Facebook lá niðri

Sam­fé­lags­mið­ill­inn Facebook lá niðri í dag tæpa klukku­stund. Notendur víða um heim hafa vakið athygli á því að hafa skyndi­lega verið læstir út af aðgangi sínum. Svo virð­ist sem að það sama eigi við um aðrar sam­fé­lags­miðla­þjón­ustur sem móð­ur­fyr­ir­tæki Facebook, Meta, rekur. Instagram, Threads og Facebook Messen­ger liggja líka niðri

Facebook lá niðri
Sam­fé­lags­miðlar fyr­ir­tæk­is­ins Meta liggja allir niðri. Mörg hund­ruð þús­unda not­enda hafa verið skráðir út af aðgöngum sínum Mynd: EPA

Fjöl­margir not­endur sam­fé­lags­mið­ils­ins Facebook voru í dag skyndi­lega skráðir út af aðgöngum sínum og eiga erfitt með að skrá sig inn á nýjan leik. Hið sama er segja um aðra sam­fé­lags­miðla sem fyr­ir­tækið Meta rekur. Instagram, Threads og Messen­ger lágu allir niðri. 

Svo virð­ist sem vand­inn hafi þó verið leystur og not­endur geta nú skráð sig aftur inn á þjón­ustur Meta. 

Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvað olli vand­anum. Samkvæmt villu­meld­ing­ar­þjón­ust­unni Downdetector liggur vef­síðan Facebook niðri víða um ver­öld.

Samtals hafa hrann­ast inn meira en 250.000 villu­meld­ingar þar sem not­endur lýstu erf­ið­leikum með að skrá sig inn á sam­skipta­mið­il­inn. Haft er eftir tals­manni Meta á frétta­miðl­inum Reuters að fyr­ir­tækið geri sér grein fyrir vand­anum og vinna sé hafin við að ráða bót á vill­unni sem kemur í veg fyrir að not­endur geti skráð sig inn á miðl­anna. 

Net­verjar víða um heim hafa sótt sam­fé­lags­mið­il­inn X og velt vöngum yfir því hvað valdi bil­un­inni hjá Meta. Þá hafa aðrir nýtt tæki­færið í gamni og bent á að áreið­an­leika eldri upp­lýs­ing­veitna. 

Í sam­tali við frétta­stofu RÚV segir Anton Már Egilsson, for­stjóri net­ör­ygg­is­fyr­ir­tæk­is­ins Syndis, að allt bendi til þess að bil­unin sé í inn­skrán­ing­ar­kerfi Meta sem hafi áhrif á reikn­inga fólks á heims­vísu.

Hann segir að ekki þurfi að hafa frek­ari áhyggjur af bil­un­inni, litlar líkur séu að brot­ist hafi verið inn á sam­fé­lags­miðla­reikn­inga ein­stak­linga.

Fréttin verður upp­færð

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Axel Axelsson skrifaði
    sýnist þetta vera innleiðing á ejú öryggi . . .
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár