Arion banki gagnrýnir fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka fyrir of mikið gagnsæi

Einn af þremur stærstu bönkum lands­ins gagn­rýnir aðferð­ina sem beita á við sölu á Íslands­banka. Hann vill að sölu­þókn­anir til þeirra sem taka söl­una að sér verði hærri, að færri verði gert kleift að selja hlut­ina og að ráð­inn verði sér­stakur umsjón­ar­að­ili. Fyr­ir­komu­lagið eins og það sé nú áætlað fari gegn „við­teknum venjum á fjár­mála­mark­aði og getur að óbreyttu leitt til þess að lægra verð fáist fyrir hlut rík­is­ins en ella.“

Arion banki gagnrýnir fyrirhugaða sölu á Íslandsbanka fyrir of mikið gagnsæi

Arion banki gagn­rýnir það fyr­ir­komu­lag sem til stendur að hafa á sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og leggur í umsögn, sem skilað hefur verið inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valds, fram marg­hátt­aðar breyt­ing­ar­til­lögur fram við frum­varp um söl­una. 

Bankinn fagnar því að það eigi að selja hlut­inn og segir að sú stað­reynd að stór hluti íslenska banka­kerf­is­ins hafi til þessa verið í opin­berra eigu hafi staðið við­gangi íslensks fjár­mála­kerfis fyrir þrifum. „Fjár­mögn­un­ar­kjör íslenskra banka eru óhag­stæð­ari en til­efni er til, ekki síst þegar horft er til mik­ils fjár­hags­legs styrks og lágs áhættu­stigs. Hefur þetta, auk mik­illar inn­lendrar, beinnar og óbeinnar, skatt­heimtu tengdri rekstri þeirra, orðið til þess að arð­semi íslenskra banka er lægri en vera ætti þegar horft er til nor­rænna sam­an­burð­ar­banka og vonar Arion banki hf. að áform­aðar breyt­ingar …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Arion banki er fáum til góðs, skerðir þjónustu viðskiftavina sem aldrei fyrr.
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Þessi árátta auðsins að fela sig segir okkur enn og aftur að aðferðarfræði gróðans er subbuleg. Nærtækasta dæmið er víggirðingar Bandarískra sendiráða hvar sem er í heiminum, eitthvert skýrasta dæmi um vonda samvisku.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Fjármálageirinn er baneitraður og eftir því sem svona prelátar hafa meira dagskrárvald, verður þjóðin fátækari og þeir bólgnari með stærri hallir. HKj
    4
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Þessi grein opinberar að fjármálageirinn virðist vera vafinn í bómul og leyndarhjúp sem kemur bara fáum til góða. En hagur allmennings algerlega fyrir borð borinn. Afhverju er það slæmt að allir viti allt.
    9
  • Birgir Hauksson skrifaði
    Að Arion banki hafi áhyggjur af því að ríkið fái minna fyrir söluna á Íslandsbanka með fyrirhugaðri sölu aðferð er hlægilegur fyrirsláttur.

    Auðvitað vill Arion sem og aðrir borga sem minnst. Maðurinn telur fólk fífl upp til hópa.
    7
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Ég tel að 850 miljóna söluþóknun sem Íslandsbanki fékk fyrir að klúðra sölunni og þessi blekking með 1.2 miljarða sektina sem verður í raun bara 350 millur þegar búið er að draga 850mil frá. Afhverju þarf að borga háar þóknanir fyrir það eitt að vinna vinnuna sína, þessar þóknanir hafa að mínu mati ekki verið til þess að salan hafi gengið bettur, frekar virðist það vera þver öfugt. ,,Margur verður að aurum API"
    10
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár