Nýlenduveldið Rússland: Herferðin til Síberíu

Þeir sem halda fram sjón­ar­miðum Rúss­lands í heim­inum segja stundum sem svo að Rússland eigi í stöðugri hug­mynda­fræði­legri bar­áttu við „nýlendu­veldin“ á Vest­ur­löndum. En hvað er Rússland annað en stærsta nýlendu­veldi í heimi?

„Érmak leggur undir sig Síberíu“
„Érmak leggur undir sig Síberíu“ — verk eftir rúss­neska mál­ar­ann Vasilí Súrikov.

Eiginleg ríki fóru að mynd­ast á slétt­unni sem nú kall­ast Úkraína og Rússland á 9. öld. Þar höfðu um aldir búið ýmsir slav­neskir þjóð­flokkar en ríkja­myndun má segja að hafi verið við­brögð við Býsans­veld­inu við Svarta­haf og ágangi nor­rænna vík­inga frá Eystra­salti.

Öflugt ríki varð til kringum Kyiv er und­ir­gekkst krist­in­dóm árið 988 og framan af 11. öld var ríkið eitt þeirra víð­áttu­mestu í Evrópu. Svo fór að halla undan fæti fyrir því ríki; aust­rænar þjóðir á borð við Kipsjaka sóttu að úr austri en ríkið Rús (eins og það var yfir­leitt kallað) klofn­aði upp í ótal smá­ríki á slétt­unni vestan- og norð­an­verðri.

Stundum hverfð­ust þau um sér­staka „rúss­neska“ ætt­bálka, stundum um valda­fjöl­skyldur sem flestar röktu ættir sínar til hinna fyrstu fursta í Kyiv.

Mongólar koma!

Eitt stærsta og öfl­ug­asta ríkið var Novgorod í norðri þar sem ekki ríktu prinsar eða furstar heldur tald­ist það vera lýð­veldi.

Í raun var Novgorod samt kaup­manna­veldi, ekki ósvipað og mörg ítölsku ríkj­anna um þær mundir.

Laust fyrir miðja 13. öld urðu örlaga­ríkir atburðir á slétt­unni sem enn móta sögu svæð­is­ins. Þá komu Mongólar askvað­andi langt úr austri og lögðu undir sig allan aust­ur­helm­ing slétt­unnar miklu en skildu eftir sig sviðna jörð í vest­ur­hlut­anum. Kyiv var lögð nán­ast í eyði 1240 og næstu ald­irnar voru ætt­bálk­arnir í vest­an­verðri Úkraínu, sem nú heitir, leiksoppar ríkja í vestri, Póllands og Litáens.

Skattheimtumenn Mongóla

Rúss­nesku ríkin norður af urðu á hinn bóg­inn að sitja og standa eins og Mongólum og arf­tökum þeirra þókn­að­ist. Valda­ætt­irnar í sumum þeirra voru framan af lítið annað en skatt­heimtu­menn Mongóla þótt með tím­anum færu þær að sýna meiri sjálf­stæð­is­þrótt.

Svo var til dæmis um ríkið Moskvu sem tók að vaxa á 14. öld og styrkt­ist veru­lega þegar yfir­maður rétt­trún­að­ar­kirkj­unnar, sem fyrrum hafði haldið til í Kyiv, flutti aðsetur sitt til Moskvu.

Um miðja 16. öld má segja að Moskvu­ríkið hafi verið búið að sam­eina undir sinni stjórn öll þau svæði og ætt­bálka sem bjuggu á meiri­hluta þess svæðis sem nú heitir Evr­ópu­hluti Rúss­lands.

Novgorod hafði til dæmis fallið Moskvu í skaut 1478 og þá gripu Moskvu­menn til bragðs sem síðan hefur orðið ansi kunn­ug­legt í sög­unni þar eystra: Mestöll valda- og mið­stétt lýð­veld­is­ins var flutt í útlegð langar leiðir í burtu.

Krýndur keisari

1547 krýndi stór­prins­inn í Moskvu, Ívan 4., sig keis­ara eða tsar til merkis um hve stöndugt ríki hans var orðið. Um sama leyti fóru Moskvu­menn að kalla ríki sitt ein­fald­lega Rússland eftir hinu gamla ríki í Kyiv sem þeir litu á sem fyr­ir­renn­ara sinn.

Um þessar mundir voru hin núver­andi Belarús og Úkraína (sér í lagi vest­ari hlut­inn) hins vegar undir stjórn sam­bands­ríkis Pólverja og Litáa en aust­ur­hluti Úkraínu og Krím­skagi voru undir stjórn Tatara, arf­taka Mongóla.

Mongólska veldið í aust­ur­hluta hins núver­andi Rúss­lands („Gullna hjörðin“) var hins vegar mjög á fallanda fæti er þarna var komið sögu. 1552 lagði Ívan 4. undir sig Kazan, sem hafði lengi verið höf­uð­borg Mongóla­veldis þar um slóðir og sex árum síðar ruddi Ívan sér leið til Kaspí­hafs með því að sigra Mongólaf­urst­ann í Astrak­han.

Skil milli tungumála og samfélaga

Ívan náði hins vegar ekki að sigra Krím­tat­ara og heldur ekki vinna Eystra­salts­löndin. Útþensla hinna nýju Rússa í suður og vestur var nú meira og minna stöðvuð næstu 200 árin eða tæp­lega það.

Á þessum tíma segja margir fræði­menn að orðið hafi þau skil í menn­ingu, tungu­máli og sam­fé­lagi slav­nesku ætt­bálkanna og/eða þjóð­anna á slétt­unni að þaðan í frá megi óhikað tala um þjóð Rússa ann­ars vegar en þjóðir Bela­rússa og Úkra­ínu­manna hins vegar. Aðrir segja hins vegar óhætt að telja þau skil 300 árum eldri. eða síðan á 13. öld þegar Rús-ríkin í Kyiv og nágrenni komust undir ægis­hjálm ríkj­anna í vestri en fursta­dæmin í norðri voru und­ir­okuð af Mongólum.

Þar á meðal Moskvu­ríkið eftir að það varð til.

Eins og Cortés í ríki Azteka

Hvað sem því líður: Eftir að Ívan 4. hafði kné­sett mongólsku ríkin í Kazan og Astrakan fór athygli Rússa að bein­ast að lönd­unum handan Úral­fjalla, ekki síst vegna arð­væn­legra loð­dýra­veiða sem ætt­bálkar þar stund­uðu, einkum í hinum miklu skógum í norðri.

Eina eig­in­lega ríkið á svæð­inu handan fjall­anna var fursta­dæmið (khan-veldið) Síbír. Stjórn­ar­herrar þar voru af Mongóla­ættum, höfðu und­ir­geng­ist íslam og litu á sig sem arf­taka Gullnu hjarð­ar­innar en þegn­arnir voru hins vegar af fjöl­mörgu ætt­erni og trúðu á „stokka og steina“ eins og það var orðað á sínum tíma.

Það er að segja, trúðu á nátt­úru­öflin í ýmsum myndum og sjamanar („töfra­menn“) voru þeirra prestar.

Athygl­is­vert er hve hin fyrsta nýlendu­sókn Rússa inn í Síberíu var svipuð nýlendu­sókn vest­rænna ríkja víða um ver­öld­ina, sem var þá til­tölu­lega nýhafin. Oftar en ekki voru það ævin­týra­menn og lukku­ridd­arar í leit að skjót­fengnum gróða sem stýrðu hinum fyrstu her­ferðum á fram­andi slóðir en rík­is­valdið fylgdi svo á eftir.

Fyrsti leið­angur Rússa á hendur Síbír minnir til dæmis ekki lítið á her­ferð spænska her­stjór­ans Cortés gegn ríki Azteka en átti sér þó stað 60 árum síðar.

„Leið­angur Rússa á hendur Síbír minnir mest á her­ferð spænska her­stjór­ans Cortés gegn Aztekum“

Samið við Stroganov

Ívan 4. hafði samið við Stroga­nov-ætt­ina í Rúss­landi um að hún þreif­aði fyrir sér handan Úral­fjalla í umboði hans. Ættin réði svo sjó­ræn­ingja­for­ingja af Volgu til að ann­ast málið.

Érmak hét sá og er fátt um hann vitað, nema yfir­leitt flokk­ast hann sem Kósakki en hvað það þýddi um þær mundir getur farið milli mála. Altént var Érmak djarfur og dug­andi her­for­ingi og lagði upp 1582, að talið er, með um 800 manna her­flokk og fór með menn sína á bátum eftir stór­fljótum langt inn í hjarta Síbír­ríkis.

Rétt eins og Cortés í Mexíkó lét Érmak sem hann væri kom­inn til að kristna og sið­væða voða­lega villi­menn og heið­ingja en það var þó gróða­vonin ein sem rak hann og félaga áfram.

Og þar sem Tjúbasjhöfði stendur út í Irtisjfljót kom her khans­ins í Síbír á móti Rússum en var ger­sigr­aður — byss­urnar sem Rússar höfðu réðu þar bagga­mun móti frum­stæðum vopnum Síbírk­hans.

Á bökkum árinnar á bar­daga­svæð­inu er nú borgin Tobolsk.

Brynja frá Ívani grimma

Khaninn lagði á flótta og þegar Ívan keis­ari frétti af þessum atburði reidd­ist hann Érmak í fyrstu fyrir að koma öllu í bál og brand. Hann átt­aði sig þó fljót­lega á tæki­fær­inu sem þarna gafst til að hrifsa gróð­ann af loð­dýra­veið­unum undir Moskvu­valdið.

Þá lét Ívan (kall­aður hinn „grimmi“) að sögn útbúa Érmak eina glæsi­lega brynju til merkis um að nú væri hann for­ingi á vegum Rússa­keis­ara.  

Áfram hélt svo sóknin í austur og verður greint frá því á þessum vett­vangi öðru hvoru á næst­unni. Þá kemur og í ljós hvað varð um brynju Érmas.

Á sautj­ándu öld­inni stöðv­uð­ust sókn­ar­til­raunir Rússa í vest­ur­átt nær alveg, eins og áður var drepið á, sem og í suður inn í Úkraínu, en sóknin í austur varð óaf­lát­an­leg. Rússnesk bænda­þorp skutu upp koll­inum hvar­vetna á svæð­inu að Úral­fjöllum og þjóð­inni fjölg­aði.

Og Rússar fóru líka í vax­andi mæli yfir Úral­fjall og námu land í Síberíu í stórum stíl þrátt fyrir oft harða mót­spyrnu heima­manna.

Fyrir slysni í öðru húsi

Athygl­is­vert er hvernig hinn víð­frægi rúss­neski sagn­fræð­ingur Vasilí Klju­té­v­skí (1841–1911) lýsti afleið­ingum þess­arar útþenslu. Hann var sann­ar­lega eng­inn and­ófs­maður gegn hefð­bundnum rúss­neskum við­horfum 19. aldar (og síðar) um að Rússar ættu rétt á að ráða öllum slav­neskum löndum.

Klju­té­vsí tal­aði til dæmis óhikað um Úkraínu sem „Litla Rússland“ eins og gjarnan var gert á hans dögum.

En Klju­té­v­skí sagði líka að land­vinn­ing­arnir á 17. öld­inni hefðu blásið Rússum í brjóst þeirri óþægi­legu til­finn­ingu að þeir hefðu álp­ast til að setj­ast til bráða­birgða að í húsi sem aðrir ættu.

„Gestur í eigin húsi“

Klju­té­v­skí not­aði svipuð orð um þann mann sem öllum öðrum fremur stað­festi og blés út heims­veld­is­hug­myndir Rússa, Pétur mikla keis­ara.

Honum hefði þótt hann vera „gestur í eigin húsi“, skrif­aði Klju­té­v­skí.

Og eins og Alex­ander Etkind hefur bent á var sagn­fræð­ing­ur­inn Sergei Solovjov (1820–1879) líka á því að sam­band hins óbreytta Rússa við „hina heilögu rúss­nesku jörð“, sem oft var og er kölluð svo, væri ekki öll þar sem hún væri séð. Solovjov átti meiri þátt en margir í að móta hina nú svo hefð­bundnu mynd af hinni rúss­nesku þjóð­ar­sál en hann tal­aði samt um að Rússland sjálft, nátt­úran, væri ekki „móðir Rússa, heldur stjúp­móðir“.

„Ókunnugir í sjálfum sér“

Etkind bendir á að stundum sé Rússum lýst eins og þeir séu „ókunn­ugir í sjálfum sér“ eins og Julia Kristeva orð­aði það. Og af lýs­ingum hans og fleiri mætti jafn­vel ætla að þeir kunni að vera haldnir „imposter syndrome“ sem nú er kallað: þegar fólki finnst innst inni að það sé komið á ein­hvern stað í líf­inu án þess að eiga það skilið og án þess í raun­inni að hafa hæfi­leika til.

Og hvenær sem er gæti kom­ist upp um mann!

Lodd­ara­líðan hefur þetta verið kallað á íslensku.

En að sál­greina heilar þjóðir er þó vissu­lega mjög vara­samt sport, svo ekki sé fastar að orði kveðið, og ég hætti mér því ekki lengra út á þá braut.

Hins vegar er vert að skoða fleiri áfanga í nýlendu­sögu Rússa, enda verður það gert.

Seinna, seinna ...

Og þá mun víkja sög­unni að því sem Rússar sjálfir kalla gjarnan að „nýlendu­væða sjálfa sig“ eða „innri nýlendu­væð­ingu“.

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnus Magnusson skrifaði
    Áhugaverð grein um einkar flókna sögu þar sem líklega verður eitthvað verður um flest deilt.
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    þetta er ótrúlegur hrærigrautur sem gerist einmitt þegar menn blanda saman áróðursbulli við söguna . . .
    -3
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      Og hver er nú áróðurinn Axel ?
      4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár