Fjölga starfsmönnum sem afgreiða umsóknir flóttamanna um marga tugi

Til að vinna á frá­flæð­is­vanda vegna umsókna flótta­manna um vernd hefur verið ákveðið að ráða allt að 35 starfs­menn til við­bótar við þá sem sinna afgreiðslu slíkra umsóknar. Til mik­ils er að vinna við að ná niður kostn­aði, en þjón­usta við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd kostar um ell­efu þús­und krónur á dag að með­al­tali.

Fjölga starfsmönnum sem afgreiða umsóknir flóttamanna um marga tugi
Dóms­mála­ráð­herra Kynn­ingin um veik­leika í starf­semi mála­flokka, meðal ann­ars útlend­inga­mála, var unnin af ráðu­neyt­inu sem Guðrún Haf­steins­dóttir stýrir.

Til að takast á við þann mikla frá­flæð­is­vanda sem er til staðar vegna ein­stak­linga sem leitað hafa eftir alþjóð­legri vernd á Íslandi hefur verið ákveðið að fjölga á vernd­ar­sviði Útlend­inga­stofn­unar um 20-25 stöðu­gildi, en þar starfa nú 50 starfs­menn. Því er mun aukn­ingin nema allt að 50 pró­sent, en hún er hugsuð til tveggja ára.

Starfs­mönnum hins stjórn­sýslu­stigs­ins sem kemur að afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd, kæru­nefndar útlend­inga­mála, mun fjölga hlut­falls­lega enn meira vegna stöð­unnar. Í dag vinna þar tólf starfs­menn auk starfs­manna í stoð­deildum. Til stendur að fjölga þeim um sjö stöðu­gildi í ár og á næsta ári, eða um 58 pró­sent. Þá á að fjölga í útlend­ingateymi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem í dag telur þrjá starfs­menn, um tvo til við­bótar á árunum 2024 til 2025 þannig …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár