Kári Emil Helgason skrifaði
    Þarf að sýna fánann með fréttinni?
    1
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    For Faninn i VALHÖLL i safn um Islenska NASISTA---
    0
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Hvað í upptalningunni á við í þessu tilfelli? Ég er ekki að mæla þessum gjörningi bót, en átta mig ekki á gegn hverjum af þessum hópum þessi fánabirtingin beinist. Ég held að það sé bara ágætt að vita hvaða fávitar eru á þessari línu.
    0
    • Bergur Sigurðsson skrifaði
      Það má með góðum rökum halda því fram að þarna sé ógnandi tjáning t.d. gangvart gyðingum. Trúarbrögð eru jú með í upptalningunni. ;)
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár